Nýi tíminn


Nýi tíminn - 26.01.1956, Blaðsíða 4

Nýi tíminn - 26.01.1956, Blaðsíða 4
&) — NÝI TíiMINN — Fimmtudagur 26. janúar 1956 Lífsleiðanum sem gagntók mikinn hluta rússneska há- aðalsins á hnignunartímabili keisaradæmisins hefur löngum verið við brugðið. Stórfurstar, greifar og barónar og hispurs- meyjar þeirra máttu ekki virð- ingar sinnar vegna gera ærlegt handtak; veiðiferðir, veizlur og og hverskonar skemmtanir var það eina sem þetta fólk mátti hafa fyrir stafni. En þar kom, oft á unga aldri, að allar á- striður voru kulnaðar, glysið og glaumurinn veittu ekki leng- ur nautn heldur fylgdi þeim óbærileg þjáning, allt Kfið hafði misst bragð og lit. Þeg- ar svo var komið var fangaráð margra að varpa sér út í tryllta fjárhættuspilamennsku, en jafnvel hún varð með tím- anum tilbreytingarlaus. Þá var það að einhver í þessum lífs- leiða hópi fann upp leik, sem megnaði að gefa lífinu inni- hald þegar allt -annað þraut. Sá leikur heitjr rússnesk rúletta, og í honum leika menn sér að lífi sínu. Maður lætur eitt skot í sex hólfa skammbyssu, snýr hjólinu rösklega, ber býssuhlaupið upp að gagnaug- anu og hleypir af þegar hjól- ið stöðvast. Ef skotið hleypur af héfur leikmaðurinn að vísu tapað, en hann er jafnframt iaus við lífsleiðann í eitt skipti fyrir öll. Ef hinsvegar hjólið hefur stöðvazt með eitt- hvert af tómu hólfunum fimm í skotstöðu, hefur hann unnið, sloppið heill á húfi úr sjálf- skapaðri lífshættu. Kenndin sém því fylgdi þótti bægja lifsleiðanum frá, að minnsta kbsti um stund. Nú á tímum nýtur rússnesk rúletta lítilla vinsælda í iandi því sem hún er kennd við, enda iðjulaus yfirstétt ]>ar úr sögunni. Ekki er þó sjálfsmorðsle'ikur þessi al- dauða, hann virðist hafa fest rætur í Bandaríkjunum. Þess sést öðru hvoru getið í frétt- uin þaðan, að ungir menn, oft- ast milljónarasynir, hafi látið iífið fyrir aldur fram, vegna þess að þeir hafi tapað í rússneskri rúlettu. Svo kunnur er leikurinn orðinn þarna vestra að stjórnmálamenn, sem allra manna sízt mega við því að haga orðum sínum svo að þau fijúgi fyrir ofan skiining þorra háttvirtra kjósenda, eru famir að sækja í hann líkingar þeg- ar þeir vilja bauna rækilega á andstæðinga sína. Laug- ardaginn í síðustu viku lýsti foringi stjómarandstöðuflokks- ins bandaríska yfir þeirri skoð- un, að • utanríkisráðherrann í núverandi ríkisstjórn hefði gert sig sdcan um háttalag sem til einskis svipaði meir en rúss- neskrar rúlettu, ef trúa mætti orðum hans sjálfs. (Ttilefni þesara ummæla var •*- grein, sem birtist í síðasta hefti tímaritsins Life. Greinar- höfundur hefur þar eftir Dull- os ut -*nríkisráðherra ýmis um- mæli um utanrikisstefnu Bandaríkjanna þau þrjú ár sem Eisenhower forseti hefur setið að völdum. Dulles hefur iýst yfir að hann hafi ekkert við það að athuga sem Life hefur eftir honum, en Þar á meðal er þetta: „Auðvitað römbuðum við á barmi styrj- aldar. Sá hæfiieiki að fara fram á yztu nöf án þess að Mssnesk rúletta leikin í Washington lenda i styrjöldinni sem við blasir, er lífsnauðsynleg list. Ef maður hefur hann ekki á valdi sínu lendir maður ó- hjákvæmilega í styrjöld". Þessi ummæli, ásamt fullyrðingum um að Bandaríkjastjórn hefði þrisvar á þrem árum hótað að hefja kjarnorkustríð gegn Kína, vöktu að vonum mikla athygli og kröftug mótmæli. Ein harðasta ádrepan sem Dulles fékk var frá Adlai Stev- enson, sem demókratar buðu fram gegn Eisenhower 