Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.1995, Síða 5
34 ára. í skiptagerð eftir föður 1811
er hún sögð ómagi í Grímsnesi.
4. Margrét Jónsd. f. 14. okt. 1771
Hömrum. Hfr. víða, d. 2. júlí 1846
Litlu-Reykjum Hraungerðishr.
Maki: Guðmundur f. 1766 d. 1846
Einarsson f. 1727 bónda Jaðri o.v.,
Magnússonar bónda s.st. 1729 Ein-
arssonar. Kona Einars Magnússonar
og móðir Guðmundar var Jórunn f.
1728 d. 1777Guðmundsdóttirbónda
Kóps vatni Þorsteinssonar (Jórunn var
fyrri kona Einars).
Guðm. Einarsson bjó á þessum
jörðum: Minna-Hofi, Unnarholtskoti,
Jaðri, Hamarsholti, Oddgeirshólum,
Litlu-Reykjum.
Börn Margrétar og Guðmundar,
sem upp komust:
Málfríður bústýra Jóns Þorsteins-
sonar í Hagakoti Holtum.
Eiríkur bóndi Litlu-Reykjum. Fyrri
kona: Solveig Magnúsdóttir frá Efri-
Gegnishólum. Seinni kona: Helga
Einarsdóttir lfá Gröf Hrunamanna-
hreppi, ekkja Einars Helgasonar
Starkarhúsum.
Einar bóndi Klængsseli Flóa. Kona:
Halldóra Magnúsdóttir f. Ártúnum
Oddasókn, alsystir Solveigar ný-
nefndrar.
5. Gísli Jónsson f. 22. nóv. 1775
Sveinavatni. Vinnumaður hjá föður
1795-1796, Oddgeirshólum 1801,
BárHraung. 1816 (Telur sig fæddan
á Ormsstöðum Gnmsnesi). V ar vinnu-
maður Vestra-Geldingaholti ffá 1817,
en síðast Bala Gnúpv. Hann dó 12.
ág. 1827.
6. Gunnhildur Jónsd. f. 26. marz
1787 Lambhúskoti. Öryrki. Varð
blind í bólunni líklega á 1. ári. Hún
dvaldi á þessum stöðum (Þetta mun
þó ekki vera tæmandi upptalning):
Heima á Minna-Hofi 1801, Torfa-
stöðumBisk. 1816,FossiHrun. 1819,
Unnarholti, BalaGnúpv. -1835-1840-
(bróðir hennar bjó þar) Stóra-Núpi -
1845-1855-, Ásum 1860, síðast Ham-
arsheiði d. 25. maí 1866.1 registri við
Þjóðsögur Jóns Árnasonar II. útg. er
Gunnhildur sögð hafa dáið í Unnar-
holti, en það er ekki rétt.
Gunnhildur var fróð. Brynjúlfur
Jónsson frá Minna-Núpi byrjaði
snemma að viða að sér fróðleik um
Gnúpverja á seinni hluta 18. aldar og
fyrri hluta 19. aldar. Sú vitneskja
nýttist Br. J. vel við ritun bókarinnar:
Sagan af Þuríði formanni og Kambs-
ránsmönnum.
Meðal beztu heimildarmanna Br.
J. voru frændkonur hans, systurnar
Gunnhildur og Þóra Jónsdætur.
Gunnhildar er getið sem heim-
ildarmanns í ritinu: Islenzkar gátur,
þulur og skemmtanir. Ennfremur er
hún heimildarmaður að mörgum þjóð-
sögum í safni Jóns Árnasonar. Sjá
registur yfir Þjóðsögur J.Á. II. útg.
7. Jón Jónssonf. 19.ág. 1789 Lamb-
húskoti bóndi Bala og Þrándarholti d.
28. des. 1847 Þrándarholti.
Kona: Vigdís f. 1798 d. 1859 Gísla-
dóttir bónda Hæli Gamalíelssonar.
Böm, sem upp komust:
Jón bóndi Kvíadal Grindavík kvænt-
ur Vilborgu Einarsdóttur ff á Laxárdal.
Gesturbóndi Sandlækjarkoti kvæntur
Þóru Bjarnadóttur frá Sandlæk.
