Litli Bergþór - 01.03.1988, Side 16
16
SVEITASTJORNARMAL:
Úr bókum
hreppsnefndar
Þar má sjá að á dagskrá þann 13. jan. 1988 var
meðal annars að orlofssjóður Bandalags Háskóla-
menntaðra ríkisstarfsmanna hefur keypt 10 hekt-
ara land í Brekkuskógi af félagi bókagerðar-
manna.
Jón Ingi Gíslason kaupir Kjamholt I. Það er
íbúðarhús og 15 hektara land.
íbúaskrá var yfirfarin á fundi 10. febrúar. 1.
desember 1987 voru 275 karlar og 227 konur, eða
samstals 502 íbúar í Biskupstungum. Á sama
fundi kom Skálholtsnefnd á fund hreppsnefndar.
í henni eru séra Guðmundur Óli Ólafsson for-
maður, Sigurður Ámi Þórðarson og Páll M.
Skúlason. Sögðu þeir frá stöðu og framtíðarhorf-
um Skálholtsstaðar. Óskuðu þeir eftir meira sam-
starfi og stuðningi hreppsnefndar við Skálholts-
nefndina í uppbyggingarstarfinu.
Kaupsamningur af Galtalæk var næst á dag-
skrá, en það er Húsasmiðjan í Reykjavík sem
kaupir af Rögnvaldi bónda og hyggst nota Galta-
læk fyrir sumarbúðir og skógrækt.
Þeir hreppar sem standa að Límtrésverksmiðj-
unni hafa óskað eftir því við Byggðastofnun, áætl-
unardeild, að gera sameiginlega byggðaáætlun
fyrir þessa hreppa. Verður hún gerð í samráði við
sveitarstjómimar nú á næstu misserum.
Björgunvarsveitimar í Ámessýslu óskuðu eftir
styrk til að kaupa fjarskiptabil. Samþykkt var að
leggja til kr. 50.000,-.
Úr forðagæsluskýrslum
Mjólkurkýr
aðrir nautgripir
ær
hrútar
lömb
eða alls 6016 kindur.
787
767
4836
135
1045
Vegamót
Steingrímur Ingvarsson umdæmisverk-
fræðingur kom á fund hreppsnefndar 23. febrúar.
Þar kom fram að eina sem ákveðið er í
vegamálum, er að mala efni í Fellsgryfjunum,
sem setja á í veginn frá Reykholti að Holtakotum.
Heimamenn lögðu mesta áherslu á að borið væri
ofán í veginn frá Einholti að Kjóastöðum. Engin
loforð fengust um að af því yrði á þessu ári né öðm
sem nefiit var.
Fram kom að stefnt væri að því að klæða frá
Svínavatni að Brúará árið 1989, og að
þéttbýliskjömunum hér í uppsveitunum á næstu
3 áram.
Þ.Þ.
SKÓGRÆKT
Nytjaskógrækt enn
á döfinni
Frá því var greint í 2. tölublaði L.B. á síðasta ári, að ábú-
endur nokkurra jarða hér í suðursveitinni væru með hug-
myndir um nytjaskógrækt. Það svæði sem um var rætt að
loka fyrir sauðfé, sést á meðfygljandi korti og er það svæði
allt 1830 ha. Það sem gerst hefur síðan ég skrifaði síðast
í L.B., er það að skógfræðingur frá Skógrækt ríkisins gerði
áætlun í samvinnu við okkur ábúendur og er þar miðað við
u.þ.b. 400 ha. skóg sem skiptist misjafnt niður á jarðir.
Rætt er um 15-20 ár í útplöntun.
Við heimamenn sóttum um fé á fjárlögum þessa árs, en
ekki kom mikið út úr því, en Skógrækt ríkisins ætlar okk-
ur nokkurt fé til undirbúnings lands, miðað við útplöntun
hefjist 1989.
Við höfum átt fund með fulltrúum landbúnaðarráðu-
neytis, sem skógræktarstjóri sat einnig. Hjá þessum aðil-
um er mikill vilji fyrir því að koma þessu verkefni inn á
fjárlög næsta árs og síðan áfram, þar sem um er að ræða
óvenju hagstætt landsvæði á margan hátt.
Land verður undirbúið til útplöntunar á einhverjum
jörðum í sumar, og svo vonum við að „rífandi gangur“
verði í fjárveitingum. Eh. timburmanna,
Gunnar Sverrisson.