Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2008, Qupperneq 2
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2008
FRETTABREF
^ÆTTFRÆÐIFÉLAGSINS
Útgefandi:
© Ættfræðifélagið
Ármúla 19, 108 Reykjavík.
© 588-2450
aett@aett.is
Heimasíða:
http://www.ætt.is
Ritnefnd Fréttabréfs:
Guðfinna Ragnarsdóttir
S 568-1153
gudfragn@mr.is
Ólafur H. Óskarsson
© 553-0871
oho@internet.is
Ragnar Böðvarsson
© 482-3728
bolholt@eyjar.is
Umsjónarmaður
Fréttabréfs:
Guðfinna Ragnarsdóttir
Laugateigi 4, 105 Reykjavík
© 568-1153
gudfragn@mr.is
Ábyrgðarmaður:
Eiríkur Þ. Einarsson
formaður Ættfræðifélagsins
eirikur@eirikur.is
Umbrot:
Þórgunnur Sigurjónsdóttir
Efni sem óskast
birt í blaðinu berist
umsjónarmanni á rafrœnu
formi (tölvupósturldisketta)
Prentun: Gutenberg
Fréttabréf Ættfræði-
félagsins er prentað í 700
eintökum og sent öllum
skuldlausum félögum. Verð
í lausasölu er 300 kr. Allt
efni sem skrifað er undir
nafni er birt á ábyrgð
höfundar. Annað er á
ábyrgð ritstjórnar.
Skúli Skúlason
f. 31. 10.1918 d. 5. 2. 2008
heiðursfélagi í Ættfræðifélaginu
Látinn er í hárri elli í Reykjavík Skúli Skúlason frá Hólsgerði í
Köldukinn í Suður-Þingeyjarsýslu. Skúli var í áratugi virkur þátttakandi í
Ættfræðifélaginu. Hann sótti fundi og Opið hús, ferðaðist með félaginu í
sumarferðum þess og naut sín þar vel í góðum vinahópi. Hann var mjög
ættfróður og miðlaði óspart af þekkingu sinni. Hann gaf út tvær merkar
ættfræðibækur Laxamýrarættina og Hraunkotsættina sem báðar fjalla um
þingeyska ættarstofna. En einmitt þar var Skúli á heimavelli og manna
fróðastur. Þingeyjarsýslurnar, það voru hans lendur. Þessar bækur eru
nú orðnar afar fágætar og eftirsóttar. Hann vann á seinni árum einnig að
því að safna í Reykjaætt í Fnjóskadal, en náði því miður ekki að ljúka
því verki. Skúli sýndi í fræðistörfum sínum mikla elju og vann allt upp á
gamla mátann, handskrifaði og studdist við frumheimildir. Skúli var um
margt sérstakur maður og ekki allra, en í Ættfræðifélaginu átti hann marga
vini og kunningja sem mátu hann að verðleikum og þar kunni hann afar
vel við sig.
Skúli sótti fundi Ættfræðifélagsins fram á mitt síðasta haust þegar
halla tók undan fæti. Síðasta ættfræðifundinn sat hann í lok nóvember.
Hans hlýi hugur til Ættfræðifélagsins sýndi sig þegar hann ánafnaði því
ættfræðibókasafn sitt. Hann vissi sem var að þar kæmi það að góðum
notum og yrði mikils metið. Ættfræðifélagið þakkar Skúla áratuga tryggð
og samveru og höfðinglega bókagjöf. Félagar hans í Ættfræðifélaginu
kveðja hann með söknuði og virðingu og þakka langa og góða samfylgd.
Fyrirspurn
Bente Eide frá Noregi spyr um stjúpömmu sína sem var íslensk, hét
Kristín Hallgrímsdóttir og var frá Siglufirði. Hún var fædd 25. september
1904. Afi minn, segir Bente Eide, var Herman Henriksen. Hann varð
ekkill 1948 og 1951 giftist hann Kristínu Hallgrímsdóttur. Þau bjuggu í
Solund í Sogni og Fjordane. Eg veit að stjúpamma mín átti yngri bróður
á íslandi sem hét Hallgrímur Hallgrímsson. Ég held að hann sé dáinn en
sagan segir að hann hafi átt son, en nafn hans veit ég ekki. Ég væri mjög
glaður ef einhver gæti gefið mér upplýsingar um þetta fólk.
Ritstjóra sýnist Kristín hafa átt þrjú systkin: Ingibjörgu Þorgerði, f.
1893 d. 1963, trúlega bl., saumakonu á Siglufirði, Steinþór, f. 1896 d.
1957, kaupmaður á Siglufirði síðar útgerðarmaður í Kanada. Sonur hans
er Gunnar Jóhann Steinþórsson Flóvenz, f. 1924, framkvæmdastjóri í
Reykjavík. Hann á fjögur börn. Yngsti bróðir Kristínar er Hallgrímur f.
1906 d. 1994, trúlega bl., beykir á Siglufirði.
Nánari upplýsingar sendist til Fréttabréfsins og til bente.eide@
bluezone.no
Fréttabréf Ættfræðifélagsins kemur út tvisvar á vormisseri
og tvisvar á haustmisseri. Miðað er við textaskil 1. janúar,
1. mars, 1. september og 1. nóvember.
http://www.ætt.is
2
aett@aett.is