Nýi tíminn - 21.05.1959, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 21. maí 1959 — NÝI TÍMINN — (3
Það er sannarlega einstæð
og furðuleg rkisstjórn, sem
við höfum haft á íslandi síð-
an á Þorláksmessu. Til skýr-
ingar á fyrirbærinu koma mér
helzt í hug orð gamla testa-
mentisins: „Köddin er Jakobs,
en hendurnar Esaús“. — Þessi
orð voru sem kunnugt er,
sögð í sambandi við fúlmann-
leg svik. Frumburðarréttinum
skyldi náð með svikum. Víkj-
um aftur að hæstvirtri ríkis-
stjórn: Köddin er Emils og
Alþýðuflokksins, en hendurn-
og liandaverkin eru sannar-
lega íhaldsins. — Loðin loppa
íhaldsins var vissulega að
verki, þegar lækkað var ný-
umsamið fiskverð til sjó-
manna — þegar ráðizt var á
kaup verkafólks og það lækk-
að um 13.4%, þegar ráðizt
er á orlofslögin og reynt að
eyðileggja þau undir fölsku
yfirskini sparnaðar, þegar út-
varpið undir tvívaldarði yfir-
stjórn Alþýðuflokksins beitti
Alþýðusamtökin fáheyrðu
ranglæti 1. inaí síðastliðinn,
þegar lækkuð voru framlög til
verkamannabústaða og til út-
rýmingar heilsuspillandi hús-
næðis, þegar fellt er niður
framlag til lamaðra og falt-
aðra, þegar skorin eru niður
framlög til verklegra fram-
kvæmda og fjárveiting til at-
vinnu- og framleiðslubóta
stóriækkuð. — Og þannig
mætti lengi telja.
I öllu þessu þekkjum við
loðna loppu Esaús — íhalds-
ins, — En röddin er Jakobs.
Alþýðuflokkurinn er látinn
túlka þetta allt saman fyrir
þjóðinni og sérstaklega fyrir
alþýðu manna. I því liggja
ljótu svikin, eins og í bíblíu-
sögunni. Og þá var komið að
frumburðarréttinum, þegar
ráðizt var á he’gasta rétt
verkalýðsfélaganna, samnings-
réttinn. — Ég held að varla
sé unnt að túlka sannar eða
betur, hvilíkt alvörumál og
stórmál liér er á ferðum fyrir
verkalýðshreyfinguna, en með
orðum háttv. 8 landkjörins
þingmanns, Björns Jónssonar,
formanns Verkamannafélags
Akureyrarkaupstaðar. En
hann hann hefur nýlega sagt:
„Þegar slíkt athæfi er i
frammi haft af flokki, sem í
öndverðu taldi það sína helg-
ustu skyldu og stefnumál að
berjast fyrir sjálfsákvörðun-
arrétti verkalýðshreyfingar-
innar og frelsi hennar til á-
kvarðana um lífskjör alþýð-
unnar. — Þá hljóta menn að
staldra við og spyrja: Hvert
er þá orðið okkar starf öll
þessi baráttuár, ef það er uú
orðið helzta bjargræðið að
kippa sjálfum grundvellinum
undan verkalýðshreyfingunni
með því að afnema samn-
ingsréttinn — réttinn, sem
brautryðjendumir unnu stétt
okkar með svo miklu erfiði og
fórnum. Er þá ekki sjálfgert
að næsta skrefið geti orðið
það að Ieggja verkalýðsfélög-
in hreinlega niður með lögum.
Því að hvers virði eru þau,
ef launakjörin eiga að ákveð-
ast af löggjafarvaldinu, hve-
nær sem því þóknast“.
Þessi orð Bjöms Jónssonar,
sýna okkur alvöru málsins:
Verkalýðsfélög án samnings-
réttar eru ekki mikils virði
né mikils megnug. En í þessu
ráni frumburðarréttar var
flokkur alþýðunnar samt að
verki, knúinn áfram af stjórn-
anda sínum, íhaldinu. Það er
hin hörmulega staðreynd:
Köddin var Jakobs — en
hendurnar Esaús.
Mjög hefur verið reynt að
fá launastéttimar til að
sætta eig við kaupránið með
því að telja þeim trú um, að
þær væru að taka þátt í al-
mennri þjóðarfóni á örlaga-
stundu. Og þess vegna bæri
þeim að sætta sig við það
möglunarlaust. En hér er
mikil blekking á ferðum. Hvað
hefur gerzt með kauplækkun-
inni? Þetta eitt, að verkamað-
urinn, sem vinnur t.d. í Kóka-
kólaverksmiðju Björns Ólafs-
eonar skilur eftir 7—8 hundr-
uð krónur af áður umsömdu
kaupi sínu í kassa hans. Séu
þeir 50, verkamennirnir, sem
þetta gera, er fúlgan sem
verður eftir í kassa Björas
um hver mánaðamót 35—10
þúsund krónur, eða 420—
480.000 á einu ári. En hverju
er þjóðfélagið bættara við
þessa tilfærslu tekna úr vasa
verkamaimsins í vasa Björns?
