Nýi tíminn - 26.01.1956, Qupperneq 6
0) — NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 26. janúar 1956
NÝI TÍMINN
Gunnar M. Magnúss:
ABENÐING
til yfirmaims herþrælanna á íslandi.
John W. White á Keflavíkurilugvelli
NÝI TÍMINN
tjtgefandi:
Sósíalistaflokkurinn.
Kitst.ióri og ábyrgðarmaður:
Ásmundur Sigurðsson.
Áskriftargjald kr. 50 á ári.
Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
s_________________________J
Að reikna með
veruleikanum
Það er engum efa bundið að
miklum meirihluta þjóðarinnar
hefur lengi verið ljós sú stað-
reynd að ekkert skynsamlegt
stjórnarfar getur þróazt í land-
inu meðan það er meginverkefni
valdhafanna að heyja endalausa
styrjöld við verklýðssamtökin.
Verklýðssamtökin hafa nú um
langt skeið verið sterkasta afl-
ið í þjóðfélaginu, og því hefur
styrjöld valdhafanna verið jafn
vonla.us og hún hefur verið
skaðsamleg fyrir efnahag lands-
manna, öryggi þeirra og lífs-
kjör. Reynslan undangenginna
ára er óskeikulust sönnun þess
að það er óhjákvæmileg nauð-
syn að nú verði gerbreytt um
stjórnarstefnu og verklýðs-
samtökin fái þá aðild að stjórn
landsins sem þau eiga rétt á.
Þessi krafa hefur þá einnig
hljómað frá þjóðinni undan-
farna mánuði; það hefur ekki
verið haldinn svo fundur í verk-
lýðsfélagi að ekki hafi verið
samþykkt áskorun til andstöðu-
flokka íhaldsins um að taka
höndum saman og mynda
vinstri stjórn. Þessi þróun ein-
kennir einnig landsstjórnina,
það er orðinn fullkominn glund-
roði í samstjórn íhalds og
Framsóknal•,• leiðtogar Fram-
sóknar þora ekki annað en lýsa
yfir því í tíma og ótíma að þeir
vilji fyrir alla muni losna úr
íhaldssambúðinni, ef þeir geti
komið auga á einhver úrræði
til þess. Einnig lýsa jafnvel
hægri mennimir í Alþýðu-
flokknum yfir því að þeir telji
nú að minnsta kosti flest betra
en íhaldið!
En þótt ráðamenn Framsókn-
ar og Alþýðuflokks láti þannig
í orði undan skoðunum meiri
hluta landsmanna um andstöðu
við íhaldið, er ekki þar með
sagt að heilindin séu að sama
skapi mikil. Það sést meðal ann-
a.rs á hinni hjákátlegu reikn-
ingslist prófessoranna Gylfa Þ.
Gislasonar og Ólafs Jóhannes-
sonar. en þeir hafa að undan-
förnu verið að hræra saman at-
kvæðum flokka sinna og reyna
síðan að leggja þau saman á
nýjan leik þannig að útkoman
verði sem hagstæðust. Eflaust
tekst prófessorunum að færa
sönnur á að þeir ráða við ein-
földustu reikningsaðferðir, en
það er líka það eina sem þeir
sanna. Og erfiði þeirra á ekkert
skylt við stjórnmálastarfsemi;
þaðan af síður að það votti
nokkra andstöðu við íhaldið.
Það tekst engin vinstri sam-
vinna meðan menn neita að
horfast í augu við staðreyndir.
Sú staðreynd verður elcki reikn-
uð út úr veruleikanum að innan
verkalýðshreyfingarinnar nýtur
Sósíalistaflokkurinn mests fylg-
is og alger meirihluti fólksins
í stærstu og öflugustu verka-
lýðsfélögum landsins skipar sér
um hann. Og ef menn hafa ekki
veruleikann með í útreikningum
sínum verður útkoman alltaf
tóm endileysa.
IX.
Með Morgun-
blaðsgreininni
birtið þér mynd af þremur
Nissen-bröggum. Og þjónn yð-
ar við blaðið setti þessi lát-
lausu orð undir myndina: — 1
þessum lágkúrulegu bröggum
á Keflavíkurflugvelli situr her-
stjórnin. —
Eftir þetta þurfa Rússamir
og þeirra útsendarar svo sem
ekki mikið að hafa fyrir því að
njósna um hinar mikilvægu
herstöðvar. Þama getið þið
séð, hvar verið er að brugga
launráð „gegn hættunni úr
austri“, eins og þér orðið það.
Ef svo heldur fram sem nú er
stefnt, má gera ráð fyrir að
næsta tiltekt yðar verði að
biðja Morgunblaðið að birta
mynd af hernaðarkortum yðar
með hinum nákvæmlega teikn-
uðu strikum, hringum og
punktalínum, ef þér þá ekki
sendið Rússum þetta í pósti.
