Nýi tíminn


Nýi tíminn - 16.05.1957, Blaðsíða 4

Nýi tíminn - 16.05.1957, Blaðsíða 4
4) — NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 16. maí 1957 Peir voru mættir í lúgarn- um þegar ég kom niður, orð- ið funheitt og notaleg suða í katlinum. Karlinn settist að kabyss- unni, dró af sér vettlingana og omaði sér, hinir.hnýttu slóða. Hann hafði verið skarpur undanfarna daga í loðnunni undir sandi og mikið um slóða- töp. Einn daginn sáum við hann stökkva upp úr sjónum eins og lax Þá þurfti ekki annað en halda í sigumaglann, hann tók. Þann dag fengum við 17 tonn. Þá var líf í tuskunum, stólpinn fyrir utan og fiskur í klof á dekkinu. Báturinn lá á skammdekki þegar við fórum í land undir myrkur. Það er hellt uppá, drukkið og spjallað um aflahorfurnar og menn eru þegar farnir að gera sér vonir með 30 til 40 þúsund kr. hlut, jafnvel meira. Litlu síðar hleypur vélin í gang. Sleppa, segir karlinn, dregur vettlingana á hendur sér og fer upp. Það er aðeins tekjð að skíma þegar við smjúgum út á milli brimbrjótanna. Loftið er blátt og stirnt og tungl í fyllingu. Vélarhljóðið bergmáiar í björgunum og það fljúga neist- ar með pústinu út í skyggjuna. Það eru ljós á undan og á eftir, skakpungarnir eins og færabátarnir eru kallaðir. Það er frákast í Faxa, typp- ingssjór, en Skúli gamli rokkar uppi á toppunum og Faxi er for- út eftir skamma stund. Stefnan er tekin inn og vest- ur af Þrídröngum. Nú kemur hann beint í nef- ið (g hver skvetta krepjar á bátnum Við erum fljótir að hafa okk- Ur niður. Vélstjórinn slæst í hópinn og karlinn er einn uppi. Hvað segir skáldið, byrjar hann. Hvenær kemurðu með skakróðurinn? O, hann kemur, segi ég. Vertu bara rólegur. Hvar kemur hann? Auðvitað í Þjóðviljanum, segi ég. Þeir eru vitlausir í svoleið- ls. Teikning eftir Kjartan Guðjónsson ÚR 'L ÍFI ALÞÝÐUNNAR Færaröður Skúla íögeta Magriús Jóhannsson frá Hafnarnesi En Raggi vill ekki fá neinn smáþátt. Hann vill helzt ég skrifi heila bók um færakarl- ana. Ég lofa honum engu um það. Þá segir hann að ég sé ekk- ert skáld aðeins leirhnoðari. Ég tek því með stillingu. Það er dálítil hliðarskella og Raggi á í stríði við ketilinn og könnuna. En hann veit hvað við á, skorðar þau sitt í hvoru lagi og nú má Skúli gamli rokka eins og hann lystir. Gunnar og Gaui hafa iokið við slóðana. Þeir skera sér bréfspjöld úr molasykurskassa, krækja önglunum í þau, svo ekki flækist. Það þarf helzt daglega að skipta um slóða. Þeir verða ófisknari svt> stóru nemur. Og nú er kallinn farið að langa í kaffi. Ég ieysi hann af. Haltu laust sunnan við Dranga, segir hann. Og láttu mig vita ef stórar lóðningar koma. Það er orðið albjart og mik- ið um fuglager og smápunkta á mælinum. Hauður og haf skipta fagur- lega litum og á jökulinr. slær grænum Ijóma í birtu morg- unsins. Skúli gamli lætur vel að stjóm. Hann ratar þetta sjálf- ur. Við nálgumst óðum Dranga og lóðningarnar eru famar að verða stærri og skýrari. Hér er augsýnilega fiskur undir, Ég slæ af, opna rórhúsglugg- ann, kalla: Lóðning! Karlinn kemur þjótandi upp, snýr á punktinum, bakkar. Hér skal hann vera. Litlu siðar eru allir komnir upp og slóðarnir á niðurleið Hann lætur ekki standa á sér sá guli. Færin stoppa í miðju djúpi og það marrar, ýlir og syngur í rúllunum. Maður finnur svo glöggt hvernig bætist á unz allt er á siiti. Nú ríður á að vera handfljót- ur. Svo verður allt hvítt fyrir utan, sex á hverjum slóða, þrjátíu og sex í einu rennsli. Þvilíkt og annað eins. Munur eða þegar maður var að höggva upp einn og tvo á gömlu fær- in. Og þetta eru engir smákall- ar, enda átökin og sporðaköst- in eftir því. Blessaður nolaðu gogginn, segir karlinn. Ég er sem sé með gamla lag- ig, grýp þá undir kjálkabarðið. Við rífum þama í okkur tonn á mann á klukkutíma, þá fer hann að tregðast, enda hætt að lóða. Skammt frá okkur, nær Við skulurn kippa segir karl- inn og hefur augastað á ger- inu. Við blóðgum fiskinn niður i lest meðan kippt er og steisinn fyllist. Nú verður kafíið að sitja á hakanum. Við