Nýi tíminn


Nýi tíminn - 17.11.1955, Side 7

Nýi tíminn - 17.11.1955, Side 7
Fimmtudagur 17. nóvember 1955 — NÝI TÍMINN — (7 Myndun vinstri stjórnar þýðingar- mesta hagsmunamál verkalyðsins Framhald af 1. síðu iðjuhölda og íslenzkra umboðsmanna þeirra, með þeim afleiðingum, að 1953 og 1954 er verzlunar- jöfnuður íslands við Bandaríkin óhagstæður um 271 milljón króna og' við Bretland um 104 milljón- ir króna. Afskipti v.aldhafanna ,af húsnæðismálum al- mennings er eitt bezta dæmi þess, til hvaða ófarn- aðar efnahagspólitík þeirra leiðir, Byi-jað var með því að afnema frelsi manna til að byggja íbúðar- hús og ,að hindra bæjarfélög í útrýmingu bragg- anna og annarra heilsuspillandi íbúða. .Með þeirri byggingatakmörkun tókst hvorttveggja i senn: að koma tölu árlega byggðra íbúða í Eeykjavík úr 634 (1946) niður í 282 (1951) og skapa á árunum 1951—1952 tilfinnanlegt atvinnuleysi. Jafnframt banninu við nýjum íbúðabyggingum, nema með leyfi stjórnarvalda, var svo húseigendum leyft að setja leigjendur á götuna og hækka húsaleigu eftir vild, án leyfis stjórnarvalda. Þegar valdhafarnir neyddust til að láta undan kröfum fólksins og Sósíalistaflokksins og gefa íbúðabyggingar frjálsar var hinsvegar ekkert slakað á lánsfjárbanninu og menn hindraðir í að byggja, með þeim árangri að 1954 komst tala nýrra íbúða í Reykjavík enn ekki ■upp í það, sem hún var 1946, eða aðeins í 487, þótt yfir 600 sé lágmark þess er þurfti strax árið 1946, I stað þess að halda húsnæðismálunum utan við braskið, sem eigi var aðeins nauðsynlegt vegna leigjenda og þeirra, er búa í eigin íbúðum, heldur og vegna útflutningsins, — hafa valdhafarnir með sínu kalda stríði gegn alþýðunni megnað að gera nýbyggingu illkleifa efnalitlu fólki, húsaleigu í Reykjavík allt að því tí-falda við það sem var 1945 og dæma fleiri barnafjölskyldur til vistar í "forággana en voru þar 1946. Hermangið er á síðustu tveimur árum orðið öruggasta gróðauppspretta íslenzka auðvaldsins. Sá hluti auðmannastéttarinnar, er að hermanginu sit- ur safnar milljónagróða, meðan þorri atvinnu- rekenda í sjávarútvegi og landbúnaði á það undir álögum og styrkjum, hvort atvinnureksturinn ber sig. Hermang og einokunarvald, er féflettir at- vinnulífið, er orðið söramark íslenzka auðvalds- skipulagsins. Auk hins almenna arðráns er vold- ■ugasti hluti auðmannastéttarinnar þar með farinn að lifa sníkjulífi — sumpart á útlendu hervaldi, sumpart á íslenzkum atvinnuvegum, er það merg- sýgur svo, að þeir standa ekki undir sér. Með yfirdrottnun hermangaravaldsins kemst íslenzka auðvaldsskipulagið á sitt versta spillingar- og hnignunarstig. 1944 átti hluti af íslenzku borg- arastéttinni samstarf við verkalýðinn um nýsköpun atvinnulífsins, m. a. að grundvöllun togaraútgerð- ar norðan-, austan og vestanlands, en nú vofir eyðing byggðarinnar yfir ýmsum stöðum i þessum landsfjórðungum. íslenzka auðvaldsskipulagið undir forystu hermangara- og einokunarvaldsins er orð- ið bráð hætta fyrir eðlilega þróun islenzks þjóðar- búskapar og þjóðlífs vors alls, — hætta, sem þjóð- in verður að átta sig á í tíma. Vegna gróða af hemáminu munu nú ofstækis- fyllstu fulltrúar hernámsflokkanna halda áfram að berjast fyrir herstöðvum Bandaríkjanna á ís- landi, þótt sú átylla, er hemámsflokkamir áður notuðu fyrir hernáminu, sé brott fallin. Þar með berj- ast þeir raunverulega fyrir herstöðvum Bandaríkj- anna á íslandi til langframa og algerri tortímingu sjálfstæðisins. Stjórnarfarið er orðið jafn gagnrotið og gróðaað- ferðimar. Ríkisvaldið er stjórnarflokkunum fyrst og fremst ránsaðstaða, en á ekkert skylt við ábyrga þjóðarforystu. Svo skaðleg sem stjórn liemámsflokkanna hefur verið íslenzkri þjóð, svo óraunhæf hefir hún verið miðað við valdahlutföll í landinu. Allt frá því amerískt auðvald hóf bein afskipti af innanlands- málum íslands 1947 og skipaði hernámsflokkunum að stjórna landinu gegn verkalýðnum og bannaði þeim því samstarf við