Nýi tíminn - 16.05.1957, Blaðsíða 5
• Fimmtudagur 16. mai 1957 — NÝI TÍMINN — <5
50.000 með krabbamein af
völdum vetnissprenginga?
Tilgáta brezkra visindamanna i skýrslu
um hcettuna af geislavirku strontium
Það má gera rá'ð fyrir, áð allt að þvi 50.000 menn
knnni nú þegar að hafa fengiö krabbamein í beinum,
sem stafar beinlínis af þeim vetnissprengjum, sem hafa
verið sprengdar.
Frá þessu er sagt í skýrslu
saminni af nefnd, sem samband
brezkra vísindamanna skipaði.
Skýrslan var birt í síðasta mán-
uði.
Höfundar skýrslunnar leggja
að vísu áherzlu á, að hér sé að-
eins um tilgátu að ræða og að
þessi niðurstaða fáist, ef gert
sé ráð fyrir hinu versta. Hins
vegar kemur það ljóst fram í
skýrslunni, að slíkur möguleiki
er fullkomlega fyrir hendi.
F>arf minnsta skammt?
Það má stilla dæminu þannig
Lionel S. Penrose, sem er próf-
essor i erfðafræði við háskól-
ann í London.
Berst með fæðuimi
Það eitt er með öllu vist,
segja hinir brezku vísindamenn,
að hið geislávirka strontium 90
berst í líkama okkar með fæð-
unni og safnast saman í bein-
unum, þar sem það geymist
lengi.
Vetnissprengja. af þeirri gerð
sem sprengd var á Bikini 1954
ætti að geta valdið krabbameini
í 1009 mönnum fyrir hvert
upp, segja hinir brezku vísinda- j megatonn sem sprengt hefur
menn: Stendur krabbamein í
beinum í réttu hlutfalli við
geislaverkunarmagnið í stronti-
um 90, sem myndast við vetn-
issprengingar, eða þarf minnsta
skarnmt af geislaverkunum
þessa efnis til að krabbamein
verði?
Kannski of lág tala
Þessu getur enginn svarað
með vissu og mjög erfitt er að
komast að svarinu með tilraun-
um. En ef ekki þarf að gera
ráð fyrir neinum minnsta
skammti, þá er talan 50.000 „ef
til vill of lág, þar sem í henni
er gert ráð fyrir geislaverkun-
arskammti sem börri hafa feng-
ið“ — en böm eru miklu mót-
tækilegri fyrir honum.
Meðal þeirra tíu vísinda-
manna sem samið hafa þessa
skýrslu em Joseph Rotblat,
sem er eð.lisfræðiprófessor við
háskólann í London, forstjóri
krahbameinsstofnunarinnar,
prófessor Alexander Hadow, og
Crabb sagður
vera enn á lífi
Brezki froskmaðurinn, Lionel
Crabb, sem hvarf á dularfullan
hátt í Portsmouth í fyrra, þeg-
ar sovézku herskipin sem fluttu
þá Búlganín og Krústjoff til
Bretlands vom þar í höfninni,
er enn á lífi og dvelst í Sovét-
ríkjunum.
Vikublað brezkra samvinnu-
manna, Reynolds News, sagði
þetta á sunnudaginn var. Blað-
ið segist hafa þessa frétt frá
háttsettum embættismanni í
brezku utanríkisþjónustunni og
hefur eftir honum: „Við erum
þvi fegnir að Crabb beið ekki
bana þegar hann kafaði undir
rússnesku omstuskipin. Við
höfum góða ástæðu til að ætla
að hann hafi verið tekinn um
borð í eitthvert rússneska skip-
ið og sé nú hafður í haldi ein-
hvers staðar í Rússlandi”.
verið, og upplýst hefur verið að
samanlagður sprengimáttur
Jfeirra vetnissprenginga sem
hafa verið gerðár nemi 50
megatonnum. (Megatonn sam-
svarar sprengimætti milljón
lesta af TNT-sprengiefni).
