Litli Bergþór - 01.03.1988, Page 26

Litli Bergþór - 01.03.1988, Page 26
26 Eftirfarandi pistil fékk Litli-Bergþór ,,að lániu úr ónefndu fréttabréfi: Vinnuslys Við höfum ekki oft sagt frá vinnuslysi í þessu fréttabréfi, en stundum eru þó þó þess eðlis að fréttnæmt þykir. Iðnaðarmaðurinn segir sjálfur frá: Til þess að skýra nánar þetta slys, er rétt að eftirfarandi komi fram:, ,Ég hafði ásamt öðrum verið að vinna á 6. hæð í nýbyggingu og svo vildi til að ég lauk ekki því sem ég var að fást við íyrr en allir voru famir úr húsinu og í minn hlut kom að taka saman verkfæri og efnisafganga. Þetta var það mikið að ég lagði ekki í að bera það niður, heldur notaði gálga sem stóð út úr glugga á hæðinni, en á hann var fest blökk og var ýmislegt smávegis hfft upp og niður í stómm trébala. Reipið var vandlega bundið niður við jörð og gat ég því hlaðið dótinu í balann án tafar, fór síðan niður og losaði reipið en hélt jafnframt fast til að tryggja hægt niður- rennsli balans sem ég vissi að var nokkuð þungur. Eins og seinna kom fram reyndist dótið vera um 110 kg, en eins og fram kemur í slysaskýrslunni þá er ég aðeins 71 kg og vegna þess hvað mér brá þegar reipið losnaði þá tók ég á af öllum kröftum og athugaði ekki að sleppa tíman- lega, en einmitt þess vegna flaug ég á augabragði upp með húsvegnnum og vissi ekki fyrr en ég mætti balanum á móts við 3. hæðina, en það skýrir höfuðkúpu- og viðbeins- brotið. Þessi árekstur dró svolítið úr ferðinni, en flugið hélt áfram og lauk ekki fyrr en ég var kominn með hálfa hönd- ina inn í blökkina, en til allrar hamingju hélt ég þó enn fast í reipið þrátt fyrir mikinn sársauka. A sama augnabliki skall balinn á misjöfnu á jörðinni sem varð þess valdandi að botninn fór úr og við það léttist bal- inn og var nú orðinn um 20 kg. Ég minni aftur á þyngd mína og af skiljanlegum ástæðum hófst nú allhröð niður- ferð sem aðeins truflaðist þegar ég mætti balanum sem var á hraðri uppleið, en af því stöfuðu ökklabrotin og hruflun á fótum og neðri hluta líkamans. Áreksturinn dró þó held- ur úr ferðinni og þar með meiðslum er ég skall niður í af- ganga og verkfærahrúguna, en til allrar hamingju brotn- uðu þá aðeins þrjú rifbein. Mér þykir þó leitt að þurfa að segja frá því að þegar ég lá þama í draslinu, sárkvalinn og ófær um að standa upp, en horfði á balann uppi á 6. hæð, gætti ég ekki að mér .... Ég sleppti reipinu. Tökum að okkur alla almenna málningarvinnu, gerum tilboð ef óskað er. Höfum málningu frá Málningu hf. Verslun okkar, Eyravegi 35, er opin alla daga kl. 8.00 til 18.00, lokað milli kl. 12.00 og 13.00, einnig verður opið á laugardögum frá og með apríl frá 9.00-12.00. EYRAVEGI 35 - SELFOSSI - SÍMI 2355 - NAFNNR. 6319-1310

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.