Litli Bergþór - 01.03.1988, Page 19
19
SVEITASTJÓRNARMÁL
Gjöf til bygginga íbúða fyrir aldraða
Hjónin í Bergholti, Magnhildur og Sveinn, hafa
ætíð sýnt málefnum aldraðra hér í sveit sérstakan
áhuga. Þau voru miklir hvatamenn að byggingu
Bergholts og studdu hana með stórum fjárfram-
lögum og vinnu.
Hinn 10. febr. síðastliðinn, afhentu þau hrepps-
nefndinni sparisjóðsbók með einni milljón króna,
sem varið skyldi til byggingar íbúða fyrir aldraða
í Reykholti.
Hreppsnefndin þakkar þessa höfðinglegu gjöf
og þann stuðning við aldraða sem í henni felst.
Gísli Einarsson.
Bygging þjónustuíbúða fyrir aldraða
Á fundi hreppsnefndar 10. febr. var samþykkt
að hefja undirbúning að byggingu annars áfanga
íbúða fyrir aldraða í Reykholti.
Ráðgert er að byggja hús með 4 íbúðum eftir
sömu teikningu og Bergholt. Þó á að kanna mögu-
leika á því að hafa bflageymslur undir húsinu og
ef til vill einhverja vinnuaðstöðu.
íbúðimar verði , .þjónustuíbúðir aldraðra",
söluíbúðir.
Þessar flbúðir hafá nokkum forgang í húsnæðis-
lánakerfinu og mun hreppurinn annast alla útveg-
un lána sem eru til 40 ára með 3,5% vöxtum.
Útborgun ætti flestum að vera viðráðanleg. Þeir
ganga fyrir kaupum sem orðnir em 60 ára.
Ennfremur hefur hreppsnefndin sótt um bygg-
ingu fjögurra kaupleiguíbúða, verði lög um þær
samþykkt nú á Alþingi.
Þeir sem áhuga hafa fyrir þessum íbúðum hafi
samband við oddvita, sem veitir allar nánari upp-
lýsingar.
Gfsli Einarsson.
Byggðaáætlun
Með bréfi dagsettu 25. nóv. sl. fóm oddvitar
Skeiða-, Gnúpverja-, Hmnamanna- og Biskups-
tungnahrepps þess á leit við Byggðastofhun að
hún kanni möguleika á því að gera byggðaáætlun
fyrir hreppana. Við afgreiðslu starfsáætlunar
stofhunarinnar fyrir árið 1988 samþykkti stjóm
hennar að unnið skyldi að þessu verkefhi.
í áætlunum sem þessari er fjallað um núverandi
ástand í viðkomandi byggðarlagi, möguleika þess
og takmarkanir. í niðurstöðum þurfá að hggja fyr-
ir samræmd markmið sveitarstjóma og rflds-
valds. Til þess að svo megi verða þurfa fagráðu-
neytin að fjalla um einstaka þætti áætlunarinnar
á vinnslustigi.
Byggðaáætlanir skulu unnar í sem nánustu
samráði við heimaaðila og því hefur Byggðastofn-
un farið þess á leit við viðkomandi hreppa að þeir
tilnefni hver um sig einn mann í starfshóp um
þessa byggðaáætlun.
Hreppsnefndin hefur tilnefnt Þorfinn Þórarins-
son í þennan hóp.
Gísli Einarsson.
Eftirlitsmaður
Hreppsnefndin hefur ákveðið að ráða mann til
eftirlits á afréttinum í sumar. Ætlunin er að ráða
mann í 5—6 vikur. Hann hafi bfl og farsíma og selji
gistingu í sæluhúsunum í Hvítámesi, Svartár-
botnum og Fremstaveri. Ennfremur selji hann
hestamönnum hey og aðstöðu á áningarstöðum,
veiti þeim aðstoð og leiðbeiningar.
Markmiðið er með þessari tilraun að bæta um-
gengni og meðferð lands á þessari fjölfömu ferða-
mannaleið og veita ferðamönnum þjónustu.
Þeir sem kynnu að hafá áhuga fyrir þessu starfi
hafi samband við oddvita.
Gísli Einarsson.
Mjög fjölbreytt úrval afhár- og snyrtivörum.
20 ára
þjónusta
í miðbœnum
;#h Rakarastofa
IM/Jí Björns Gíslasonar
^Eyravegi 5 - Selfossi - sími 2244