Að öðru leyti mun myndin
eiga að hafa tvíþætta merk-
ingu: Hún mun vera sneið frá
Morgunblaðinu og yður í sam-
einingu til þeirra 2500 Islend-
inga, sem hafast við í bröggum
en hafa sumir verið svo ves-
ældarlegir að nöldra við og við
út af íverustaðnum. Lítið til
fuglanna í loftinu, — lítið til
herstjómar Bandaríkjamanna
á íslandi, þeir velja sér slíka
bragga til ívistar við öll störf
sín í þágu „vemdarinnar“ og
þykir heiður að.
Nei, þetta er of barnalegt
og augljós blekking, hr. John
White. Lítillæti yðar í sam-
bandi við íveru yðar í Nissen-
bröggunum snertir ekki með-
aumkvunarþel íslendinga. Þeir
brosa að þessu. Þetta er yf-
irborðslítillæti, sem hroka-
gilckir bregða yfir sig, en fer
þeim illa.
Þér talið digurbarkalega um
að „skattborgarinn banda-
ríski“ myndi taka í taumana
við óþarfan f járaustur til her-
stöðvarinnar á Keflavíkur-
flugvelli. Sennilega myndu
vopnasalarnir í heimalandi yð-
ar, sem jafnframt eru vafa-
laust miklir „skattborgarar“
ekki gera sér miklar rellur út-
Pf VvqívH lúsarögn, sem færi
til þess að byggja svolítið
reisu'egri húsakvnni yfir áróð-
urshershöfðingjann, svo að
hann gæti flutt úr hálftunnu-
húsinu, — og forðað honum
þannig frá háði og spéi liinna
umkomulitlu eyjarskeggja á
kríuskerinu. Þetta mættuð þér
hugleiða úr því að myndin og
Morgunb'aðsgreinin framköll-
uðu ekki hina umbeðnu með-
aumkvun Islendinga,
X.
insvegar segið
þér ekki frá
því, að þér hafið kirkju yðar
í bragga, en látið búa yður
lystisemdanna íveru í hinum
veglegustu húsakynnum á Is-
landi, eins og þér hafið gum-
að af. I þeim stórfenglegu og
glæsilegu salarkynnum félags-
heimilanna verðið þér að reyna
að bæta yður upp raunir út-
lagans á „þessari eyju ykkar í
Atlanzhafinu", svo að tekin
séu upp orð, sem Morgunblað-
ið segir að andinn hafi gefið
yður að mæla. I þessu sam-
bandi er rétt að fræða yður á
því, að íslendingar eru næmir
á ýmis hljóðbrigði í náttúr-
unni og skilja því vel tónimi
í þessum orðum yðar til lands
og þjóðar.
Skal þá aftur víkja örlítið
að byggingaframkvæmdum á
Keflavikurvelli. Fjárausturinn
frá „skattborgurum“ Banda-
ríkjanna fer eklri eingöngu til
þess að byggja flugvélaskýli,
birgðaskemmur, hótel, kvik-
myndahús og skemmtistaði.
íslendingum er ekki með öllu
ókunnugt um upudrátt af stór-
framkvæmdum á Keflavikur-
velli. Það þarf vitanlega ekki
að fræða yður á því, að þar
er gert ráð fyrir 30 stórhýs-
um, er reist verði í fyrstu lotu.
Það er að vísu ekki búið að
fullgera nema 12 af þessum
stórhýsum, en í hverju þeirra
eru 70 til 80 herbergi, auk
ýmissa annarra salarkynna.
En auk þessara stórhýsa hafa
verið byggð smærri hús, sem
þér munuð telja vel sæmandi
mannabústaði. Samt sem áður
er farið að hugsa um stór-
framkvæmdir í næstu lotu. En
þér berið fram undirförulslega
kvörtun vegna seinagangsins.
„Það hefði verið æskilegt að
gera fleiri framkvæmdir hér
til þess að styrkja herfræði-
lega aðstöðu varnarliðsins“,
segið þér. „EJn hér verður að
sjálfsögðu ekkert gert nema
íslenzka ríkisstjórnin leggi
samþykki sitt á það.“
XI.
ér megið gjarn-
an heyra
það við þetta tækifæri, herra
John W. White, að allur fer-
ill Ba.ndaríkjamaima liér á Is-
landi siðustu 10 árin hefur
markað skuggalegan kapítula
í sögu þjóðarinnar. Þjóðin hef-
ur í einu og öllu vei-ið beitt
ofríki vegna hersetunnar. All-
ar hinar „æskilegu framkvæmd
ir“ bandaríská hervaldsins
hafa verið ákveðnar vestur í
Bandaríkjunum án nokkurs
samráðs við íslenzka valdliafa.
En það skal viðurkennt, að
þér hafið jafnan mátt treysta
á þjónkun núverandi valdhafa,
þegar þér loks hafið verið svo
lítillátir að tilkynna áform
yðar. Hin geraamlega þýðing-
arlausu hervirki, sem þér
streitist við að koma hér upp,
notið þér sem skálkaskjól
meðan þér leitið í hvívetna
færis að eyðileggja viðnáms-
þrótt þjóðarinnar og grafa
undan sjálfstæðisvilja hennar.