Það er ekki hægt að gera
greinarmun á þeim sjúklingnm
sem tekið hafa krabbamein
vegna vetnissprenginganna og
þeim sem fengið hafa hann
vegna eðlilegrar geislaverkun-
ar, segja vísindamennirnir.
Þeir telja að þegar vetnis-
sprengja er sprengd hátt í lofti
yfir óbyggðum séu litlar líkur
á, að tjón verði á mönnum inn-
an skamms tíma eða veruleg
geislaverkunareitmn verði á
hafsvæðum, og skiptir þá ekki
máli, hvort mikið eða lítið
magn af geislaverkunum mynd-
ast við sprenginguna.
Þessi geislaverkun berst hins
vegar upp í háloftin, dreifist
þaðan yfir allan hnöttinn og
fellur smám saman til jarðar á
möi’gum árum. „Þá verða að-
eins eftir þau efni sem gejnna
geislaverkunina lengi, og það
em verkanir þeirra sem við
fjöllum um“, er sagt í skýrsl-
unni.
Pramhald á 11. siðu.
Mvrdal lætur af embætti
framkvæmdastjóra ECE
Gunnar Myrdal, sem verið hefur framkvæmdastjóri
Efnahagsnefndar SÞ í Evrópu (ECE) undanfarin tíu ár,
hefur nú látið af því starfi. Síðasta verk hans var að
setja 10. ársfund nefndarinnar í Genf fyrir nokkrum
dögum.
t setningarræðu sinni sagði
Gunnar Myrda.1 m.a.:
„Hið versnandi ástand í al-
þjóðamálum á undanförnum ár-
um og samkomulagsleysi ríkj-
anna um lausn hinna miklu
pólitísku vandamála hefur að
sjálfsögðu varpað dimmum
skugga yfir það starf sem við
reynum að vinna“.
En Myrdal tók samt fram að
Efnahagsnefndin hefði vissu-
lega komið mörgu góðu til leið-
ar, enda þótt skipting Evrópu
í tvo hluta torveldi enn
starf hennar. Hann taldi það
fagnaðarefni að nefndin er nú
sannkölluð evrópsk stofnun, en
ekki aðeins vettvangur ríkjanna
í Vestur-Evrópu.
— Þessi tíu ár, sagði Myrdaí,
hefur skipting Evrópu orðið
stöðugt varanlegri. Það sem
talið var óeðlilegt fyrir tíu ár-
um, er nú flestum sjálfsagður
hlutur. Þeir verða stöðugt færri
sem hugsa sér Evrópu sem eina
heild, en hinir stöðugt fleiri
sem eiga aðeins við sinn hluta
álfunnar, þegar þeir tala um
Evrópu.
1 lok ræðu sinnar sagði Myr-
dal, að stofnanir eins og Efna-
hagnefndin hefðu þrátt fyrir
* >
fáránlegar pólitískar skorður
sem þeim væru settar geiað
fundið grundvöll til jákvaAs
GUNNAR MYRDAL
starfs að alþjóðlegri samvinnt*
í efnahagsmálum.
Myrdal hefur tekizt á hendur
skýrslugerð um efnahagsástaríd
og möguleika í Suðaustur-Asíu1
sem kostuð er af bandarískum
sjóði. Eftirmaður hans s< tn
framkvæmdastjóri ECE ér
finnski bankastjórinn Tuo-
mioja.
HafiS eftirSit mei
verkunum í
Bandarisk heilbrigSisyfirvöld vi&urkenna
i verki hœttuna af vetnissprengingum
Heilbrigðisyfirvöld í Bandaiíkjunum hafa ákveðið aö
taka upp stöðugt eftirlit með geislaverkunum í mjólk.
Ástæðan er sú að menn óttast að híö hættulega efni
strontium 90 berist í líkama manna meö mjólk.
Herniaður úr liðl SÞ (t. h.) horflr á hópgöngu í Ghaza. Á spjöldunum
er Nasser EgyptaJandsforseti hylltur en Mollet og Ben Gurion beðnir
aidrei þrífast. Sem stendur er verið að skipta um rneim í gæzluliðs-
sveitunum frá Norðurlöndum, en þær hafast ílestar við á
Ghazanemimui.