Því getur víst enginn svarað.
— Eða tökum banka með 100
manna starfslið. Laun hvers
starfsmanns hafa a.m.k. lækk-
að um 900—1000 krónur á
mánuði að meðaltali. Þarna
hefur mánaðarlega verið fært
úr vasa Iaunafólksins yí'ir í
kassa bankans 90—100 þús-
und krónur. En á einu ári
er þetta ein milljón og átta-
tíu þúsund til ein milljón og
tvö hundruð þúsund krónur.
— Nú, og þjóðfélagið? Á-
reiðanlega engu bættara. —
Ekki hafa menn heyrt um
vaxtalækkun. Hinsvegar eru
meiri líkur fyrir auknum út-
lánum, eða aukinni fjárfest-
ingú — og þáð þýðir aukna
verðbólgu. — Það er ekki
hægt að bugsa sér meiri fjar-
stæðu, en að halda því fram
að 4000 króna mánaðarkaup
verkamannsins sé undirrót
verðbólgunnar og stofni þjóð-
félaginu í hættu. — Og nú
hefur reynslan líka gefið sitt
svar. Kaupið hefur verið
lækkað, en verðbólguþróunin
hefur aldrei verið örari. Þarna
er greinilega ekkert sam-
band á milli. Grófari ósann-
induin hefur aldrei verið beitt,
en þegar Alþýðublaðið og Al-
þýðuflokksmenn eru að dá-
sama íhaldsstjórn Alþýðu-
flokksins fyrir að hafa ráðið
niðurlögum verðbólgu og dýr-
tíðar. Fjárlög eru afgreidd
með raunverulegum halla, Út-
flutningssjóður verður með
stórfelldum halla. Fjárútveg-
un vegna niðurgreiðslanna er
6legið á frest fram yfir tvenn-
ar kosningar. — Allt eykur
þetta hraða verðbólguhjólsins,
en stöðvar það ekki.
Svokölluð niðurfærsluleið
Alþýðuflokksins, er einhliða
kauplækltunarleið. Hún er því
miður jafnframt verðbólgu-
leið. Og dýrtíðin vex líka
hröðum skrefum. Enginn get-
ur nefnt vörur, sem lækkað
hafa í verði, nema niður-
greiddu vörurnar, og þá lækk-
un á fólkið sjálft eftir að
borga að fullu. En menn vita
hins vegar að fasteignagjöld
hafa verið hækkuð, að húsa-
leiga -er á uppleið af þeim
sökum, að benzín hefur hækk-
að, að rafmagn hefur ’ hækk-
að, að tóbak og áfengi hafa
verið hækkuð í verði, að egg
hafa verið hækkuð stórlega og
margar fleiri vörur.
Það er hvimleiður skolli,
þegar skrá fer í baklás. En
nú hefur verra óhapp orðið:
Verkalýðsflokkur hefur hrokk-
ið í baklás. Það er Alþýðu-
flokkurinn. Og þessi bilun
hans kemur fram í því, að
hann rekur nú í einu og öllu
öfuga verkalýðsmálapólitík.
Á sama tíma og margir
tugir milljóna eru með þess-
ari alþýðuflokkspólitík teknir
úr vösum verkafólks og ann-
arra launþega og færðir yfir
í fjárhirzlur atvinnurekenda,
eru útgerðarmönnum auk
þess réttar 80 milljónir króna,
og enn til viðbótar gefnir
nokkrir milljónatugir i þurra-
fúalánum, án alls tillits til
þess hvort þeir eru örsnauðir
eða meðal auðugustu manna
þjóðarinnar, eins og sumir
þeirra era.
Það er þetta hróplega mis-
rétti, þetta ranglæti, sem
verkalýðurinn á verst með að
þola.
Gióiasta iölsun
Hæstvirtur fjármálaráðherra,
Guðmundur í. Guðmundsson,
las í gærkvöld langan kafla
úr grein minni, er birtist í
Vinnunni í nóvember í haust.
Vildi hann, eins og hæstvirt-
ur menntamálaráðherra í
vetur láta líta svo út, sem
tillögur mínar væru grund-
völlur núverandi stjórnar-
stefnu. Eftir þeim hefði verið
farið í einu og öllu, skildist
manni. — Þetta er liin gróf-
asta fölsun.
Ég ræddi í nefndri grein
um verðbólguþróunina, sem
væri leið til glötunar. Hana
sagði ég að yrði að stöðva og
er það í samræmi við marg-
yfirlýsta stefnu verkalýðs-
samtakanna. —- En ekkert
hefur verið gert til þess. Ég
sagði, að byrðunum yrði nú
að deila á allra bök. Það er
nú eitthvað annað, en að svo
liafi verið gert, eins og þegar
hefur verið sýnt fram á. —
Ég sagði að framleiðslan ætti
og gæti tekið á sig nokkurn
hluta byrðarinnar. Það var
ekki gert. Heldur voru margir
milljónatugir færðir úr vösum
Iaun]iega, til atvinnurekenda
og myndarlegir gjafapinklar
lagðir þar ofaná. Ég taldi
samdrátt nauðsynlegan í rík-
isrekstrinum. Framkvæmdin
varð þriðjungs hækkun á út-
gjöldum fjárlaga. Ég taldi
lækkun álagningar sjálfsagða.