Þegar ísland hlaut fullveld-
isviðurkenningu eftir alda-
langa og harða sjálfstæðis-
baráttu, greypti þjóðin á
skjöld simi tvær setningar, sem
skyldu marka stefnu hennar
til heilla um alla framtíð. Það
voru orðin: ævarandi hlutleysi
og ■ vinátta við allar þjóðir.
Þessi orð voru síðan gróður-
sett í hug og hjarta hvers
barns, sem borið var til þess
að erfa þetta land. En þér
komuð hingað, Bandaríkja-
menn, til þess að svívirða og
fótumtroða hinar helgustu
gjafir, sem forfeður vorir gáfu
niðjum sínum. I stað vinar-
þels í garð annarra þjóða
krefjist þér að sáð sé hatri í
hugarfar íslenzkra baraa, í
stað hlutleysis krefjist þér á-
rásar, í stað friðsamlegra
starfa krefiist þér auðmjúkrar
þjónustu í þágu vopnavalds-
ins. Og hið hryggilega er, að
til liðs við yður hafið þér um
sinn fengið íslenzka valdhafa,
jafnvel nákomna þeim er fyrr-
um mörkuðu hin gullvægu
stefnumið.
En það skuluð þér vita, að
þér eruð hér allir óvelkomn-
ir af þjóðárheildinni. Þér
komuð hingað í fyrstu sem of-
ríkismenii, án nokkurrar laga-
heimildar eða fullgildra samn-
inga þar um. Utanríkisráð-
herra Islands, sá, er undirrit-
aði hernámssamninginn, hafði
ekkert umboð til þess, hvorki
'frá þjóðinni né af hálfu Al-
þingis. Hann setti innsigli sitt
undir samninginn í fullkomnu
heimildarleysi, því að 5. maí
1951, þegar samningurinn var
undirritaður, hafði ekki verið
leitað til Alþingis um sam-
þykkt hans. Þetta er óhagg-
anleg staðreynd í sögunni.
Þessi staðreynd hefur verið
borin fram á Alþingi að við-
staddri ríkisstjórn, en við-
komandi ráðherra sá sér ekki
fært að hreyfa andmælum.
Þögnin á að hylja ódæðin.
En eftir að sá ráðherra
liafði framið slíkt gerræði
gegn þjóð sinni, að opna land-
ið fyrir herþrælum vopna-
valdsins, gerðist hann mesti
uppspunamaður sinnar sam-
tíðar hér á landi. Þér her-
námsmenn eigið tryggan
þjón þar sem hann er. En
slíka menn köllum við leppa
hér norðurfrá. Og þótt lepp-
ar séu notalegir og gagnlegir
um sinn, bíða þeirra allra ó-
umflýjanleg og lítt ákjósanleg
örlög.
Með atferli sínu hafa Banda-
ríkjamenn orðið þess valdandi .
að stjórnarstefna sú hér á
landi, sem byggist á herset-
unni, hefur leitt þjóðina í
meiri ógöngur en hún hefur
áður komizt í síðan liún fékk
sjálfsforræði. Þér Bandaríkja-
menn hafið sogið vinnuaflið
frá lífrænum atvinnuvegum
þjóðarinnar, svo að nú riðar
allt til falls. Þrátt fyrir millj-
ónir dollara, sem þér segið að
Islendingar hafi hreppt fyrir
aðstoð við herinn, hefur þjóð-
in aldrei verið skuldugri en nú
út á við. Öll störf bandamanna
yðar hér á landi markast af
fálmi og fumi eftir einhverju
hálmstrái til að fleyta sér á
frá degi til dags. Þér munuð
brosa í kam-’inn yfir því,
hvernig yður hefur tekizt að
smeygja fjötrum á þjóðina, en
þó kann sú gleði yðar að verða
skammæ. Það er von allra
þjóðhollra Islendinga, að þeir
dagar nálgist hraðfara, sem
stytti leiðindadvöl yðar og
herþræla yðar hér á landi, svo
að úr íslenzku andrúmslofti
hverfi hannakvein yðar yfir
hinu ógestrisna landi.
XII.
kal yður þá
veitt skýr-
greining á því, hversvegna al-
þýða manna á Islandi kallar
menn yðar. á . Keflavikurvelli
herþræla og yður, hr. John W.
White, yfirmann herþrælanna.
Islenzkur heimspekingur, dr.
Helgi Pjeturss kemst svo að
orði á einum stað, að her-
mennska sé sú. tegund af
þrælahaldi sem menn þekki
lægsta. Nóbelsverðlaunahöf-
undurinn Halldór Kiljan Lax-
ness tekur undir þessa álykt-
un með svofelldum orðum:
„Eg held, að fáar almennar
skilgreiníngar á hlut eða á-
standi séu jafnfullkomlega tal-
aðar út úr hjarta sérhvers
íslendíngs. Oss hrýs hugur við
að heyra um menn, sem verða'
fyrir þeim ókynjum að falla I
ánauð og vera seldir mansali.
til nauðúngarvinnu, ellegar'
þegar konur eru veiddai’ af’
þrælasölum og seldar til ólifn-
aðarhúsa í þeim hluta heims-
Framhald á 11. síðu.