Sósíalistaflokkinn hefur stjórnarstefna auðvaldsins á íslandi verið sú að heyja vonlaus hjaðningavíg við sér sterkari þjóð- félagsöfl. Auðvaldjið hefur að visu megnað að vinna verkalýðnum og alþýðu allri mikið tjón í krafti ríkisvalds síns, en ekki getað stjórnað efnahagsmálum landsins til lengdar. Stjómmála- forysta íslenzks verkalýðs hefur verið það raunsæ, samtök verkalýðsins það sterk og baráttukjarkur hans svo mikill, að auðvaldið hefur því aðeins getað unnið honum tjón, að það beitti fyrir sig ríkisvaldinu (gengislækkun og kaupbinding, akipu- lagning atvinnuleysis 1952, afnám húsaleigulag- enna og skipulagning húsnæðisoku.s, afnám verð- Hluti af fulltrúunum á 10. pingi Sósíalistafloklcsins lagseftirlits og almenn vöruhækkun, vaxtahækkun og lánsfjárbann o.s.frv.) Harðsvíraðasti hluti auðvaldsins, er hefir her- mangið og einokunaraðstöðuna að féþúfu, ofstækis- fyllstu forystumenn Sjálfstæðisflokksins að mál- pípum sínum og Morgunblaðið að höfuðmálgagni sínu ber nú fram æ háværari kröfur um þing- meirihluta Sjálfstæðisflokknum til handa til þess a5 koma á því alræði braskaranna, er beitt geti verkalýðshreyfinguna hörðu, að suðurameriskurn sið, lamað samvinnuhreyfinguna og brotið þjóð- frelsisbaráttu íslendinga á bak aítur. Auðvaldið kaupir sér með spillingarkerfi helmingastaðaskipt- anna liðsinni Framsóknar meðan það stefnir að því að ná þessu takmarki. Það er stefnt markvisst að því að undirbúa jarðveginn fyrir alræði peningavaldsins. Spillingin og múturnar eru settar í kerfi, eng'ir fjármunir eru sparaðir til þess að kaupa sannfæringu manna. Skipulega er unnið að því að sameina alla þræði efnahagslífsins í höndum einokunarauðvaldsins, þannig að allt framtak og framkvæmdir, smáar og stórar, séu komnar undir náð þess. jþannig er unnið að því að setja peningagildið í stað manngildisins á öllum sviðum þjóðlífsins. Fyrir afturhaldssamasta hluta íslenzka auðvalds- ins er áframhaldandi hemám íslands og niður- læging íslenzku þjóðarinnar forsenda fyrir því að það sjálft fái haldið völdum sínum og gróða- aðstöðu. Gegn þessari hættu magnast nú mótspyrn- an rr.eðal þjóðarinnar. n. Þau 8 ár, sem liðin eru síðan kalda stríðið hófst, hefir Sósíalistaflokkurinn barizt fyrir alhliða ný- sköpun atvinnulífsins, þegar hernámsflokkamir hafa stöðvað þróun sjávarútvegsins og hamlað fram- förum í öðrum atvinnugreinum. Flokkurinn hefir barizt fyrir alhliða aukningu viðskipta og einkum eflingu öruggra markaða í al- þýðuríkjunum, þegar afturhaldið hefir með köldu viðskiptastríði reynt að loka þeim leiðum. Flokkurinn hefir öll þessi ár látlaust barizt fyrir að verja þá lífsafkomu, sem náðist 1942—1947 og staðið í broddi fylkingar í þeim hörðu átökum er um það hafa orðið, ekki sízt í verkföllunum miklu 1947, 1949, 1951, 1952, 1954 og 1955. Flokkurinn hefur aldrei hvikað frá þeirri stefnu hlutleysis og sjálfstæðis landsins, sátta- og friðar- stefnu íslands á alþjóðavettvangi, er hann mark- aði, þegar hann var stofnaður, endurtók við stofn- un lýðveldisins og tókst að sameina þjóðina um árið 1945, er herstöðvakröíum Bandaríkjanna var hafnað. Flokkurinn hefir þannig barizt fyrir hagsmunum og réttindum almennings, heiðri og heill þjóðar- innar, þegar allt hið kalda stríð yfirstéttarinnar innanlands og utan beindist gegn hvorutveggja, Flokkurinn hefir allan þennan tíma einbeitt sér að því að skapa .einingu í röðum verkalýðsins, er orðið g'æti forysta fyrir alþýðustéttum landsins og öllum framsæknum öflum. Flokkurinn hefir aldrei 'átið hrekja sig yfir í neina einangrunarstefnu né gefizt upp fyrir ofsóknar- og gerningahríðum afturhaldsins. Árangurinn af réttri stefnu flokksins í einingar- málum alþýðu og sjálfstæðixmálum þjóðarinnar kom skýrt í ljós á siðasta hausti, er einingaröflin í verkalýðshreyfingunni, vinstri armur Alþýðuflokks- ins og sósíalistar og aðrir einingarsinnar náðu meirihluta á þingi Alþýðusambandsins og tókust á hendur stjórn