1952 og mestar líkur þykja á að verði aftur í kjöri fyrir flokk sinn í forsetakosningunum í haust. „Mér hrýs hugur við því“, sagði Stevenson, „að utanrík- isráðherrann skuli vera þess albúinn að leika rússneska rúlettu með tilveru þjóðar vorrar. Ég er eklci sammála því að list hinnar æðstu stjórn- kænsku sé í því fólgin að teyma oss hvað eftir annað fram á brún styrjaldar. Sér- staklega nú á kjarnorkuöldinni er list stjórnkænskunnar fólg- in í því að stefna að friði, en eklii styrjöld eða fram á barm styrjaldar". Skyssurnar sem Dulles hefur gert síðan hann varð utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna nægja vafalaust til að halda minningu hans á lofti um lang- an aldur. Hann hóf feril sinn méð því að heita því að „frelsa hinar undirokuðu þjóðir" í Austur-Evrópu og hóta „end- urgjaldsárásum með hinum stórfelldustu vopnum hvar- og hvenær sem okkur sjálfum sýnist“, en varð að éta það allt ofaní sig aftur til að lægja óttann sem stóryrði þessi höfðu vakið meðal bandamanna Bandaríkjanna. Hann hótaði „þjáningarfullu endurmati" á afstöðu Bandaríkjanna til Frakklands ef franska þingið hafnaði Vestur-Evrópuhernum, en lét sitja við orðin ein þeg- ar frumvarpið um herinn var fellt. Hann móðgaði Indverja með því að lýsa yfir að Banda- ríkjastjórn teldi nýlenduna Goa hluta af Portúgal einmitt þegar æðstu menn Sovétríkj- anna voru staddir í Indlandi og höfðu heitið landsmönnum fulltingi í baráttu þeirra fyrir endurheimt Goa. En greinin í Life er þó mesta reginskyssa sem Dulles hefur orðið á. Vand- séð er, hvernig hann hefði get- að spillt öllu rækilegar fyrir sér en þar er gert. Nú fara í hönd forsetakosn- ingar í Bandaríkjunum, og með greininni í Life hefurDull- es tryggt það að utanríkismálin verði eitt helzta deilumálið í kosningabaráttunni. Uppá síð- kastið hafði Eisenhower haft nóna samvinr'i við demókrat- ann Walter George, hinn ó- hrifamikla formann utanrikis- málanefndar öldungadefldar- innar, um mótun utanríkis- stefnunnar. Þeir höfðu komið því til leiðar að utanríkismálin virtust ætla að verða fyrir utan fiokkadeilumar. Það hefur allt breytzt við grein Dullesar, eins og sjá má af orðum Stevensons sem áðan voru tilfærð. Hubert Humphrey, einn af fulltrúum demókrata í utanríkismála- nefnd öldungadeildarinnar, hef- ur lýst yfir að Dulles hafi gert sig beran að sögufölsunum, vitnisburður hans sjálfs um Indó Kína á lokuðum fundum nefndarinnar afsanni fullyrð- ingar hans í Life um að það hafi verið bandarískar hótanir < " " Erlend tí ðlndi i. . j um kjamorkuárásir á kín- verskar borgir sem orðið hafi til þess að vopnahié var samið í Indó Kína. Humphrey hefur við orð að krefjast þess að vitnisburður Dullesar verði birtur. Slíkra sönnunargagna er ekki þörf til að reka ofan í Dulles það sem hann segir um Indó Kína. Nú þakkar hann sér að friður komst þar á, en öll- um sem fylgjast með fréttum er í fersku minni að hann fór í fússi af vopnahlésráðstefn- unni í Genf þegar stjómir Bretlands og Frakklands höfn- uðu kröfu hans um að halda stríðinu áfram. Fréttamenn í Washington benda á að svip- uðu máli gegnir um staðhæf- ingu Dullesar um að hótanir um kjamorkuárásir á Kína hafi hindrað styrjöld útaf smá- eyjunum við Kinaströnd. Það er nefnilega búið að vera opin- bert leyr.darmál í Washington síðan í fyrravor, að krafa Duíl- esár og þriggja af f jórum fulltrúum í yfirherróði Banda- ríkjanna um að bandrískum