Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1940, Qupperneq 18

Sameiningin - 01.03.1940, Qupperneq 18
48 legustu ofsóknum var kærleikurinn til Jesú Krists sterkast- ur. Vissulega hal'ði Kristur dregið til sín þá, sem gengu með djörfung móti óargadýrum og eldi. Sárasta reynslan, sem gengið hefir yfir kristna kirkju er ekki bál-vargar heldur vellíðan. Það varð því miður reynslan þegar Konstantínus, rómverski keisarinn, á fjórðu öld, hóf kristindóminn í valdasæti í Rómaríki. Að ganga mót eldi var hræðilegt, en að ganga með oddi og egg gegn áhugaleysinu sem velgengnin skapaði var miklu erfiðara og mun það vera reynsla á öllum tímabilum. Samt var það ofurefli jafnvel fyrir þennan óvin að dreþa kristindóminn. Á öldunum, sem i hönd fóru og lenigdust fram í miðaldir, þrátt fyrir skelfilega spilling páfadómsins, eins og hann stundum sýndi sig, ljómaði Ijósið sem Jesús birti heiminum í óteljandi guði-vigðum sálum. Bernhard frá Clairveaux söng þá ódauðlega kristna sálma. Anselm í Cantaraborg rökræddi friðþæginguna með heittum vopnum andans. Franz frá Assissi (1182— 1226) afsalaði sér öllum eigum sínum og öllum lífsþægind- um, sóttist eftir að hjúkra sjúklingum, sem þjáðust af hin- um allra viðbjóðslegustu sjúkdómum, prédikaði Guðs orð á hinu einfaldasta máli með þeim undrakrafti, ekki einu að þúsundir manna dáðu hann, heldur þúsundir manna gengu Guði á hönd. Svo samgróinn var hann lífi og píslum Jesú Krists, að eftir vitnisburði sjónarvottar sáust á líkama hans merki um kvalir Krists á krossinum. Það er vafamál hvort nokkurn tíma fyr eða síðar hafa verið menn á jörð- unni, að undanteknum ef til vill sumum postulunum, sem komist hafa nær því að líða ineð Jesú í sálarlífi sínu, en sum fegurstu ljós miðaldanna. Hjarta þeirra sagði, “Sigur- hetjan, Jesús minn.” (Framh.) —R. M. i

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.