Litli Bergþór - 01.03.1993, Blaðsíða 4

Litli Bergþór - 01.03.1993, Blaðsíða 4
Hreppsneftidarfréttir..... Hreppsnefndarfréttir hefur vantað í tvö s.l. hlöð og hafa margir komið að máli við ritnefndina um að þeir söknuðu þeirra. Hér bœtir ritnefndin úr og er þetta úrdráttur úr öllum fundargerðum sem gerðar hafa verið áfundum síðan 13. okt. til loka ársins 1992. D.K. Þriðjudagur 13. okt. 92 1. Undirbúningur vatnsveitu. Mælt var í lindinni við Austurhlíð og reyndust vera þar 39 I á sek. Það kom fram að mun meiri áhugi er fyrir vatninu en áður var talið. Stefnt er að því að Haraldur Árnason vatnsveituráðunautur skili tillögum um bráðábirgðahönnun og kostnaðaráætlun fyrir 1. nóvember. 2. Bygging slökkvistöðvar og slysavarnarhúss. Beðið hafði verið um kostnaðaráætlun frá Slysavarnardeild Biskupstungna um hvað myndi kosta að reisa og gera fokhelt húsið og reyndist það myndi kosta með efni og vinnu kr. 2.883.000,- án glers og stóru hurðanna. Samþykkt var að stefna að því að gera húsið fokhelt sem fyrst með því að ganga til samninga við S.V.D. Biskupstungna. Einnig var samþykkt að reyna að selja tvö sperrubil í húsinu. 3. Undirbúningur að byggingu kaupleiguíbúða. Kosnir voru í bygginganefnd: Gfsli Einarsson og Unnar Þór Böðvarsson, til vara Kjartan Sveinsson og Ágústa Ólafsdóttir. Einnig í byggingarnefnd Ragnar Lýðsson og til vara fyrir hann Kristófer Tómasson. 5. Kaupsamningur Dalbrún 3. Seljandi Örn Ingibergsson, kaupandi Baldur Baldursson Hreppsnefnd afsalaði sér forkaupsrétti. 6. Kaupsamningur v/ Birkiflatar Seljandi: Landsbanki íslands, Selfossi. Kaupendur: Gunnar Sigurþórsson og Ragnheiður Sigurþórsdóttir. Hreppsnefnd afsalaði sér forkaupsrétti. 8. Uppgjör afréttarvarðar 1992. Innkoma sumarið 1992 var samtals kr. 354.310,- á afréttinum. Kostnaður vegna eftirlits, laun og akstur kr. 353.200,-. 10. Götulýsing: Samþykkt var að leggja höfuðáherslu á lýsingu áfram niður skólaveginn og síðan götulýsingu á götuna Kistuholt. Einnig væri nauðsyn að lýsa Auðsholtsveg í Laugarási. 11. Umsókn um hesthúsalóð í Reykholti. Loftur Jónasson sækir um að fá lóð undir hesthús í Reykholti í haust. Samþykkt var að leita til Bjarna í Brautarhóli um að fá land undir hesthús upp við Fellsgil. Gísli og Þorfinnur voru tilnefndir til viðræðna við Bjarna. 12. Uinsókn um íbúðarhúsabvggingu í Kjarnholtum. Sótt var um byggingu annars íbúðarhúss í Kjarnholtum. Samþykkt. Fundur 10. nóvember 1992. 1. Vatnsveita. Lögð var fram kostnaðaráætlun fyrir vatnsveitu úr Bjarnarfelli. Haraldur Árnason hefur gert kostnaðaráætlun uppá kr. 30.692.000,- Áætluninni er skipt í fimm liði. Veitunefnd falið að ganga frá samningum við landeigendur um kaup í vatnsréttindum. Samþykkt að hefja fyrsta áfanga veitunnar næsta sumar þ.e. stofnæð frá lind að tengingu (austan) Fellskots. 2. Hesthúsalóð í Reykholti. Tekist hafa samningar við Bjarna Kristinsson um land undir hesthús 2 ha. fyrir 1 milljón króna. Landið er vestan þjóðvegar við Fellsgil. Samþykkt að ganga frá kaupunum og vinna að skipulagi svæðisins. 3. Skýrsla um sjálfboðavinnu á Kjalvegi. Lögð var fram skýrsla með myndum og lýsingu á verkinu við að gera braut austan Þjófafells fyrir hestaumferð. 4. Afmæli Skálholtsskóla. Á 20 ára afmæli Skálholtsskóla var skólanum afhent strauvél eftir uppástungu rektors. 5. Fundarboð sveitarfélaganefndar. Lagt var fram fundarboð sveitarfélaganefndar. Boðað er til fundar á Selfossi 1.11. kl. 20:30. Sveitarstjórnarmenn og helstu embættismenn sveitarfélaga boðaðir á fundinn. Fundarefni er skýrsla nefndarinnar um sameiningu sveitarfélaga. 6. Bréf Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Lagt var fram bréf frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands. Ákveðið hefur verið að ráða heilbrigðisfulltrúa til viðbótar. Einnig er lögð fram gjaldskrá vegna innheimtu gjalda á fyrirtæki og stofnanir. Sveitarstjórn þarf að ákveða með hvaða formi skal innheimta. Frestað til næsta fundar. 8. Erindi formanns byggingarnefndar Fjölbrautarskóla Suðurlands. Fengist hefur lánsloforð frá Lánasjóði sveitarfélaga til viðbyggingar F.S.S. kr. 216.000.000,-. Oddvita veitt umboð til að undirrita lánssamninginn f.h. Biskupstungnahrepps. 9. Erindi landbúnaðarráðuneytis. Landbúnaðarráðuneytið sendirtil umsagnar umsóknir um ábúð á jörðinni Laug. Sigríður Sigþórsdóttir og Hallmar Sigurðsson óska eftir jörðinni til sumardvalar og beitar fyrir hross. Sigríður Vilhjálmsdóttir og Már Sigurðsson fala jörðina fyrir ferðaþjónustu. Báðir umsækjendur hyggjast endurreisa bæjarhúsin í upprunalegum stíl. Litli - Bergþór 4

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.