Litli Bergþór - 01.05.2008, Side 5
færðu félaginu árnaðaróskir og gjafir. Veislukaffi
var í boði Kvenfélags Biskupstungna.
Dögg Káradóttir hefur verið ráðin annar félags-
málafulltrúi í uppsveitum Árnessýslu og Flóahreppi.
Camilla Guðmunda Olafsdóttir í Ásakoti bauð
sveitungum sínum, vinum og vandamönnum að
fagna með sér fertugsafmæli sínu í Réttinni í Úthlíð
snemma í mars.
Lagning Lyngdalsheiðarvegar hefur verið boðin
út. Leggja á 15 km langan veg af Laugarvatnsvegi
vestan við þéttbýlið á Laugarvatni á Þingvallaveg
norður af Miðfelli í Þingvallasveit. Gera á hringtorg
á vegamótunum við Laugarvatn, T-vegamót við
Þingvallaveg og 1,7 km tengingu þessa væntanlega
vegar við Gjábakkaveg. Verkinu skal lokið fyrir 15.
október 2010.
Bláskógabyggð hefur óskað eftir tilboðum í
áfanga II. í lagningu vatnsveitu í Biskupstungum.
Annars vegar á að leggja 17,7 km af 200-250 mm
plastlögn og hins vegar 10,1 km af 75-140 mm
plastlögn. Þessu verki á að vera lokið 25. ágúst nk.
I vor er fermt í öllum sex kirkjunum hér í sveit:
Þórarinn Hrafn Skúlason í Bröttukinn 6 í Hafnarfirði
í Bræðratungukirkju, Bjarni Sævarsson í Arnarholti
í Torfastaðakirkju, Þjóðbjörg Eiríksdóttir í
Gýgjarhólskoti í Haukadalskirkju, Margrét
Hallgrímsdóttir á Miðhúsum, Bragi Steinn
Eymundsson í Laufskógum 10 á Egilsstöðum og
Skúli Geir Olafsson á Skólavöllum 7 á Selfossi í
Úthlíðarkirkju og Brynhildur Osk Oskarsdóttir í
Kistuholti 2, Jón Oskar Jóhannesson á Brekku,
Þórhildur Sif Loftsdóttir á Helgastöðum 2, Hákon
Fannar Briem Kristjánsson í Miðholti 11 og Hjalti
Pétur Jakobsson í Lyngbrekku í Skálholtskirkju.
Á aðalfundi Búnaðarfélags Biskupstungna, sem
haldinn var snemma í apríl, bar það helst til tíðinda
að samþykkt var að mæla með sameiningu við
Búnaðarfélag Laugardalshrepps.
Hestamannafélagið Logi hélt aðalfund síðast í
sama mánuði. Þaðan er helst fréttnæmt að horfið er
frá áformum um byggingu reiðhallar í Reykholti, en
gert ráð fyrir að það fé, sem heitið hafði verið í þá
byggingu, fari til byggingar slíkrar hallar við Litlu-
Laxá hjá Flúðum í félagi við Hestamannafélagið
Smára og fleiri. Allmiklar breytingar urðu á stjórn
Loga á fundinum. Formaður var kjörin Guðrún
Svanhvít Magnúsdóttir í Bræðratungu og aðrir í
stjórn eru nú Hólmfríður Ingólfsdóttir í Laugarási,
Sigurjón Sæland einnig þar, Sigurlína Kristinsdóttir
í Reykholti og Oskar Guðmundsson einnig þar.
Hvatningarverðlaun garðyrkjunnar fengu
Sigurlaug Sigmundsdóttir og Magnús Skúlason í
Hveratúni, og voru þau afhent í Landbúnaðarháskóla
Islands að Reykjum í Ölfusi á sumardaginn fyrsta.
Dönsku krónprinshjónin, Friðrik og Mary, komu
að Gullfossi og Geysi 6. maí. Ekki fer
^ * / er sama J
miklum sögum af þeirri heimsókn, ( séra jón. steinninn >
en í tilefni af henni höfðu áletranir á
Konungssteinunum þremur í hlíðinni
norðvestur af Geysi verið skýrðar,
en þeir eru þar til minningar um heimsóknir
danakonunga, sem þá réðu einnig yfir
íslandi, árin 1874, 1908 og 1921.
Félag aldraðra stóð fyrir síðustu
mánaðarlegu samkomu sinni að
vetrinum í Bergholti hálfan mánuð af sumri.,
fluttu Gunnlaugur Skúlason, dýralæknir,
og Garðar Hannesson, fyrrum húsvörður í Aratungu,
minningar frá liðnum árum og fimm kvenna
hljómsveit lék á mismunandi blokkflautur undir
stjórn kennara síns, Helgu Sighvatsdóttur frá
Miðhúsum.
Sýning á listaverkum eftir fimm konur úr upp-
sveitum Árnessýslu var opnuð í Skálholtsskóla um
miðjan maí. Þær eru Eygló Jósepsdóttir, Katrín
Briem, Sigríður Helga Olgeirsdóttir, Sigurlín
Grímsdóttir og Sigurlína Kristinsdóttir. Sýningin
verður opin fram í miðjan ágúst.
Stefán Jakob Guðjohnsen, viðskiptafræðingur,
f. í Reykjavík 27. 5. 1931, sem hefur verið búsettur í
Árgili síðustu ár, lést 7. mars sl. Útför hans fór
fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík.
Ingibjörg Jónsdóttir, fyrrum húfreyja í Kjarn-
holtum 2, f. 10. desember 1932, sem hefur verið
búsett í Reykholti síðustu ár, lést 3. maí sl.
A. K.
Bjamaóúð Reykfiolti
Verslun og bensínafgreiðsla
Opið alla daga frá
9:00 til 21:00
Allar almennar matvörur og olíur
5 Litli Bergþór