Hún hefur orðið heldur lítil-
væg saman borið við kaup-
lækkunina. Ég taldi, að sveit-
arfélög og einstaklingar ættu
að draga nokkuð úr fjárfest-
ingu. Ekki veit ég til, að
neinar ráðstafanir hafi verið
gerðar til þess. Og að lok-
um taldi ég, að ef bændur
læklíuðu framleiðsluvörur sín-
ar, án niðurgreiðslna, þá bæri
verkamönnum að svara því
með niðurfellingu nokkurra
vísitölustiga af kaupi sinu. —
Allt þetta er ég reiðubúinn
að standa við enn í dag. —
Ég lauk grein minni í Vinn-
unni með þessum orðum:
„Takmarkið með öllu þessu
á að vera það, að kaupgjald
og verðlag nemi staðar, þar
sem það nú er — þ.e. 185
vísitölustig svö að atvinnulíf-
ið geti haldið áfram án nýrr-
ar tekjuöflunar eftir þessa að-
gerð — og þjóðartekjurnar
geti haldið áfram að vaxa,
eins og þær gerðu á þessu
ári (1958). Og það er raunar
það eina, sem tryggt getur
varanlegar kjarabætur“.
Eins og af þessum seinustu
orðum sést, lagði ég aldrei tii,
að 10 vísitölustig væru auk
alls annars skorin niður bóta-
laust og þannig farið með
vísitöluna niður í 175 stig. —
Þar með er fölsunin á mínum
tillögum fullkomnuð. Þessir
herrar geta því hvorki sannað
á mig skoðanaskipti, með til-
vitnun í þessa grein, né held-
ur lialdið því fram, að eftir
mínum tillögum hafi verið far-
ið. — Við þetta vil ég svo
einungis bæta því, að Alþýðu-
sambandsþing bauð að styðja
stöðvanaaðgerðir í efnahags-
máluin miðað við 185 vísitölu-
stig. En á það var ekki hlust-
að, lieldur rokið í stjórnar-
slit án þess að reyndar væru
nokkrar samkomulagsleiðir
um tillögur stjórnarflokkanna.
Hin sanna ás!æða til
stjómarslitanna
Það eitt er yíst, að ástæðan
til stjórnarslitanna var ekki'
neitun alþýðusambandsþings
á frestun 17 vísitölustiga um
einn mánuð. — Ekki heldur
smávægilegur varjli efnahags-
málanna, sem leysa þurfti.
Ástæðan var sú, að Fram-
sóknarmenn gerðu sér nú
fyrst ljóst, að Hræðslubanda-
lagið var dautt. Að Alþýðu-
flokkurinn var genginn úr
írainsóknarvistinni og búinn
að gera varanlegan lvjúskapar-
sáttmála við íhaldið. — Þetta
var ástæðan.
Að þessu uppgötvuðu, var
það mat Framsóknarmanna,
að nú væri gott að standa
upp. — Rekstur atvinnuveg-
anna stæði með miklum
blóma. Atvinnuleysi ekki til.
Fólksflóttinn til suðvestur-
landsins stöðvaður. Mikið
dregið úr* hernámsvinnu.
Gjaldeyristekjur vegna auk-
innar útflutningsframleiðslu
200 milljónum króna meiri, en
árið áður. Fjárhagur ríkis-
sjóðs með miklum blóma
o.s.frv. Og svo væri gott að
knýja Sjálfstæðisflokkinn til
þess FYRIR KOSNINGAR að
sýna úrræði sín í efnahags-
málum.
Það er sannfæring mín, að
þetta var ástæðan til stjórnar-
slitanna í haust. — Hvernig
Alþýðuflokkurinn og Fram-
sóknarflokkurinn vilja svo
deila með sér sökinni af að
bregðast þannig málstað
vinstri sinnaðra manna í
landinu, er algerlega þeirra
mál. En aldrei verður það af
þeim skafið, að þeir og engir
aðrir eru sekir um stjórnar-
slitin. Gegn þessum flokkum
ber því vinstra sinnuðu fólki
að snúa reiði sinni og hegna
þeim út af stjórnarrofinu. Hitt
er rétt, að síðar — er Sjálf-
stæðisflokkurinn liafði gefizt
upp á stjórnarmyndun reynd-
ist Framsókn fús til að taka
upp þráðinn á ný. En þá var
Alþýðuflokkurinn fyrir löngu
orðinn drepinn í þann íhalds-
dróma, sem honum var langt
um megn að slíta.
Landhelgismálið
Langstærsta málið, sem
vinstri stjóminni auðnaðist að
Framhald á 9 . síðu.
Röddin Alþýðuflokksins
- hendurnar íhaldsins
BB—B—■ II llI I llllllll.Illlll 1111
(■ Úr útvarpsræðu Hannibals Valdimars-
sonar 12. maí 1959