Nýi tíminn


Nýi tíminn - 21.05.1959, Blaðsíða 10

Nýi tíminn - 21.05.1959, Blaðsíða 10
2) — CSKASTUNDIN Hér sjáið þið mynd af 1 er gamalt og einnig hvað viðarhöggsmanni, sem er viðarhöggsmaðurinn að fella tré. Þið eigið að heitir. geta fundið út hvað tréð 1 Þóra Pétursdóttir, Nóatúni 18, Reykjavík. 4. flokkur 10 ára: Þorlákur Helgi Helgas., Nökkvavogi 21, R.vík. Ragnhildur Torfadóttir Árbæjarbl., Reykjavík. 5. flokkur 11 ára: Ásdís B. Jónsdóttir, Dilksnesi, Hornafirði. Helga Magnúsdóttir, Björk, Reykholtsdal, Borgarfirði. 6. flokkur 12 ára: Ólafía Sveinsdóttir, Breiðagerði 7, R.vík. Sigrún Sveinbjörnsd., Kleppsveg 24, R.vík. Skriftarsamkeppnin Framh. af 1. siðu lega ekki eins æfð i skrift, en þetta er bara kjánaskapur úr þeim því að við berum saman hvern aldursflokk fyrir sig. f þetta sinn skrifuðu flest 9 ára börnin svo vel að varla mátti í milli sjá hver var toeztur þá má geta þess að Selma Guðmundsd. sem fær verðlaun í 8 ára flokki skrifar svo vel að fullorðnir gætu öfundað hana. Langflestir þátttakend- ur voru Reykvkingar 16 að tölu, næstur kemur Borgarfjörður með 5, þá Síða í Skaftafellssýslu með 4 og loks Fnjóska- dalur með 3, hinir dreif- ast um landið 1 og 2 a stað. Vesturland átti langflesta þátttakendur 23, næst Norðurland með 10, þá Suðurland með 8 og Austurland með 5. Austfirðingar eru eins , og þeir eru vanir latast- ir að skrifa okkur, þeir ættu að bæta ráð sitt. Hér er skrá • yfir þá, sem verðlaun fá; 2. flokkur 8 ára: Selma Guðmundsdóttir Fjarðarstr. 9, ísafirði. Lilja Þorvaldsdóttir, Narfastöðum, Mela- sveit, Borgarfirði. 3. flokkur 9 ára: Þorvaldur Helgason, i Nökkvavogi 21, R.vik. 7. flokkur 13 ára: Þorsteinn Helgason, Nökkvavogi 21, R.vík. Dómhildur Lilja Ol- geirsdóttir, Vatnsleysu, Fnjóskadai, S.-Þing. 8. fIokkur 14 og 15 ára: Ásdís Hartmarsdóttir, Ólafsvegi 6, Ólafsfirði Hildigerður Skaftad., Sjónarhóli, Hornafirði. Verðlaunin verðá póst- lögð strax eftir .hvíta- sunnu. Við þökkum öll- um, sem tóku þátt í keppninni og vonum að þeir sem ekki fengu verðlaun hafi líka gaman af henni. Loks langar okkur að biðja ykkur að skrifa og koma með til- lögur um nýja sam- keppni fyrir haustið. 'ÓSKASTUNDIN — (3 „Eg er hræddut um,; að allar fréttir verði ekki góðar á morgun," sagði pabbi. Hann átti við snjó- flóð. Þegar við vorum að borða um kvöldið, heyrð- um við þunga dynki, sem komu nær og nær. Húsið lék á reiðiskjálfi. Snjóflóð hafði runnið úr Stóruskriðu. Við þekktum það á hljóðinu. Næst brauzt það fram í Breiðuskriðu, og svo komu þau hvert af öðru. Þar til dynkimir runnu saman í ægilega háreysti. Eg var orðinn syfjaður og fór að hátta. Full- orðna fólkið vakti. Það síðasta sem ég vissi, var það, að móðir mín sat með sálmabókina og söng. Eg vaknaði við, að ég var dreginn upp úr rúm- inu og borihn burt. En ég áttaði mig ekki fyrr en niðri í kjallara. Þar stóðu pabbi og mamma og allt heimilisfólkið hálfklætt á blautu gólf- Ínu. Það hafði fallið skriða rétt vestan við bæinn og hver vissi, hvaða leið sú næsta færi? Það var hljótt í kjall- aranum það sem eftir var nætur. En þegar birti gengum við upp í etofuna. Skemmdirnar voru miklar. Smiðjan var al. veg horfin. Þakið rifið af fjósinu og mikið af þak- fnu á íbúðarhúsinu. Stormurinn reif og tætti tróð og þyrlaði því Jangar leiðir í burtu. Þegar leið að hádegi, kom Kölbeinn á Hóli og sagði þær fréttir að énjóflóðið hefði farið yf- ir kofana á Haugi, og menn vissu ekki betur hvað í snjónum, Það var treyjubarmur með 6tór- um, gljáandi hnöppum. Þessa flík hefði ég þekkt, hvar sem var. Það var gamla treyjan nún: Eg rak upp hljóð og hljóp burt, eins hratt og ég komst, en