Nýi tíminn - 08.09.1960, Blaðsíða 1
Útbreiðið
iyreioið
'Nýja timarn
tlllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll:
TIMIN
Nýja tímami
Finuntudagur 8. september 1960 — 19. árg, — 22. tölublað
iiigiiimiiiimiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin
Hálft þriðja hundrað fulltrúa úr öllum landshlutum á Þing-
Tallafundi herstöðvaandstæðinga samþykkti í gær einróma eftir-
farandi Ávarp til íslendinga: ,
17ér höfum komið hér saman til að andmæla hersetu í landi
’ voru og vara þjóð vora við hinni geigvænlegu tortímingar-
ihættu sem oss stafar af herstöðvum.
T rúm tuttugu ár höfum vér búið að landi voru í tvíbýli við
erlendan her, öllu þjóðlífi voru til meins. Erlend herseta er
•ekki samboðin frjálsu þjóðfélagi. Áhrif hennar eru djúptæk á
mál, menningu og siðferði þjóðarinnar, og má þegar sjá greini-
leg mehki þess í aukinni lausung, fjármálaspillingu og mál-
skemmdum. Annarlegar tekjur af dvöl hersins og viðskiptum
við hann hafa komið gjörvöllu fjármálakerfi landsins úr skorð-
um. Stórfelld gjaldeyrissvik og smyglmál, sem rekja má beint
eða óbeint til víghreiðursins í Eeflavík, eru orðnir svo hvers-
dagslegir viðburðir, að almenningur er hættur að bregðast við
þeim sem skyldi. Siðgæðisvitund þjóðarinnar er að verða
hættulega sljó, og æ fleiri ánetjast spillingunni og gerast sam-
ábyrgir um hana.
Tslenzk þjóð og erlendur her geta ekki búið saman 'i landinu
* til frambúðar annarhvor aðilinn hlýtur að víkja, nema báð-
um verði útrýmt samtímis.
Fundarmenn á Þingvallafundi í gærmorgun. Freinst frá vinstri: Magnús Á. Árnason, Björn
Guðmundsson, Guðmundur Hjartarson, fyrir aftan hann Sigríður Sæland og henni á hægri
hönd Þóroddur Guðmundsson. (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
Þúsundir á ÞingvölL
■fslendingar hafa aldrei borið vopn á neina þjóð, né lotið her-
aga. Þá sérstöða vora meðal þjóða heimsins er oss bæði skylt
og annt um að varðveita. Sjálfstæði vort unnum vér án vopna,
og án vopna munum vér bezt tryggja öryggi vort á timum sem
þessum, þegar langdrægar eldflaugar og vetnisvopn hafa gert
allar varnir úreltar.
TPrlend herseta býður heim geigvænlegri tortímingarhættu, ef
J til átaka kemur milli stórvelda. Á einni svipstund er unnt
að granda lítUli þjóð sem oss Islendingum, eins og vopnabúnaði
er nú háttað. Og sérfróðir menn fullyrða, að styrjöld með vetn-
isvopnum geti jafnvel hafizt fyrir einskæra slysni eða mis-
skilning.
Tjingvallafundurinn 1960 — skipaður kjörnum fulltrúum her-
* stöðvaandstæðirga úr öllum héruðum landsins, úr öllum
brýnir fyrir 'íslenzku þjóðinni að gera
Framhald á 2. síðu.
stéttum og flokkum
Þúsundir manna flykkt-
ust á útisamkomu her-
stöðvaandstæðinga á Þing-
Vefstóll sem
vegur 25 tonn
Um helgina var tekinn í
notkun í verksmiðjunni á Ála-
fossi nýr .gólfteppavefstóll. Er
þetta stærsti vefstóll í notkun
hér á landi, vegur 25 iestir,
full uppsetning á spólugrindur
vegur 2 lestir, en ullarspólurn-
ar eru alls 4160 talsins. Vef-
stóllinn getur ofið allt að 3,65
m breið gólfteppi.
völlum og létu haustgarrajafnt og þétt fram.yfir fundar-
veðurfarsins ekkert á sig fá.
Vegna þess hve fulltrúafundur-
inn í Valhöll stóð lengi drógst
byrjun. Þá skipti mannfjöldinrö-
þúsundum.
Þórarinn Haraldsson bóncli í
Laufási stjórnaði fundinum.
nokkuð að útisamkoman hæfist. Fuildarmenn voru á þriðja þús-
Var klukkan orðin hálffjögur
þegar samkoman var sett. Ræðu-
stól hafði verið komið fyrir
vestan vegarins á bakka Al-
mannagjár. Blöktu þar fánar í
sunnankalda og snarpar rign-
ingarskúrir ’ buldu á skjaldar-
merkjum sýslanna. sem reist
höfðu verið i hálfhring beggja
vegna ræðustólsins, og hlífðar-
fötum fundarmanna.
Fjöldi langferðabíla og ara^
grúi einkabíla flutti fólk á sam-
und.
Séð yfir fundarsalinn í Va'.höll. Mikið vantar á að unnt sé að koma öllum fulltrúuni fyrir við borð í aðalsalnum, margir sitja
í baksal. í frenistu röð frá vinstri: Einar Bragi, Jón Bjarnason, Sigfús Daðason, Lárus Rist, Þórarinn Haraldsson, Sigurður Sig-
urðsson fyrrverandi sýslumaður og Kristín Lofstsdóttir. Lárus og Sigurður eru meðal heiðursgesta Þingvallafundar. (Ljósm. A. K.)
Útverðir fró
Dröngum
komu ó
Þingvelli
Þingvallafundur herstöðva-
andstæðinga heíur snortið
djúpa strengi í brjóstum
fólks um land allt. Til
dæmis komu karl og kona
frá Dröngum, nyrzta bæ
sem’nú er í byggð áStrönd-.
uin, á Þingvöll í gærmorg-
un gagngert til að sitja
fundinn í Valhöll. Þau eru
Anna Guðjónsdóttir og'
Kristinn Jónsson.
Herstöðvaandstæðingum er
sómi og uppörvun að því
að einmitt fólk sem af
mestri þrautseigju berst
gegn eyðingu byggðanna
sem hersetan hefur haft í
för með sér skuli legg'ja
svona mikið á sig til að
skipa sér í fylking'u þeirra.
Fordæmi útvarðanna frá
Dröngum verður mörgum
hvöt til dáða.