Litli Bergþór - 01.05.2008, Side 18

Litli Bergþór - 01.05.2008, Side 18
skilning á lögum félagsins og skuldbindinga skrá nœr því verið orðinn sekur um lagabrot, því hann hefði œtlað að kaupa vín til þess að gefa það. Nafngreindi hún manninn og kvaðst vona að menn skoðuðu þetta óviljaverk hans. “ Ekki skráir Viktoría samt nafn þessa manns í fundargerðina. Bergur er óánægður með ræðu framsögumanns, þar sem honum finnst hann „vœna einhverja af félagsmönnum um laundrykkju. “ Jón lætur ekki deigan síga, „en kvaðst framvegis ekki mundi hlífa þeim, er hann hygði brotlega við bindindisheitið. “ Fyrri ræðumenn taka síðan aftur til máls og er haft eftir þeim í fundargerðinni að þeir óski „að ung- mennafélagar grunuðu ekki félaga sína um bind- indisbrot eða laga, nema sterkar líkur væri til. Myndi að öðrum kosti vakna tortryggni innan vébanda félagsins. “ Síðasti fundurinn á þessu félagsári virðist allur hafa farið í að ræða félagsmál. Þá ganga í félagið þeir Þorsteinn Þórarinsson og Sigurður Guðnason. Hinn fyrrnefndi varð strax á næsta fundi formaður félagsins og gegndi því starfi í 23 ár eða lengur en nokkur annar, og hefur raunar enginn annar átt svo lengi sæti í stjórn þess. Hinn síðarnefndi var gjald- keri félagsins í 10 ár. í lok þessa fundar kvartar for- maður undan því að þessi fundur sé illa sóttur, „og óskaði að hinn nœsti yrði fjölmennari. “ Akveðið var að halda hann 29. ágúst, en fram kemur í upphafi næstu fundargerðar að hann hafi farist fyrir „sökum þess hvefáir komu á fimdarstaðinn.“ Þriðja félagsár Aðalfundur var haldinn sunnudaginn 25. október 1909, og er það fyrsti fundur þriðja félagsárs. Mættir voru 15 félagar. í fundargerðinni kemur fram að fjórir ganga í félagið og áttu tvö þeirra, Ingvar Gísli Guðmundsson á Gýgjarhóli og Ingigerður Sigurðardóttir á Vatnsleysu, eftir að taka mikinn þátt í störfum þess meðan þeim entist aldur, en bæði urðu þau skammlíf. Aðrir fjórir segja sig úr félaginu, og sendu þeir skriflegar úrsagnir. Þar á meðal var Bergur Jónsson, sem hafði verið einn af helstu forustumönnum í stofnun og starfi félagsins. I setningarávarpi kemur fram að formaður, Þorfinnur Þórarinsson, er enn óánægður með félagsstarfið. Eftirfarandi er haft eftir honum í fundargerðinni. „Kvaðst hann hafa orðið fyrir mik- lum vonbrigðum með starfsemi félagsins síðastliðið ár. Aldrei hefði hann séð betur en nú að hinir yngri Tungnamenn hefðu erft ókosti feðra sinna ífélags- lífinu. Félagsmönnum hefði mjög lítið fjölgað, fundir illa sóttir og framkvæmdir engar. Kvaðst hann hafa mikla raun afþví hve illa gengi að halda við nokkrum félagsskap hér. “ í fundarlok fer fram stjórnarkjör. Þorsteinn Þórarinsson er kjörinn formaður með 15 atkvæðum í stað Þorfinns bróður hans. Ekki er getið um að hann hafi beðist undan endurkjöri, en það verður að teljast líklegt, enda hafði hann hafið búskap um Litli Bergþór 18 ---------------------------------- vorið. Viktoría er endurkjörin skrifari með átta atkvæðum og Ingvar Guðmundsson er kjörinn féhirðir með 13 atkvæðum. Varamenn eru kjörin Guðríður Þórarinsdóttir, varaformaður, Sigurður Guðnason, varaskrifari, og Þorsteinn Sigurðsson, varaféhirðir. Fjórða félagsár Það hefst með aðalfundi 7. nóvember 1910. A honum voru 28 félagar af 49, sem eru á félagaskrá fyrir þennan fund. Eftir að sagt hefur verið frá samþykkt fundargerðar er greint frá skýrslu form- anns, Þorsteins Þórarinssonar. Segir fyrst að hann hafi haldið „langa rœðu um starffélagsins f heild sinni; vítti hann félaga nokkuð fyrir áhugaleysi og dugnaðarleysi íframkvœmdum. Tók til dœmis að girðing sú, er byrjuð var haustið áður væri ekki full- gerð enn. “ Segir hann kostnað við girðinguna um 190 kr. og styrkur hafi fengist frá Umf. íslands til hennar rúmar 20 kr. Síðan segir: „Sundlaug sú, er ákveðið hafði verið að byggja hafði fyrirfarist. Var það sökum þess að ábúandi jarðar þeirrar, er sund- laugin skyldi byggð á, hafði sett Ungmennafélaginu þá afarkosti, er það gat eigi gengið að, að því er rœðumaður skýrði frá. Talaði hann síðan um óhug þann er margir utanfélagsmenn sýndust hafa til Ungmennafélagsins einkum þeir eldri. Ráðlagði hann œskumönnum að koma sér vel við hina eldri og leitast við að kenna þeim eldri að skilja og virða hugsjónir félagsinsT Hann segir síðan frá störfum sínum í þarfir félagsins, er mest voru fólgin í bréfa- skriftum.“ Þessu næst eru lagðir fram reikningar félagsins. Eru þeir sagðir frá árunum 1909 - 1910, en þetta er fyrsti reikningurinn og er allt frá stofnun þess. Reikningurinn er birtur hér eins og hann er skráður í bók þá, er nefnd er á titilblaði: „Skýrslur og reikningar Umf. Biskupstungna anno domini MCMIX“. Fremst í bókinni er pistill, sem ber yfirskriftina „777 skýringar. “ dagsettur á Drumboddsstöðum 1. júní 1913 og undirritaður af Þorsteini Þórarinssyni. Þar er greint frá því að félagið hafi ekki eignast þessa bók fyrr en þá um vorið. Síðan segir: „Eg hef síðan ég varð formaður félagsins gefið skýrslur árlega á hverjum aðalfundi um bréfaviðskipti þau, er ég hefi haft fyrir félagið og lesið upp nafnaskrá félagsmanna. Þá hefir féhirðir samið og lesið upp reikning félagsins fyrir líðandi ár og þeir verið samþykktir. Skýrsluna um hag og starfsemi félagsins hefir félagsstjórnin samið um hvert nýár og sent til fjórðungsstjórnar Sunnlendingafjórðungs. Fjórðungsstjórnin leggur til eyðublöð undir þær. Allar þessar skýrslur frá því félagið byrjaði þœr og til þessa hefi ég geymt og fært þær inn í bókina, en eftirleiðis er auðvitað réttast að fœra þœr í bókina undir eins og þær eru gerðar. “ I þessari bók eru skýrslur og reikningar til ársloka 1922. „Reikningur yfir tekjur og gjöld Umf.B. 1909-1910.

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.