hnén skulfut undir mér. PER S.IVLE- FLÖKKU- STRÁKURINN O. G. þýddj en Nils hefði verið heima. Eg sat hreyfing- arlaus og fann magnleysi streyma um allan líkam- ann. Nágrannamir fóru heim að Haugi, einn og tveir menn frá hverjum bæ, með skóflur á öxlunum. Eg fór með. Bærinn á Haugi sást hvergi, en einstöku spýt- ur voru hér og þar í snjónum á leiðinni upp brekkuna. Mennimir fóru að - grafa, þar sem þeir héldu, að bærinn hefði staðið. Þeir komu lika niður á réttum stað og fundu tóftina. Síðan tóku þeir til að grafa hér og þar. Eg fylgdist með Salomon, vinnu- manninum okkar. Hann gróf og gróf. Og allt í einu glitti í eitt- „Hér er hann, piltar!11- kallaði Salomon. Þeir lögðu hann á fjóra. birkistaura og báru hann af stað. Lárus á Sáms- stöðum sagaði sundur fáein borð og sló saman kistu. Líkið vax svo- skaðað, að það var ekki afklætt, en kistulagt samstundis. Gömlu fötin mln urðu líkklæðin hans. Hann var jarðsunginn á þriðja í páskum. Nú hvíldi Flökku-Nils í friði. ENDIR Jón; ég get þetta ekk’i. Mamma: Það á aldrex að segja, ég get ekki. Allt er mögulegt ef þú bara reynir. Jón: Allt í lagi mamma settu þá tannkremið aft- ur í túpuna. 10) — NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 21. maí 1959 — Verður komizt hjá afskiptum... ? Framhald af 7. síðu hringar hefðu myndazt, sem réðu verðlagningu framleiðslu sinnar, — enda var svo kom- ið í lok 19. aldar, að í stærstu iðngreinunum var það frem- ur regla en undantekning, að framleiðslan væri í höndum fárra stórra risafyrirtækja. Þar með var ek'ki lengur fyr- ir hendi skilyrði þess, að hagsmunir atvinnurekenda og þjóðarheildarinnar færu sam- an samkvæmt kenningakerfi frjálsrar samkeppni. Þótt reynslan sé ólýgin og gagnrýnin á kenningakerfi laissez-faire stefnunnar væri stutt gildum rökum, létu há- skólakennarar í hagfræði hana að mestu leyti sem vind um eyru þjóta. Allflestir hagfræð ■ ingar tóku í starfi sínu lítið tillit til hennar. En kreppan mikla, sem skall á 1929, reið því loks að fullu. Gullfóturinn valt í kreppunni. Sala er- lends gjaldeyris og viðskipti við önnur lönd var í allflest- um löndum sett undir eftirlit stjór :arvaldanna. Framleiðsla í flestum löndum dróst sam- an og mikill hluti vinnu- færra manna gekk auðum höndum. Til þess að vinna bug á þessu ástandi hóf rík- ið í allf’est :m löndum aðgerð- ir til að auka framleiðsluna og draga úr atvinnuleysi. ítík- ið varð þannig virkur þátttak- andi 'í atvinnulífinu. Um leið var seðlatoönkum í mörgum löndum falið að hafa nánara samstarf við ríkisstjórnir landa sinna en venja hafði verið áður. Ríkið hlutaðist jafnvel til um, að sumir at- vinnuvegir fengju forgöngu um lán til rekstrar og fjár- festingar. Kenningakerfi stefnu frjálsr- ar samkeppni var þannig ekki lengur í samræmi við þá stefnu i efnahagsmálum, sem ríkisstjómir allflestra landa höfou viljugar nauðugar tekið upp. Kenningakerfið svaraði ekki lengur þörfum tímans. Þegar Keynes hófst handa um endurnýjun kenningakerfis ensku hagfræðinnar, komst hann svo að orði: ,,En þótt rétttrúaðir hagfræðingar hafi til skamms tíma ekki efazt um kenningakerfið, hefur það smám smana dregið úr á- liti þeirra, sem byggðu at- vinnu s'ína á því, hve mjög vantaði á, að samkvæmt því yrði sagt vísindalega fyrir um hlutina. Hagfræðingar eftir daga Malthusar virtust ekki láta það á sig fá, hve mikið misræmi var milli for- sagnar kenningar þeirra og þeirra staðreynda, sem tekn- ar vom til athugunar, — misræmi, sem leikmenn voru ekki seinir að taka eftir með þeim afleiðingum, að þeir urðu æ ófúsari til að sýna hagfræðingum þá virðingu, sem sýnd er öðrum vísinda- legum starfsstéttum, sem sýna, að staðreyndirnar stað- festa kenningar þeirra.