Alþýðusambands íslands og forystu verkalýðssamtakanna á íslandi. í krafti þeirrar ein- ingar lagði verkalýður Reykjavíkur, Akureyrar og Hafnarfjarðar til eins lengsta og harðvítugasta verk- falls íslandssögunnar vorið 1955. Afturhaldsöflin ákváðu að gera það verkfall að aflraun stéttanna. Og verkalýðurinn vann það með ágætri samheldni og ■ fórnfýsi og sýndi þar með að verkalýðssam- tökin eru sterkasta valdið í landinu. Auðmanna- stéttin beitir nú öllum ráðum með tilstyrk ríkis- valdsins til þess að ræna ávöxtunum af sigri verkalýðsins. En jafnframt vex skilningur almenn- ings á því, að til þess að tryggja árangur hags- munabaráttunnar, er nauðsynlegt að alþýðan taki höndum saman einnig á stjórnmálasviðinu. Flokksþingið minnir á stjórnmálaályktun síðasta flokksþings, álítur flokksstjórnina hafa starfað í anda hennar og fagnar sérstaklega þeim mikla árangri, er náðst hefir á sviði verkalýðseiningar og stéttarbaráttu verkalýðsins. III. Höfuðverkefni flokksins á næstunni er að* koma á víðtæku samstarfi alþýðustéttanna og allra fram- sækinna afla og ríkisstjórn á grundvelli þess sam- starfs. Frumskilyrði slíks samstarfs og slíkrar ríkisstjórnar er eining i verkalýðsstéttinni, öruggt pólitískt samstarf Sósíalistaflokksins og Alþýðu- flokksins. Flokksþingið minnir á stefnuskrá flokks- ins við Alþingiskosningarnar 1953 og stjórnmála- ályktun siðasta flokksþings, sem hvorttveggja er enn í fullu gildi. Fiokksþingið fagnar þvi frumkvæði, sem stjórn Alþýðusambands íslands hefir haft um tillögur að stefnuskrá vinstri ríkisstjómar og samninga vinstri- flokka á þeim grundvelli og lýsir yfir samþykxt sinu við afstöðu miðstjórnar til stefnuyfirlýsingar Alþýðusambandsstjómar. Álítur þingið hvorttveggja rétt og nauðsynlegt, að koma á kosningabandalagi Sósíalistaflokksins, Alþýðuflokksins og Þíóðvarnar- flokksins, þannig að þeir bjóði fram sem einn kosningaflokkur, og að koma á vinstri ríkisstjórn svo skjótt sem kostur er á. Flokksþingið leggur áherzlu á, að myndun slíkr- ar ríkisstjórnar og framkvæmd stefnuskrár þeirr- ar, sem nú er til umræðu, er þýðingarmesta hags- munamál verkalýðshreyfingarinnar. Flokksþingið álítur það brýnasta verkefni þjóð- arinnar að mynda ríkisstjóm, sem hnekkir. yfir- ráðum hermangara- og einokunarauðvaldsins, hefur að nýju uppbyggingu atvinnulífsins í þeim lands- fjórðungum, er eyðingin vofir nú yfir og stefnir að því að setja vinnu handa og heila í öndvegi í þjóð- félaginu. Óhugnanlegustu fyrirbærin í þjóðlífinu eiga ræt- ur sínar að rekja til hnignunar og rotnunar auð- valdsskipulagsins sjálfs. Þessvegna verður Sósíal- istaflokkurinn jafnan að vera minnugur þess, að takmarkið er afnám auðvaldsskipulagsins, enda þótt ráðstafanir vinstri ríkisstjórnar myndu á nú- verandi stigi stórauka einkareksturinn á ýmsum sviðum. Verkefni ríkisstjórnar, sem styður sig við alþýðusamtökin, er eins og nú standa sakir, að hnekkja valdi einokunarauðvaldsins og hinna er- lendu bandamanna þess í íslenzku efnahagslífi tryggja stjórnmálalegt og efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar og tryggja afkomu og efnahagslegt öryggi alþýðunnar til sjávar og sveita, En skilyrðið til þess, að allt þetta gerist og leiði til velfarnaðar almennings, er að ríkisvaldið sjálft sé hrifið úr höndum hermangara og einokunarauð- valdsins og komist í æ ríkara mæli undir áhrif alþýðunnar sjálfrar og samtaka hennar. Með því vinnst það tvennt í senn, að verndað yrði og varið það lýðræði og þau lýðréttindi, er alþýðan nú nýt- ur og komið í veg fyrir, að braskarastéttip. "t.aki sér stjórnmálalegt alræði, — og hitt að alþýðan geti hafið sókn fram til þjóðfélags samvinnu og sam- eignar, þjóðfélags sósíalismans. IV. Flokksþingið álítur það veigamesta hlutverk ís- lenzkrar verkalýðshreyfingar, við hlið hagsmunabar- áttunnar, og stjórnmálabarátunnar, að beita s«r fyr- Frh. á 10. síðu,

x

Nýi tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.