Nýi tíminn - 08.09.1960, Qupperneq 9
4) — ÖSKASTUNDIN
Laugardagur 10. september — 6. ár. — 27. tbl.
Skemmtilegir
dagar
GÖNGUFERÐ
Við fórum á fætur kl.
7, klæddum okkur og'
þvoðum og bjuggum um
rúmin, svo fórum við í
morgunverð. Á eftir voru
dansaðir þjóðdansar,
sem eru ákaflega
skemmtilegir og falleg-
ir. Þá voru sýndar kvik-
myndir bæði til fróð-
leiks og skemmtunar.
Eftir hvíldartímann
fórum við í gönguferð
um nágrennið. Við geng-
um í gegnum barrskóg
og að flugvelli, sem not-
aður er til svifflugæf-
inga. Við skoðuðum
nokkrar vélar og geng-
um síðan aftur heim.
Þá var komin helli-
rigning.
Eftir kvöldmat voru
aftur sýndar kvikmynd-
ir. Þær voru bæði leikn-
ar af mönnum og brúð-
um.
Svo fórum við að sofa,
því við vorum öll þreytt
og syfjuð.
Harpa Karlsdóttir,
13 ára.
★----------
SÖLSKIN
11. ágúst.
í morgun fórum við að
synda í tjörninni, við
vorum með vindsængur
og lékum okkur á þeim,
og við höfðum líka sund-
bolta.
Eftir 10-kaffi fórum
við í sólbað og svo fór
ég í fótbolta með strák-
unum fram að mat.
Sinni partinn var ferða-
mannaleikur. Við geng-
um út í skóg, sem er
hérna rétt hjá og áttum
að finna 25 hluti, sem
voru faldir þar. Ég fann
engan hlut.
Svo fórum við heim.
Eftir fánakveðjuna var
kvikmynd um strák, sem
strauk til borgar með
flugvél, sem hann villtist
upp í.
Þorkell Þorkelsson,
14 ára.
FRÍMERKJA.
SAFNARAR
Tveir írímerkjasafnar-
ar, sem éinnig hafa
brennandi áhuga á fót-
bolta og borðtennis, vilja
skrifast á við íslenzka
drengi með svipuð á-
hugamál og skipta við
þá á frímerkjum. Þeir
skrifa ensku
Nsiali De-Graft Dickson,
12 ára„
4A Primary School
P. O. Box l',
Potikurom
Ashanti, Ghana.
Tariq Shakir, 14 ára
Sarrafeigah 3B/2/205
Baghdad,
Iraq.
Kæra Óskastund!
Ég' ætla að senda þér
niynd af sveitabæ.
Ég vona að þú viljir
birta hana fyrir mig.
Vertu blessuð og sæl,
kæra Óskastund.
Þinn einlægur lesandi,
INGA G.N., 11 ára.
RiUtjóri Viiborg Dagbjartsdóttir — Útgefandi Þjóðviljinn
Skemmtilegir dagar
Isíðasta blaði sagði ég
ykkur lítilsháttar frá
skipulagi á ungherjabúð-
um í Tékkóslóvakíu, nú
fáið þið að lesa nánar
um það hvernig börnin
þar starfa og leika sér.
í stað þess að skrifa
sjálf leiðinlega grein, bað
ég íslenzku börnin að
velja handa Óskastund-
inni einhvern dag úr
dagbókinni sinni. Þau
voru frjáls að því að
velja hvaða dag sem
þeim fannst skemmtileg-
Ur, en urðu að skrifa
hann orðrétt upp úr bók-
inni, því náttúrlega fékk
ég ekki að hnýsast í
leyndafmálin. Með þessu
vil ég reyna að gefa ykk-
ur, sem réttasta mynd
af lífinu hérna. Það er
löngu sannað að börn
sjá allt í miklu skýrara
Ijósi, en fullorðnir og
þau segja líka alltaf satt.
V. D.
★---------
ÞÞRUMUVEÐUR
5. ágúst, föstud.
Fram að hádegi fórum
við í ferðamannaleik. Við
át'tum að. fylgja- merkj-
um í skóginum þangað |
til við fyndum fjársjóð.
Þetta var heillöng leið,
sem endaði auðvitað
heima í búðunum. Fjár-
Framhald á næstu síðu
•-- • --- • -- o --- 9 --®
• TVÆR ERU e
o ALVEG EINS •
• Þessar litlu skóla- «
• ur virðast •
• fljótt á litið all- •
• ar eins, en aðeins o
• tvær þeirra eru a
• alveg eins. Getur
• þú fundið þær. ®
Fimmtudagur 8. september 1960 — NÝI TÍMINN
(9
Hnpallafundi lauk með
i ákvörðunum
W TSF r"W~ 7jfT
fc' % % s#
Þingvallafundi herstöðvaandslæöinga í Valhöll lauk
eftir hádegið í gær með einróma ákvörðunum í málum
þeim sem fyrir fundinum lágu.
Samþykkt var að setja á stofn
Samtök herstöðvaandstæðinga
og þeim settar starfsreglur,
næstu verkefni í baráttunni fyr-
ir brottför hersins voru ákveðin
og samþykkt ávarp til íslend-
inga, sem birt er á fremstu síðu
blaðsins í dag.
Landhelgismál
Fundur hófst um tíuleytið í
Póstur og sími
sendir brátt
gjaldeyrisskýrslu
Að gefnu tilefni tilkynnist
hér með, að með bréfi, dags. 7.