viljum þorsk, þorsk, fullan bát af þorski. Fiskimenn kippa alltaf stutt, segir karlinn, slæmir hendinni í olíugjafann og bakkar. Hann hefur þessa tilvitnun eftir gömlum manni. Við erum í miðju germu og fuglinn tekur spegilfagra loðn- una í sjóskorpunni. Svartfugl- inn, sem hefur átt.hér náðugan morgunverð, baksar þunglama- iega undan bátnum ,og dregur hlass. Undir bátnum er ein iðandi loðnukös, eínna líkast þéttriðnu silfruðu neti. Þræðirnir spinn- ast í allar áttir iðandi og glitr- andi í safírbláu djúpinu. Allt í einu rofnar silfurnetið og hvicir sívalningar koma þjót- andi upp um gloppuna. Ég hef aldrei séð aðra eins sjón. Nú hefði verið gott að hafa þorsknót. Eitt til tvö köst, fullúr bátur. Það rann á okkur æði, enda þurfti ekki annað en halda i sigumaglann og enginn öngull á slóðanum auður langan tíma. Þetta var á fimmtudegi og óskalög sjómanna í útvarpinu. Það má segja að rokkað hafi verið á þilfarinu á Skúla gamla þennan dag, enda blómlegt um að litast og bátur eins og fjöl á sjónum undir rökkur. Við tókum nokkra kippi í dimmumótunum,' en merktum ekki fisk og karlinn sagði það væri bezt að hætta. Við göngum frá öllu, rúllum goggum, stingjum og hnífum Síðan ei spítt íann. Það er komið slikjulogn og særinn er gullinn í tunglskininu. Gaui á landstímið. Nú er gott að koma niður fá sér sopa og Raggi búinn að stinga bjúgum í pottinn. Hvað eru þetta mörg tonn? spyrjum við vélstjórann. Hann er klókastur að gizka á afla og gerir sjaldnast meira úr en er, enda lítill hlutur úr þeim tonnum sem ýkt eru. Fjórtán tonn, segir hann. Fjórtán tonn, sæmilegt það, segjum við og vitum það verða ábyggilega sextán. Klukkan er farin að halla átta og okkur skilar drjúgum til Eyja. Þegar við komum undir Eið- ið, eru grjúpánarnir soðnir, Raggi goggar þá upp úr suð- unni, skammtar á diskana og nú taka menn freklega til mat- ar síns. Ég þakka Ragga með handa- bandi fyrir matinn, sem er þó ekki vam til sjós, en það liggur vel á manni og þetta er sá kauphæsti dagur, sem ég hef haft um ævina. Svo erum við aftur komnir í Faxa og það sézt móta fyrir skýlinu í bliki vitans á bak- borða, klefturinn eins og múr á stjór. Það er gott að vita af þessu skýli þarna á skerinu, jafnvet þó sjór sé dauður. Það eru margir bátar á land- leið og nú er spýtt hraustlega. iann. Karlinn tekur við stýrinu,. opnar.alla glugga, því það eru. bátar á stjór, bátar á bak og hvert sem litið er og keyrt eins og hægt er. Það skellur hvítu fyrir stöfn- um og vélarhljóðið bergmálar í björgunum. Skúli gamli er eins og peð inní allri þvögunni og gangstrok- umar þjóta framhjá Það er bryggjupláss af skom- um skammti, margir að landa. Við smjúgum inn á milli tveggja báta. Bryggjan morar af fólki og all- ir vilja taka á móti fangalín- unum og spyrja um aflann. Síðan er gert klárt undir löndunina og ég skrepp upp í Skýli til að hringja á bíl. Halló miðstöð. Já takk. Geturðu gefið mér vörubíla- stöðina? Vörubílastöðin. Okkur vantar bíl að Skúla inní Friðarhöfn. Löndunin gekk eins og i sögu. Við vorum lausir kl. tíu. Átta stunda hvíld framundan. Þeir sem guðirnir elska Ný bók eítxr Indriða G. Þonteinsson Þeir sem guöirnir elska nefnist nýtt smásagnasafn eftir Indriöa G. Þorsteinsson, er frægur varð fyrir sögu sína 79 af stöðinni. f þessu nýja smásagnasafni eru 10 stuttar sögur og heitar þær: Á friðartímum, Hreppapólitík, í fásúminu, Þeir sem guðirnir elska, Heiður landsins, Gömul saga, í björtu veðri, Eftir stríð, Norðanlands og Að enduðum löngum degi. Þessar smásögur virðast fljótt á litið hafa sörriu megineinkenni og sagan 79 af stöðinni, hraðan knappan stíl, stuttar setningar, er segir þó mikið og gefur meira í skyn og gefur því lesendum tækifæri til að sjá að eigin vild það sem lesa má milli línanna. — Margir telja Indriða G. Þor- steinsson efnilegastan yngstu skáldsagnahöfunda íslenzkra. Bókin er 124 bls. Útgefandi er Þrídröngum, að austan, er stórt Iðunnarútgáfan. V Indriði G. Þorsteinsson

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.