Valgerður, konaBjarnaHafliðasonar
Hópi, Grindavík.
Elísabet, kona Guðm. Vigfússonar
Seljatungu Flóa.
Svanhildur kona Ingimundar Jó-
hannssonar, Súluholti Flóa.
Helga, kona Magnúsar í Vestra-íra-
gerði Stokkseyri Einarssonar í
Klængsseli Guðmundssonar.
8. Þórunn Jónsdóttir f. 6. júlí 1792
Háholti hfr. Austurhlíð Gnúpv. d. 10.
marz 1880 Seljatungu. Maki 1832:
Þorsteinn Rögnvaldsson frá Ásum f.
1815 d. 23. júlí 1843.
9. Þóra Jónsdóttir f. 6. ág. 1794
Háholti hfr. Þjórsárholti o.v. d. 25.
okt. 1889 Miklaholti Bisk. Maki: Jón
Ólafsson bóndi Þjórsárholti svo
Bræðratungu.
Börn, sem upp komust:
Guðrún kona Guðmundar Pálssonar
Miklaholti.
Helga, kona Jóns Bergsteinssonar
Stóra-Moshvoli, Hvolhreppi Rang.
Nikulás bóndi Miklaholti kvæntur
Guðrúnu Jónsdóttur, bónda Einholti,
ívarssonar.
Jónas drukknaði 23 ára.
Ólafur bóndi Reykjakoti Bisk. kvænt-
ur Sigríði Eiríksdóttur bónda Skálholti
svo Böðmóðsstöðum Jónssonar.
Um Jón Ólafsson í Þjórsárholtiog
nágranna hans, Nikulás f. 1786 d. 16.
sept. 1825 bónda Minna-Hofi, Páls-
son mynduðust útilegumannasögur.
Þeir fóru til grasatekju og álftaveiða á
Gnúpverjaafrétt.
Br. J. frá Minna-Núpi skrásetti
frásögn um þá félaga. Er hún prentuð
í riti Br. J. Tillag til alþýðlegra
fornfrœða (Rvík 1953). Þar segir s vo
m.a.:
"Jón sagði aldrei frá neinu, en
þykktist jafnan, þegar hann heyrði
fullyrt, að engir útilegumenn vœru
til, og sagt er, að hann hafi boðizt til
að sýna þá, efeinn maðurfœri með
sér, en ekki fleirum, en það þáði
enginn."
Frásögn um þá Jón og Nikulás er
ennfremur í Þjóðs. J.Á.
Maður er nefndur Bjarni
Sveinsson. Hann varfæddurum 1770
í Vogum Vatnsleysuströnd. Árið 1816
var hann bóndi að Fossum
Bergstaðasókn A-Húnav. Hann dó 22.
jan. 1855 aðSteináBólstaðarhlíðarhr.
Bjarni er heimildarmaður að
útilegumannasögu heldur hroðalegri,
sem prentuð er í Þjóðs. J.Á. Tími
þeirrar sögu er iok móðuharðinda.
Vettvangur sögunnar er
Biskupstungnaafréttur. Bjarni
Sveinsson var þar í för í eftirleit þá
unglingur og tveir bændur úr Bisk-
upstungum, sem nefndir eru Jón og
Nikulás. Jón var nokkuð við aldur.
í registri við Þjóðsögu J.Á. II. útg.
er saga þessi tengd Gnúpverjunum
Jóni Ólafssyni og Nikulási Pálssyni.
Nikulás var fæddur 1786, eða sama
árið og sagan á að hafa gerzt, en Jón
var fæddur nokkrum árum síðar.
/-------------------;------------------------------------------------------------------------\
Manntöl Ættfræðifélagsins 1801,1816 og 1845 eru fáanleg öll saman á 15.000 krónur eða manntölin 1801
og 1845 á 14.000 krónur. Bækurnar má panta í póstkröfu hjá formanni félagsins, Hólmfríði Gísladóttur, hs.
91-74689 og Klöru Kristjánsdóttur gjaldkera, hs. 91-51138. Einnig er hægt að fá einstök bindi.
Þá eru aðeins örfá eintök til af ritinu íslenzk mannanöfn, verð aðeins 1000 krónur.
V____________________________________________________________________________________________/
5