Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.1995, Síða 1
FRETTABREF
ÆTTFRÆÐIFELAGSINS
ISSN 1023-2672
1. tbl. 13. árg. - janúar 1995
Nýir
félagar
bls. 2
Jón Jónsson
bryti
bls.3
Jónarnir
hennar
ömmu
bls.6
Systurnar
Guðrún og
Guðrún
Jónsdætur
bls.8
Aðsent
bls. 12 og 13
Manntalið 1910
Út er komið fyrsta bindi af Manntalinu 1910, Skaftafellssýslur.
Þó þetta sé aðeins lítill hluti Manntalsins, finnst okkur, sem að þessu höfum
unnið, það stór áfangi.
Áfélagsfundi 23. mars 1988 varákveðið að Ettfræðifélagiðfæri aðathugameð
útgáfu á Manntalinu 1910. Var kosin útgáfu.æfnd og voru í henni Einar Egilsson,
Hólmfríður Gísladóttir og Sigurður Sigurðarson, - síðar kom í nefndina Eggert Th.
Kjartansson í stað Einars.
Vitað var að Erfðafræðinefnd átti Manntalið 1910 að nokkru leyti tölvuskráð
og lagði Jón Gíslason þáverandi formaður Ættfræðifélagsins áherslu á, að reynt
yrði að ná samvinnu við nefndina um tölvuvinnsluna, - það myndi spara okkur
vinnu. Tókst ágæt samvinna við Erfðafræðinefnd og hefur hún lagt mikla vinnu af
mörkum. Einnig fengum við leyfi Tölvunefndar til birtingar á gögnum þeim sem
Erfðafræðinefnd hafði úr Manntalinu og
öðrum óbeinum heimildum, ásamt leið-
réttingum.
Þá var séð, að í gögnum Þjóðskjalasafns
voru margar upplýsingar, sem ekki voru
tölvuskráðar hjá Erfðafræðinefnd. Þjóðskjala-
safnið lét okkur því í té aðgang að frumriti
Manntalsins og vinnuaðstöðu á Laugavegi
162.
Á vordögum 1990 var hafist handa við að
bera saman frumgögnin og tölvuútskriftina.
Þetta hefur verið mikil vinna en oft skemmtileg
þegar létt hefur verið yfir fólki.
Það hafa 6-8 mannS unnið að þessu í
sjálfboðavinnu á Þjóðskjalasafni við Lauga-
veg. Prófarkalestur hefur að mestu leyti farið fram á heimili formanns.
Manntalið 1910 er viðamikið verk og er vinnu við það hvergi nærri lokið, - bæði
er að þá voru íslendingar orðnir um 85.000 og svo eru þar miklar upplýsingar um
hvem mann. Ljóst er að Manntalið tekur mikið rúm og verður margar bækur.
Ráðgert er að gefa hverja sýslu út í bók og eitthvað af kaupstöðum sér, t.d.
Reykjavík.
Manntalið 1910 er svo nálægt okkur í tíma að það mun auðvelda fólki mjög leit
að uppmna sínum, sérstaklega ungu fólki.
Ég vona að félagsmenn og aðrir taki þessu Manntali vel og verði duglegir við
að kaupa það til að auðvelda okkur framhaldið.
Manntal á íslandi
1910
I Skaftafellssýslur
Ættfrxdifélagid gaf ut i samuinnu vid
Þjódskjalasafn íslands og Erfbafrxðinefnd.
með styrk úr Mennmgarsjóði
Hólmfndur Guladottir og Eggtrt Th. Kjartansson
táu um útgafuna
ÆllfnriiftUpA
RtykjiviV
Hólmfríður Gísladóttir