Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2008, Qupperneq 5
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2008
Það gæti svo sem verið skemmtilegt viðfangsefni
ættfræðilega séð, að reyna að finna út hversu margar
Rósur á Eyjafjarðarsvæðinu eru skyldar á miðri 19.
öld t.d. í 10. lið eða nær. Þegar Rósa fæðist á Ásgerð-
arstöðum á hún a.m.k. fjórar nokkuð náskyldar per-
sónur sem bera og hafa lifað undir Rósu nafni og sú
fimmta bætist við.
Forfeður og formæður hennar í 5 liði eru ann-
ars eyfirskrar ættar. Langalangafi hennar Halldór
Sveinsson er langafi föður hennar og móður hennar
einnig og býr á öðru býli í Fornhaga 1703. Dóttir
hans Þóra giftist Ivari Björnssyni frá Syðri-Reistará
og þau voru foreldrar Guðmundar Ivarssonar er bjó
á Bási, Hallfreðarstöðum, Löngu-Hlíð, Sörlatungu,
Löngu-Hlíð aftur og fleiri býlum í dalnum.
Arnþóra Ásmundsdóttir yfirsetukona var þriðja
kona hans og áttu þau saman Guðrúnu „yngri“, móð-
ur Rósu f. 1764, Rósu f. 1765, konu Þórðar Magnús-
sonar í Búðarnesi, Saurbæ og víðar í nágrenninu og
Þóru f. 1766, konu Olafs Guðmundssonar í Flöguseli.
Amþóra Ásmundsdóttir, amma Rósu, var sú þriðja
með því nafni af formæðrum hennar f. 1732 og fórst
í jarðskriðu í híbýlum sínum í Löngu-Hlíð sumar-
daginn 12. júní 1795. Mikil votviðratíð frá júníbyrj-
un hafði gegnsósað jarðveginri ofan býlisins svo að
þungi jarðarhörundsins varð rótunum ofviða og rót-
slitinn jarðvegurinn ruddist yfir tún og hús.
Guðmundur og Guðrún höfðu látið næstelstu
telpuna sína, f. 1792, heita Amþóru og reyndu ekki
aftur er meybam fæddist rúmum sjö mánuðum eftir
Hvað gladdi Rósu?
Sr. Gísli Kolbeins hóf erindi sitt um Skáld-Rósu á
að leggja smá þraut fyrir fundargesti. Hann spurði
hvað Rósa hefði átt við þegar hún kom að Kolvið-
arneslaug þar sem Glímu-Gestur eða Sund-Gestur,
sambýlismaður hennar, var að kenna sund og hún
kastaði fram eftirfarandi vísu:
Hresstist lund en sorgin svaf
ad sjá á fundi íta.
En mest aföllu gleði gaf
Gest á sttndi að líta.
Hvað átti Rósa við?, spurði sr. Gísli:
Hvað veitti henni svona mikla gleði? Var það að
sjá Gest á sundi? Voru það sundtök hans? Vom það
sundfötin eða líkamsvöxturinn?
Bjarni Stefán Konráðsson hagyrðingur frá
Frostastöðum í Blönduhlíð hafði svar við því:
Yndisstundu átti þá
hið unga sprund að vonum.
Hresstist lund er sœl það sá
sem var undir honum.
hér með að hafa meðtekið af herra sýslumanni A.
Thorsteinsen 3 rbd. 48 # þrjá dali og treimark sem er
mín hlutdeild af þeim 100 dölum sem allra náðugast eru
veittir til útbýtingar meðal eiðsvarinna yfirsetukona á
Islandi.
Ólafsvík þann 2.júlí 1847
Rósa Guðmundsdóttir
eiðsvarin yfirsetukona
Með eigin hendi.“
sorglegan dauðdaga ömmu hennar á Þorláksmessunni
1795. Arnþóra í miðið var f. 1664 og Amþóra elsta
Olafsdóttir, systir sr. Þórarins Olafssonar á Bægisá,
var f. 1600. Þær voru hver annarrar amma. Ólafsdóttir-
in var móðir Ásmundar bónda í Skefilsstaðahreppi
í Skagafirði. Ásmundur, á Stóru-Brekku og Svíra í
túnfæti Möðruv.kl. Jónsson Kolbeinssonar í Gunnars-
húsum í Eyjafirði fram, var svo sonur Arnþóru í miðið
og faðir Arnþóru yfirsetukonu. Móðir hennar var Þóra
Sigvaldadóttir á Stóru-Brekku og Svíra.
Þá er enn eftir að nefna foreldra Ivars Björnsson-
ar langafa Rósu og tengdason Halldórs Sveinssonar
áðumefnds bónda í Fomhaga 1703. Þau voru Björn
Ivarsson á Syðri-Reistará, seinni maður Sigríðar Ket-
ilsdóttur f. 1646, sem átti Rósu Brandsdóttur f. 1688
með seinni manni sínum, Brandi Þorleifssyni á Reist-
ará. Foreldrar Jóns Kolbeinssonar í Gunnarshúsum í
Saurbæjarhreppi, sem var eiginmaður Arnþóru í mið-
ið var sonur Kolbeins og Guðnýjar í Seljahlíð. Rétt er
að geta þess að það var ekki fyrr en 1800, sem Þóra
móðursystir Rósu lét dóttur sína heita Amþóru.
Við getum svo sem brotið heilann um hvers vegna
Guðrún „yngri“ á Ásgerðarstöðum lét ekki dóttur
sína heita í höfuðið á móður sinni, þar sem telpan
Gomsuflennur
Ritstjórinn hafði bakað pönnukökur og jólakökur
í tilefni dagsins og til heiðurs Rósu og bauð öllum
fundargestum. Sr. Gísli hafði á orði þegar hann sá
kræsingamar: Þú hefðir heldur átt að bjóða upp á
gomsuflennur, Guðfinna mín, eins og Rósa gerði
þegar hún fékk gesti. Þegar ritstjórinn kom af
fjöllum varðandi gomsuflennumar útskýrði hann
að gomsuflennur væru lummur sem bakaðar hefðu
verið á járnplötu yfir glóðinni í eldstónni.
http://www.ætt.is
5
aett@aett.is