þ.m., harst póst- og símamála-
stjóminni 8. þ.m. beiðni gjald-
eyriseftirlitsins um nákvæma
greinargerð yfir heildar gjald-
eyristekjur og gjaldeyrisnotkun
pósts og síma 1956 til 1959 að
báðum árum meðtöldum, svo
og fyrir fyrstu 5 mánuði þessa
árs.
Póst- og sámamálastjórnin
hófst þegar handa um skýrslu-
gerðina. Þar sem hér er um
talsvert verk að ræða mun
skýrslugerðini ekki lokið fyrr
en á mánudag 12. þ,m.
(Frétt frá Póst- og
, og símamálastjórn) t
gær með framsögu Jóns Péturs-
sonar úr Reykjavík fyrir ál.vkt-
un um landhelgismál. Fundar-
stójri var séra Þorleifur Krist-
mundsson á Kolíreyjustað.
í umræðum tóku til máls Guð-
mundur Þorsteinsson, Skil-
mannahreppi, Stefán Þorleifsson.
Neskaupstað, séra Björn O.
Björnsson, Einar Björnsson, Mý-
nesi, Sigríður Sæland, Hafnar-
firði og Bergur Sigurbjörnsson,
Reykjavík.
Ingi Kristjánsson úr Suður-
Þingeyjarsýslu hafði framsögu
fyrir verkefnaneínd. í umræð-
um tóku til máls Stefán Sigurðs-
son, Sauðárkróki, Guðmundur
Ingi Kristjánsson, Kirkjubóli,
Illöðver Sigurðsson, Siglufirði og
Ólafur Jóhannesson, Dalasýslu.
Framsögumaður fyrir ávarps-
neínd var Hannes Sigfússon,
Einar Bragi fyrir allsherjar-
nefnd, Gils Guðmundsson fyrir
skipulagsnefnd og Kjartan Ól-
afsson fyrir uppstillingarnefnd.
Að áorðnum breytingum voru
tillögur þær sem lagðar höfðu
verið fyrir íundinn samþykktar
einróma.
í fundarlok fluttu Valborg
Bentsdóttir og Jóhannes úr Kötl-
um snjöll ávörp. Þingheimur
söng „Land míns föður“, þjóð-
hátíðarljóð Jóhannesar.
ja» -4fr fw m
Eiríkur Pálsson fundarstjóri
þakkaði fulltrúum komuna og
vel unnin störf og ámaði þeim
góðrar heimferðar og sleit síðan
fundi.
Þessum sögulega Þingvalla-
fundi lierstöðvaandstæðinga lauk
jafn ánægjulega og hann hófst,
þar ríkti andi samstarfslöngun-
ar og baráttuvilja sem gefur fyr-
irheit um árangursrikt starf.
AEsír og Túnís
sameinast?
Fréttir hafa borizt um að
stjórn Túnis íhugi nú í alvöru
að leggja til að Túnis og Alsír
verði sameinað í eitt riki. Seg-
ir stjórnin að þetta megi verða
til þess að tryggja sjálfstæði
Alsír og til að binda endi á
stýrjöldina þar.
Bourgiba Túnisforseti gat þess
í ræðu fyrir skömmu, að Túnis
væri reiðubúið að gerast aðili
að franska ríkjasambandinu, ef
:kt mætti tryggja Alsir sjálf-
stæði. Hann kvað þjóð sína vera.
reiðubúna að leggj.a örlög sin
við örlög Alsírbúa til þess að
Ijúka styrjöldinni.
Skrýtlur
Tómas: Hefurðu nokkur i
tíma séð þessar vélar, sem
geta sagt frá, þegar maður
lýgur.
Dick: Séð slíkar? Eg er
kvæntur einni.
Fiskútflutningi loftleiðis hætt,
rándýrir ávextir seljast ekki
Fólk getur ekki keypt ananas á 104
krónur kilóiS og vínber á 130
Útflutningur á flatfiski loftleiðis er farinn út um þúf-
ur, vegna þess að ávextirnir sem áttu að borga brúsann
seljast ekki_
Hefur því farið eins og all-
ir heilskyggnir menn sögðu fyr|
ir, að þessi verzlunarmáti gæti
ekki staðizt.
Þótt fiskurinn væri vel borg-1
aður, hrökk verðið ekki til að
greiða flugvélarleiguna. Var
þvi það ráð tekið til að fá farm
báðar leiðir að flytja inn ávexti
frá útlöndum með sömu vél-
um og fluttu fiskinn til Am-
sterdam, Zxirich og Manchest-
er.
En flugflutningurinn gerði
ávextina svo dýra að fáir ís-
lendingar hafa haft ráð á að
leggja þá sér til munns. Víri-
ber voru seld á 130 krónur
kilóið og nýir anariasávextir
eru seldir á 104 krónur kílóið.
Fáir vaða svo í peningum að
þeir geti leyift' sér að hafa
slákan mat á borðum, og hefðu
innflytjendurnir átt að geta
sagt sér þetta sjálfir.
Vísir skýrir frá því í ga-iv
að fiskútflytjendur þeir se:n
stóðu fyrir loftflutningunur i
hafi nú í hyggju að flyt: i
flatfiskinn út ísaðan í kös--
um með kæliskipum. Er ætlun-
in að safna kældum fiski i
frystihús þangað til kominn er
skipsfarmur ,og telja útflyt-
. endur sig geta komið honuri
á markað með nýjabragði með
þessu móti. og uppfyllt þam".-
ig kröfur kaupenda að loft*-
flutta fiskinum.
i