Það er vitað að strontium 90
breiðist út yfir jörðina eftir
hverja kjamorkusprengingu.
Það safnast fyrir í grasi óg
öðru fóðri kúa og getur þaðan
borizt með mjólk í líkama
manna. New York Tinies skýrði
14. apríl sl. frá eftirlitinu með
strontiuminnihaldi mjólkur í
Bandaríkjunum:
„Heilbrigðismálastjómin ætl-
ar að koma upp fimm eftirlits-
stöðvum í landinu til að fylgj-
nsl: með geislaverkunum í
mi''Ik. Fyrstu sýnisliornin af
r-^ólk, sem rannsökuð verða,
komu til eftirlitsstöðvar heil-
brigðisstjóraarinnar i Cincinn-
ati í síðasta mánuði.
Eftirlitssvæðin munu verða
níu liérað í miðhluta Kaliforníu
í nágrenni Sacramento, fjögur
héruð í Utah, fyrir sunnan
Saltvatnið, átta hérað sunnar-
lega í miðhluta Missouri, eitt
svæði í Ohio fyrir norðaustan
Cincinnati og eitt svæði í New
York-fylki“.
Bandaríska heilbrigðisstjórn-
in áhyggjufull
Fréttaritari New York Times
í Washington, John W. Finney,
segir um ástæðuna til þessarar
ákvörðunar:
„Heilbrigðisstjórnin segir í
skýrslu um hið nýja eftirlit með
geislaverkunum í mjólk, að
geislaverkunareitrun mjóikur
valdi henni áhyggjum végha
þéss hve mjóíkin sé mikilvægur
þáttur í næringu manna . . .“
„Akveðið magn af geislaverk-
un er að sjálfsögðu í ailri mjólk
og stafar frá geislavirku kalí-
umi. En heilbrigðisstjórnin seg-
ir:
„Við verðum að gera okkur
vel Ijóst, að geislaverkunin hef-
ur vaxið nokkuð síðan fyrsta
kjarnorkutilraunin var gerð“.
Það sem máli skiptir, segir liún,
er hve mjög geisíaverkunin hafi
aukizt, sérstaklega sú sem staf-
ar frá strontium 90 og cesium
137, en það er annað geislavirkt
efni, sem myndast við kjarn-
orkusprengingar".
Bandarískir visindamenn fara
heldur ekki dult með að vax-
andi geislaverkun í neyzluvatni
sé mönnum hættuleg, og þess
vegna fara nú fram reglu-
bundnar athuganir á henni.
Svipaðar athuganir eru einnig
gerðar á geislaverkunum í skel-
dýram.
Nú er verið að koma upp til
bráðabirgða 150 eftirlitsstöðv-i
um við fljót og ár í Bandarikji
unum og þeim verður fj :gð«5
síðar.
Nvr maður í eruí
æðsta embætti í.
Sovétríkjiimiiii
46 ára gamall verkfræði. (ur,
Jósef Kúmsín, hefur verið kip-
aður í eitt valdamesta em ettl
Sovétríkjanna. Hann vtuðuri
formaður áætlunarnefndar ríku
isins, Gosplan, og jafnframíi
varaforsætisráðherra og tekuS
þannig við embættum þeim sevd
Pervúkín hafði áður.
Áætlunarnefndin á að ann*
ast framkvæmd hinna stórf 11 dh
breytinga sem gerðar ver a ás
skipulagi iðuaðarins í Scvét*
ríkjunum á næstu mánuðum.
Kúmsín er lítt kunnur tari
Sovétríkjanna. Hann fæddi.ít (
Leníngrad árið 1910, var vcrk-»
smiðjuverkamaður, en vegna,
frábærra hæfileika var banns
sendur á verkfræðingaskóla nn !
Leningrad, og vann síðan sexn
verkfræðingur í Moskva. Síð-*
ustu 16 árin hefur hann gegntj
ýmsum trúnaðarstöðum i verka-*
lýðshreyfingunni, flokknum og
stjórnarkerfinu.