Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2008, Síða 20
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2008
kosninguna með glæsibrag. Öflugasti stuðingsmaður
Sigurðar í kosningabaráttunni var verðandi svili hans,
Jón Ásgrímsson á Fossbrekku.
Sigurður Jensson vígðist og kvæntist Hallfríði
Árnadóttur. Það átti fyrir síra Einari á Breiðabólsstað
í Breiðumerkurþingum að liggja að kvænast í annað
sinn, þótt tekinn væri að reskjast. Seinni kona hans
var Reykjavíkurdama, Elín Gísladóttir Guðmundsen,
frænka Arnarfellssystra. Börn Einars og Elínar hétu:
Gísli, Ingunn, Þórunn. Hér fer á eftir lokakafli sög-
unnar:
Árni bjó á Arnarfelli til elli. Hann tók til fósturs
Árna dótturson sinn frá Fossbrekku, gaf honum
jörðina Ás í lifanda lífi og lét lýsa gjöfinni á Fögru-
vallaþingi. Þegar hann dó, fór Rósa til dóttur sinnar,
Elínar á Fossbrekku, en Bjarni Gestsson tók við búi á
Arnarfelli. Hann giftist frændkonu sinni, Ingibjörgu,
systur Símonar í Hrauntungu, sem hafði alizt upp
jafnframt honum. Síra Sigurður á Fossvöllum varð
auðugur að kvikfé, enda var jörðin ágæt sauðjörð.
Hann þótti hinn bezti ræðumaður og tónaði svo vel að
unun var að heyra. Reglumaður var hann hinn mesti
og vinsæll; varð prófastur þegar síra Einar sleppti því
embætti. Fjögur börn átti hann með konu sinni, þrjá
syni og eina dóttur, sem hét Rósa eftir ömmu sinni.
Sveinamir hétu Árni, Jón og Sturlaugur.
Lúkum vér hér sögu þessari. Hafi sá þökk er
hlýðir.
Guðjón Óskar Jónsson sendi.
Um ættfræðifundi á Suðurnesjum
í janúar sl. hitti ég Ólaf H. Óskarsson, fyrverandi
formann Ættfræðifélagsins og rifjaðist þá upp í
okkar samtali að hann hefði sent mér bréf seinni
part sumars árið 2000 og mælst til þess að ég beitti
mér fyrir því að félagar í Ættfræðifélaginu, búsettir
á Suðurnesjum, kæmu saman einu sinni í mánuði
yfir veturinn til að ræða sín hugðarefni. Ekki ætla
ég rekja þetta samtal urn fram það að láta þess getið
að hann hvatti mig til þess að gera gein fyrir þessu í
Fréttabréfi Ættfræðifélagsins.
Eftir að ég hafði velt þessu fyrir mér, þarna um
árið, þá ákvað ég að senda öllum skráðum félögum
í Ættfræðifélaginu á þessu svæði bréf og boðaði
til fundar í Bæjarbókasafninu við Hafnargötu í
Keflavík þriðjudagskvöldið 7. nóvember. kl. 20.00
til 21.30. Áður hafði ég að sjálfsögðu fengið leyfi hjá
forstöðumanni bókasafnsins fyrir þessari samkomu.
Ekki er ég með það á hreinu hvað margir sóttu
þennan fyrsta fund, en hann var það vel sóttur að við
ákváðum að halda þessu áfram og höfum við komið
þarna saman, alla vetur, fyrsta þriðjudag í hverjum
mánuði, frá okóber til maí. Rétt er að geta þess að
fyrst í stað eftir fyrsta fundinn voru þeir færðir yfir á
mánudaga, en svo aftur seinna yfir á þriðjudaga.
Þá er að segja frá fundarsókn. í vetur höfum við
komið saman eftir þessari reglu og hafa fundarmenn
flestir orðið ellefu. En hvað er rætt á þessum fundum?
Fundarefni er ekki ákveðið fyrir fram, en það er rætt
svona vítt og breitt um ættfræði og ef einhver er að
leita að einhverju sérstöku þá er reynt að leysa úr því.
í bóksafninu er gott safn ættfræðibóka er oft hægt að
leysa úr því á staðnum, en sé það ekki hægt þá er bara
hægt að benda fólki á þjóðskjalasafnið, en það eiga
bara ekki allir gott með að nýta sér það.
Það koma hér út tvo blöð vikulega og er þeim
dreift í öll hús á Suðurnesjum og er sagt frá þessum
fundum í þeim vikuna áður en fundur er haldinn.
Þá er að síðast en ekki síst að geta þess að
forstöðumaður bókasafnsins og annað starfsfólk þar
hefur sýnt okkur mikinn velvilja og eru því færðar
bestu þakkir
Keflavík ífebrúar 2008
Einar Ingimimdarson
Brekkubraut 13, 230 Keflavík
einaringim@simnet.is
*
Askorun til stjórnar Ættfræðifélagsins
og annarra?
Þegar ég var að setja saman frásögn af ættfræðifundum
á Suðurnesjum, þá rifjaðist upp fyrir mér að ég hafði
heyrt í fréttum nánar tiltekið lesið upp í RÚV af frétta-
ritara þess í Ósló að í Noregi væru allar kirkjubækur
komnar á netið og einnig stór hluti manntala. Þetta þótti
þessum fréttaritara tíðindi og mér finnst það líka.
Ég veit ekki betur, en að íslendingar hafi talið sig
ættfróðustu menn sem sögur fara af og ætla ég ekkert
að rengja það, enda skortir mig bæði þekkingu og
brjóstvit til að geta lagt mat á það.
Hitt sýnist mér augljóst að samkvæmt ívitnaðri
frétt, þá er aðstaðan á íslandi til ættfræðiskráninga,
ekki sú besta sem til er. Því það eru einungis tvö
manntöl hér komin á netið. Rétt finnst mér að
vekja athygli á því að kirkjubækur, þær sem til eru
á örfilmum, eru settar á það form af bandarískum
mormónum af íslenskum ættum.
Þá er rétt að minnast aðeins á íslendingabókina,
hún er góð það sem hún nær. í henni er hægt að rekja
frá langömmum og langöfum, en ef maður fer einum
aftar þá er ekkert til viðbótar út úr því að hafa.
Ég vil því beina því til stjórnar Ættfræðifélagsins
og annara sem aðstöðu og áhuga hafa á þessum
málum að þrýsta á viðkomandi aðila um að setja
kirkjubækur og manntöl á netið, það yrði til mikils
hagræðis fyrir allflesta.
Með bestu kveðju,
Keflavík ífebrúar 2008
Einar lngimundarson
http://www.ætt.is
20
aett@aett.is