flota og flugher yrði beitt til hjáipar Sjang Kaisék að verja aðstöðu hers hans á Tatséneyj- um strandaði á andstöðu Ei- senhowers. að er nokkumveginn sam- dóma álit fréttamanna í Washington að markmið Dull- ésar með greininnr' í víðlesn- £ asta tímariti Bandaríkjanna )• hafi verið að hnekkjá þeirri skoðun að Eisenhower hafi upp á síðkastið tekið af honum ráðin og mótað sáttfúsari utan- ríkisstefnu, þá sem hæst bar á fundi æðstu manna fjórveld- anna í Genf. Dulles tökst að koma Eisenhower í þá aðstöðu að hann átti um það að velja að setja hann af, og valda með því klofningi í Republikana- flokknum, eða lýsa óbeint yfir samþykki við það sem sagt er i greininni í Life. Forsetinn valdi síðari kostinn. En vafasamt er að það nægi til að bjarga á- liti Dullesar. Flest mikilsvirt- ustu blöð Bandaríkjanna hafa kveðið upp þunga áfellisdóma yfir málflutningi hans. New York Times kemst svo að orði að utanríkisráðherrann hafi „viðhaft óviturleg ummæli, sem eru hróplegt dæmi um það, hvemig ekki á að halda á utan- ríkismálum, svo ekki sé fast* ar að orði kveðið“. Washington Post segir að ekki verði .annað séð af greininni í Life en að Dulles sé glanni og ángurgapi sem hafi nautn af því að tefla á tvær hættur. I7nn óblíðari viðtökur fékk ^ Dulles þó utan Bandaríkj- anna. Eina blaðið í Evrópu sem birti ummæli hans með vel- þóknun var Morgunblaðið. Blöðum, sem hingað til hafa varið hvað eina, sem banda- ríski utanríkisráðherrann hefur tekið sér fyrir hendur, var nú loks nóg boðið. Brezka íhalds- blaðið Daily Mail rekur tal Dullesar um listina að vega salt á barmi styrjaldar og bæt- ir við: „Sé þetta list, þá er það sú hryllilegasta list sem vér höfum kynnzt“. „Guð verndi oss fyrir þessum línu- dansara og kæruleysi hans“, segir Daily Herald, málgagrt Verkamannaflokksins. Talsmað- ur brezka utanríkisráðuneytis ins sagði umbúðalaust, að Dull- es færi með rangt mál, þar sem hann segir að brezka stjórnin hafi lofað sér þvi vorið 1954 að grípa til vopna við hlið Bandaríkjamanna i Indó Kína, en síðan gengið á bak þeirra orða sinna. Dulles hefur minnt heiminn rækilega á að í Banda- ríkjunum er öflugur og harð- snúinn stríðsflokkur og full- trúar hans skipa ýmsar mestu áhrifastöður í stjórnarkerfinu, eiga meira að segja sæti í rík- isstjórninni sjálfri. M. T. Ó. HerfSugvélar rekast á Tvær sovézkar orustuflugvæl- ar rákust á fyrir helgina ná- lægt landamærum Ungverja- lands og Austurríkis og hröpuðu til jarðar í Austurriki. Annar flugmaðurinn komst Hfs af. Segir liami að vélamar hafi verið að elta tvær ókxmnar her- flugvélar sem flogið hafi yfir ungverskt land, og hafi rekizt á í þeim eltingaleik. Rólegra } Indlandi Heita mátti að allt væri með kyrrum kjönun í gær í milljóna- borgiimi Bombay á Indlandi. Yf- irvöldin segja að 71 maður hafi beðið bana og yfir 500 meiðzt í viku óeirðum þar. Uppþot hafa orðið á öðrum stöðum í Indlandi vegna óánægju manna með fyrirætlanir ríkisstjómarinnar um að gera gagngerðar breyt- ingar á skiptingu landsins í fylki. Rhee heimtar kjarnorkuvopn Herstjóm Syngmans ‘Rhee í Suður-Kóreu krafðist þess nýl. af Bandaríkjastjóm að fá kjarnorkuvopn til umráða. Sagði forseti suðurkóreska her- foringjaráðsins, að herinn Norður-Kóreu væri orðinn svo öflugur að suðurkóreski her- inn yrði að fá kjamorkuvopn til að geta haft í fullu tré við hann. v John Foster DuUes

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.