Litli Bergþór - 01.05.2008, Side 26
Guðmundsdóttir upp tvö kvœði eftir sr. Matthías
Jochumson: Minni Islands og Þorgeir í Vík.“
Svipuð skemmtun er í fundarlok mánuði síðar.
Fundarritari segir svo frá: „ Umrœðum var nú lokið
og var þá tekið að syngja og dansa og skemmtu
menn sér við það mestallan hluta nœturinnar. Þá
var glímt nokkra stund. Þorfinnur Þórarinsson las
nokkurn hluta af sögunni Vistaskipti eftir Einar
Hjörleifsson. Einnig var komið í nokkra smáleiki.
Fundi slitið kl. 7 árdegisÞ
Næstu fundir enda flestir með söng og dansi og
stundum er eitthvað lesið upp.
Fyrstu almennu skemmtuninni, sem félagið heldur,
svipar á ýmsan hátt til fundanna, og er frásögnin af
henni nefnd fundargerð í starfsbókinni. Upphaf
hennar er á þessa leið: „Laugardagskvöldið 8.
janúar 1910 var ákveðin skemmtisamkoma að
Vatnsleysu í Biskupstungum afhálju
Ungmennafélagsins. Veður ogfœrð var mjög vont
þennan dag. Mikill snjór var á jörð og bylur síðari
hluta dagsins. Sökum þessa mœttu fáir félagar, en
nokkrir utanfélagsmenn komu samkvœmt sam-
komuboðinu. Alls mœttu um 30 manns og skemmtu
sér alla nóttina. Fyrst var dansað 2 stundir. “
Síðan setur formaður málfund og stendur liann í
tvœr klukkustundir, en var slitið kl. 11 um kvöldið.
Erá því sem fram fer á eftir segir svo ífundargerð-
inni: „Þvínœst skemmtu menn sér til morguns við
ýmislegt, er til gamans mœtti verða, svo sem söng,
spil og mikinn dans. Einnig léku menn nokkra
smáleiki. “
í fundargerð aðalfundarins haustið 1912 er í
fyrsta skipti greint frá umræðum um vetrarsam-
komuna og undirbúning hennar á fundi: „Eormaður
rœddi um skemmtisamkomu, er haldin mundi vera á
komandi vetri. Einnig Þorst. Sigurðsson og Viktoría
Guðmundsdóttir. Var stungið upp á að kjósa 5
manna nefnd til þess að sjá um skemmtunina í stað
þess að fela stjórn fél. umsjón hennar. Eins og gert
hefur verið. Fékk sú uppástunga góðan byr þegar
og var síðan samþykkt. Kosningu hlutu: 1.
Þorsteinn Sigurðsson með 18 atkv. 2. Sumarl.
Grímsson með 18 atkv. 3. íngvar Guðnmndsson með
16 atkv. 4. Salvör Ingimundard. með 14 atkv. 5. Sig.
Guðnason með 11 atkv. “
Þessi skemmtun er með töluvert öðru sniði en þær
sem haldnar voru árin á undan. Hún er ekki öðrum
þræði fundur og ekki haldin á venjulegum fundar-
stað félagsins. Skrifari, Þorsteinn Sigurðsson, segir
svo frá í starfsbókinni:
„ Skemmtun hélt Ungmennafélag Biskupstungna að
Miklaholti laugardaginn 4.jan. 1913, og sóttu hana
nálœgt 100 manns. Dagskrá hafði
samkomustjórnin samið, og fór skemmtunin fram
samkvæmt henni sem hér segir:
I. Samkoman sett kl. 7 síðdegis af varafor-
manni félagsins, Sumarliða Grímssyni. Fór liann
nokkrum orðum um erfiöleika sem á því væru að
undirbúa skemmtun að vetrarlagi. Bað menn eigi
taka hart áfélaginu þó skemmtun þessari vœri í
mörgu ábótavant, kvað félagið fullvel finna til þess.
Sagðist vona aðfólk gæti haft ánœgju af skenuntun-
inni, efallir kœmu íþeim tilgangi að skemmta.
Sungin nokkur lög.
II. Erindi og söngur á eftir. Erindið flutti sr.
Eiríkur Þ. Stefánsson á Torfastöðum, og var það um
Þrjár helstu fjárhagslegu leiðirnar til farsældarin-
nar.
III. Upplestur og söngur á eftir. Þorst.
Sigurðsson las upp í blaði félagsins, „Baldri“,
smásöguna „Gleymdur“ og „Viltu deyja?“.
IV. Leikur (Annarhvor). Leikendur: Salvör
Ingimundardóttir, Bríet Þórólfsdóttir, Sumarliði
Grfmsson og Jóhannes Kárason.
V. Ræða og söngur á eftir. Ræðuna flutti Ingv.
G. Guðnmndsson, Gýgjarlióli, og var hún um Island
og Islendinga.
VI. Drukkið kajfi.
VII. Dans.
VIII. Upplestur og söngur á eftir. Sumarliði
Grímsson las upp „Illugadrápu“ eftir St. G.
Stephanson og „Svanurinn ungi“, ævintýri.
IX. Dans.
Einnig voru leiknir tveir málsháttaleikir: „Tilþess
eru vítin að varastþau“ og „Ekki er allt sem
sýnist“.
Auk þess skemmtu menn sér við spil, tafl o. fl.
Það sem sungið var voru ýmis œttjarðarljóð, einnig
fáein ný lög sem nokkrir menn, karlar og konur,
höfðu æft saman undir stjórn frú Sigurlaugar
Erlendsd.
Inngangseyrir var 15 aur.fyrir fidlorðna en 10 aur.
fyrir unglinga innan fermingaraldurs, gekk það til
húsráðenda fyrir húslán, Ijós, kaffi, liitun o.fl.
Skemmtuninni slitið kl. 8 árd. (þ. 5. jan.)“
Næstu ár er skemmtun fyrstu dagana í janúar, 914 í
Miklaholti en 1915 á Torfastöðum. Dagskrá þeirra
beggja er rakin í starfsbókinni. Þar eru lialdnar
ræður um ýmis efni, upplestur, söngur, dans og
fleira. A þeirri fyrri er II. liður dagskrárinnar
kynntur þannig: „Leikur (101). Leikendur:
Sumarliði Grímsson, Guðbjörg Káradóttir, Jóhannes
Kárason, Bríet Þórólfsdóttir, Ingvar Eiríksson.
Upphækkaður pallur var settur í húsið, svo allir
gætu séð leikinn. “ Greint er frá næsta lið á eftir á
þennan hátt: III. Sungin nokkur lög og ennfremur
hafður „hljóðgeymir“ með íslenskum lögum, sungin
af P. Jónssyni, svo nokkur útlensk lög og dansar.
Öllum þessum samkomum er slitið kl. 8 árdegis.
Skemmtiferðir
A ungmennafélagsfundum í apríl og maí 1910 er að
frumkvæði formanns félagsins, Þorsteins
Þórarinssonar, rædd sú „ hugmynd að allir ung-
mennafélagarnir tækjust eitt sinn sameiginlega ferð
á hendur einhvern sunnudag sér til skemmtunar. í
þeirri ferð gætu þeir einnig haldið fiind, eftími yrði
til.“
Litli Bergþór 26