“ IV. 1 kenningakerfi Keynes, sem nú hefur víðast hvar leyst af hólmi klassisku og ný- klassisku ensku hagfræðina, eru grundvallarþættirnir þess- ir; Tekjuskipting í nútíma- þjóðfélögum er ójöfn. Til- hneiging skapast til að eftir- spurn eftir varningi verði minni en svarar til fram-i leiðslugetu atvinnuveganna. Þeir, sem gjarnan vilja kaupa meiri varning, hafa ekki efni á því, en hinir, sem peninga eiga, nota ekki allar tekjur sínar til neyzlu, heldur leggja hluta þeirra til hliðar, safna. Þegar næg eftirspurn er eft- ir fjárfestingarvörum (til húsasmíða, véla, flutninga- tækja, aukningar vömbirgða) kemur spariféð að notum og hagkerfið starfar vel. Að hinu ber þó að gæta, að spari- fjármyndunin skapar ekki 'í sjálfu sér eftirspurn eftir jfjárfestingarvörum. Þvert. á móti er hætt við, að sparnað- ur dragi úr eftirspum eftir neyzluvörum með þeim af- leiðingum, að eftirspurn eftir f járfestingarvörum dregst líka saman. Langvarandi atvinnu- leg blómaskeið er nátengd nægum tækifæmm til arðvæn-i legrar fjárfestingar. En at- vinnuleg blómaskeið em ekki hið venjulega ástand hins kapitalistiska hagkerfis. Sjálf fjármunamyndunin, sem eyk- ur á auðæfi þjóðfélagsins, eykur í senn á tilhneiginguna til sparnaðar og dregur úr tækifærunum til arðvænlegrar fjárfestingar, þ.e. torveldar á- framhald hins atvinnulega blómaskeiðs.“ 1 keuningakerfi sínu gerir Keynes þannig ekki ráð fyrir, að grundvallarsam- ræmis gæti í atvinnulífinu. Þvert á móti telur hann þörf á, að ríkið hlutist til um at- vinnulífið til þess að ekki komi til samdráttar. Hann kaus, að ríkið hlutaðist til um atvinnulífið fyrir atbeina stefnunnar í peningamálum, en ekki yrði gripið til annarra ráða, fyrr en sýnt væri, að hún dygði ekki til að ná til- skildum árangri. Ár þau, sem liðin eru frá lokum II. heimsstyrjaldarinn- ar hefur í allflestum löndum ekki verið dregið úr afs'kipt- imi ríkisins af atvinnumálum. Sá siður hefur lcomizt á í all- mörgum löndum, að á vegum ríkisstjórnarinnar starfi ráð Niðurstöður fyrsta manntals sem farið hefur fram í Sov- étríkjunum í tvo áratugi voru birtar í Moskvu um daginn. 1- búar Sovétríkjanna reyndust 208.826.000 talsins 15. janúar í vetur, daginn sem manntal- ið fór fram. Konur 18 milljónum fleiri Konur eru langtum fleiri en karlmenn, 114,8 milljónir á móti 94 milljónum. Ástæðan er mannfallið í styrjöldinni 1941 til 1945. I aldursflokkunum undir 32 ára aldri eru karlar og konur næstum jafnfjölmenn. Fjölgun 3,5 millj. á ári eða stofnanir, sem fylgist með þróun efnahagsmála. Þar sem gera verður ráð fyrir, að rík- isstjórnir þessarar æs!ki ráða í því skyni að breyta eftir þeim, ef þau eru þeim að skapi, verður því jafnvel haldið fram, að í fyrirkomu- lagi þessu felist visir að áætl- unarbúskap. í nær öllum kapitalistiskum löndum hefur ríkið þannig afskipti af atvinnumálum. I hagfræðikeníiingum kapítal- ismans er jafnframt gert ráð fyrir, að afskipti ríkisins af atvmnuvegunum séu nauðsyn- leg. Fæðingartalan er 25 af þús- undi á ári hverju og dánartal- an 7,5 af þúsundi, svo að fólki í Sovétríkjunum fjölgar um 3,5 milljónir á ári hverju. Dánartalan er einhver hin lægsta i heimi. Fleiri menn ganga 'í hjóna- band í Sovétríkjunum en undi á ári. Hin lága dánartala og háa hjúskapartala stafar af því hve ungt fólk er stór hluti þjóðar- innar. í Sovétríkjunum eru þrjár milljónaborgir, Moskva með 5,032.000 íbúa, Leningrad með 2,9 milljónir og Kíeff með 1,1 milljón. (Framhald). Dánartalan lægst, hjúskapar- talan hæst í Sovétríkjunum

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.