Litli Bergþór - 01.03.1988, Blaðsíða 25

Litli Bergþór - 01.03.1988, Blaðsíða 25
FRÉTTIR Silungseldi Nú í vetur hófst tilraun á eldi á bleikju á þremur stöðum hér í Ámessýslu. Það er Veiðifélag Amesinga, Búnaðar- samband Suðurlands og Veiðimálastofnun sem standa að henni. Niðurstaðan á að segja hvort eldi á bleikju í slátur- stærð sé hagkvæm. Bera á saman eldi í köldu vatni og upp- hituðu, söltu og ósöltuðu. Klakfiskur var tekinn úr Brúará í september. Startfóðrun stendur nú yfir í febrúar og mars í 'IUngufelli í Hruna- mannahreppi, hjá Laugarlax og á Spóastöðum. Þegar þeir eru komnir á ætið (startfóðrun lýkur), er eldisfóðrunin auðveldari. Þá er hugmyndin að dreifa tilrauninni á fleiri staði og bera saman mismunandi aðstæður. Silungur vex mun hraðar en lax við lágan hita (4 til 8 gráður) og gefur því meiri möguleika þar sem upphitun á vatni er ekki möguleg. Verð á silungi hefur verið lágt í samanburði við lax fram að þessu, en nú síðustu ár hefur verðmunur minnkað og því hefur vaknað meiri áhugi á honum. Bleikja er óþekkt á stóru fiskmörkuðunum og er því ef- laust erfiðleikar að koma upp eftirspum. Norðmenn kynna bleikjuna sem drottningu norðursins, ómengaðan fisk sem alinn er upp á norðlægum slóðum. Þessi tilraun er áhugaverð fýrir Biskupstungnamenn, því mikið er til af lindarvatni sem hugsanlega hentaði vel. Þ.Þ. Umbætur við Geysi L.B. hafði samband við Má Sigurðarson varðandi um- bætur á Geysissvæðinu fyrir sumarið. Núna standa yfir framkvæmdir við nýja anddyrið, þar sem bætt yrði úr sal- emisaðstöðunni á svæðinu og sett upp minjagripaverslun. Auðvitað kallaði þetta á nýja aðkeyrslu sem bætt yrði úr fyrir sumarið. Einnig stefndi hann á að endurbæta sund- laugina og búningsaðstöðuna. Einnig stæðu til betrumbætur á sjálfu hverasvæðinu, hellulagningar o.fl. Sem sagt, allt útht fyrir að innan tíðar verði geysihuggu- legt við Geysi. Kerra undir snjósleða Nokkrir vaskir félagar úr Slysavamasveitinni hafa að undanfomu unnið að því að smíða kerra undir snjósleða sinn. Mikil þörf er fyrir hana, því eins og staðan er í dag, þá er ekki hægt að koma vélsleðanum af stað í skyndi, nema snjór hggi yfir mest allri sveitinni. Sleðinn er geymd- ur í slökkvistöðinni í Reykholti og verður hafður þar á kermnni í framtíðinni, reiðurbúinn til björgunarleið- angra, hvert sem verkast vill. Svona verkfæri kostar alltaf sitt og er talið að efniskostn- aður sé ekki undir 50 þúsund krónum, ef allt þyrfti að kaupa, en töluvert er gefið af efni, og er þá vinnan ótalin. Öll aðstaða til kerrusmíðarinnar er fengin hjá Bjama á Brautarhóli og þegar blaðamaður L.B. leit þar við fyrir skömmu, vom þar að verki Snorri á Tjörn, Ragnar og Guð- jón í Reykholti og var smíðin vel á veg komin. S.J.S. VERND GEONVA TRYGGING HF AUSTURVEGI22 800SELFOSS SÍMI99-1666

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.