Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1928, Page 32

Sameiningin - 01.06.1928, Page 32
X9o Hefir félag vort saniþykt aö senda þangað sem erindreka sinn séra N. S. Thorláksson og g'reiða ferðakostnað hans. Heimilað er sæti á þessu þingi forseta hvers lútersks kirkjufélags auk erindreka, sem það hefir rétt til. Verður þetta þing eflaust einhver þvðingarmesti viðburður kirkjusögu samtíðarinnar á næsta ári. 1 ársskýrslu minni fyrir ári síðan, hvatti eg kirkjuþingið til að taka til nákvæmrar yfirvegunar hvort að vér ætturn að ganga inn í nánara samband við einhverja af trúbræðrum vorum hér í álfu. Eg lagði fram þessa spurningu: “Er ekki tími til þess kominn að vér athugum á ný hvað mæli með því og á móti að vér sem sjálfstætt kirkjufélag göngum inn í samband með öðrum trúbræðrum vorum á einhvern hátt ?” Ekki lít eg svo á að þetta gæti eða ætti að vera út- kljáð á einu þingi. Ekki heldur að út í nokkuð slíkt ætti að vera lagt nema með algerðri samheldni og samkomulagi. En við íhugun málsins kæmi í ljós hvernig ástatt er með öll skilyrði í þessu tilliti. Þessu yfirliti skila eg til þingsins. Eg vona og bið að meðferð málanna á þessu þingi megi miða í sem heppilegast horf. Að hér megi ráða eindreginn kristilegur áhugi og kristilegur bróðurhugur. K. K. Ólafsson. KIRKJUMNGID. Fréttir af kirkjuþinginu, sem haldið var í Upham, N. Dak. 20.— 24. júní, koma í næsta blaði. Þingið var ánægjulegt í alla staði og að sumu leyti eitthvert hið uppbyggilegasta, sem haldið! hefir verið. Viðtökurnar í Upham frábærar og dvöl gesta þar í bygðinni hin á- nægjulegasta. Fóru allir þaðan þakklátir og með virðingu fyrir söfn- uðinum og bygðarbuum, sem raunar er eitt og hið sama, því í Mouse River eru allir í söfnuði. KVITTANIR. Innkomið í Heiðingjatrúoð'ssjóð 25. maí til 16. júní 1928. Árdals söfn. $15.00; Immanúels söfn, Wynyard, $24.25; Herðu- breiðar söfn., $10.00; Víkur söfn., $14.00; Immanúels söfn. Baldur, $25.55 ;F_vrsti lút. söfn., $45.75; St. Páls söfn., $22.10; Kvenfél. St. Páls safn., $40.$$; Vesturheims söfn., $15.00: Ágústínus söfn., $19.00; Björn Jónasson, Mountain, $1.00; Víðir söfn., $11.60; Frelsis söfn., $25.50; Trúboðsfél. Selkirk safn., $75.00; Elfros söfn., $24.50; Hallgríms söfn. Eeslie, $4.75; Séra Carl J. Olson, $5.00-;Milton söfn., $8.35; Mrs. Björg J. Johnson, Winnipeg, til miningar um Hallgrím Pétursson, $2.00; Ónefnd, Wpeg., $5.00: Sd. sk. Lundar safn.,$3.25; Kvenfélagið Baldursbrá, Baldur, $10.00; Fríkirkju söfn. $39.00; Gimli söfn., $15.25; Selkirk söfn., $15.00 Jónas Jónasson, Riverton, $5.00; Vídalíns söfn., $10.00; Sd. sk. Vídalíns safn., $5.00; Mrs. O. J. Paulson, Blaine, $1.50; Kvenfél. Glenboro safn., $25.00; Kvenfél. Frelsis safn., $10.00; Joseph Walter, Gardar, $5.00; Glenboro söfn..

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.