Litli Bergþór - 01.03.1988, Side 5

Litli Bergþór - 01.03.1988, Side 5
5 Skútavígsla Skiltinu komið fyrir. Laugardaginn 20. febrúar voru formlega tekin í notkun tvö ný fundarherbergi í kjallara Aratungu. Herbergi þessi hafa hingað til gegnt því hlutverki að hýsa verkstæði hús- varðar, sem flutt var inn í hitakompuna og hinsvegar geymsla og föndurherbergi fyrir Kvenfélagið o.fl. Fyrir réttum átján mánuðum fór Lionsklúbburinn þess á leit við húsnefnd að fá að taka til í kjallaranum með ofan- greindar breytingar að markmiði. Það reyndist auðsótt, enda fóru heil tvö vörubflshlöss af drasli á haugana. Það er skemmst frá því að segja að Lionsmenn undu glaðir við sitt og eyddu ófáum kvöldstundum við hinar ýmsu breytingar. Húsnefnd Aratungu bauð síðan Lionsmönnum o.fl. til vígslu herbergjanna laugardaginn 20. febrúar, þar sem formaður húsnefndar, Bjöm Bj. Jónsson rakti stuttlega þróunarsöguna og þakkaði vel unnin störf í þágu hússins. Hann sagði það von húsnefndar að um góða viðbót væri hér að ræða við fundarhúsnæði Aratungu, þar sem æ oftar yrðu árekstrar varðandi nýtingu hússins yfir vetrartím- ann. Hann gat þess og að hugmynd hefði komið frá odd- vita um að kalla herbergin Skútann og auðvitað yrði þá það fremra kallað Fremri-Skúti og það innra Innri-Skúti. Hann afhenti Gísla síðan spjöld með ofangreindum nöfnum og bað hann að festa upp. Gísh þakkaði fyrir og bað menn að hafa fyrirmyndir nafhgiftarinnar í huga og vera glaðir á góðri stund, hvað gestir gerðu hraustlega og tóku lagið (lögin). Þetta var hin ánægjulegasta stund eins og meðfylgjandi myndir sýna og vonandi að framhaldið verði svipað. Oddviti flytur ávarp. Formaður húsnefndar þakkar fyrir. Svo var auðvitað tekið lagið.

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.