Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2010, Blaðsíða 24

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2010, Blaðsíða 24
FRÉTTABRÉF ^^TTFRÆÐIFÉLAGSINS Ármúla 19, 108 Reykjavík, Heimasíða: http://www.ætt.is, Netfang:aett@aett.is Nýr opnunartími Þjóðskjalasafns Á vetrartíma 1. okt. til 20. maí er lestrarsalur- inn opinn frá mánudegi til fimmtudags kl. 10:00 til 17:00 og á föstudögum kl. 10:00 til 16:00. Á sumartíma frá 20. maí til 1. okt. er lestrarsal- urinn opinn frá mánudegi til fimmtudags kl. 10:00 til 17:00 og á föstudögum kl. 10:00 til 14:00. Opið hús Munið OPIÐ HÚS alla miðvikudaga frá kl. 17:00-19:00 að Ármúla 19, 2. hæð. Allir eru velkomnir með spurningar og svör, áhuga og gott skap. Þar er margt spjallað og alltaf heitt á könnunni. Munið að þar eru sér- fræðingar á hverju strái sem elska að tala um ættfræði og veita fúslega aðstoð. Nýtið ykkur bókasafnið, tölvurnar og forritin sem hafa að geyma ótal ættartengsl. Komið og kíkið í nýjar ættfræðibækur. Bóksalan er opin á sama tíma og Opið hús. Það gengur óðum á hin ómissandi manntöl og þau eru á góðu verði. STORLÆKKAÐ VERÐ Á MANNTÖLUM Nú er lag að kaupa manntölin. Þau eru aðeins til í takmörkuðu upplagi og verða ekki endurútgefin. Mörg hefti og bindi eru nú þegar uppseld. Ákveðið hefur verið að stórlækka verðin á manntölunum svo allir geti eignast þessi bráðnauðsynlegu hjálpartæki við ættfræðirannsóknir. Tilvalið er að gefa jafnt ungum sem öldnum manntöl í afmælisgjafir. Verðskráin lítur svona út: Manntal 1910 1. bindi: Vestur-Skaftafellssýsla, 1.000 kr 2. bindi: Árnessýsla, 2.000 kr 3. bindi: Rangárvallasýsla, 2.000 kr 4. bindi: Gullbringu- og Kjósarsýsla, 2.000 kr 5. bindi Reykjavík 1 og 2, 8.000 kr Manntal 1845 1 .-3. bindi 1.000 kr hvert bindi Manntal 1816 6. hefti 500 kr (allt sem til er) Manntal 1801 3. bindi Norður- og Austuramt 1.000 kr (allt sem til er) Hægt er að fá þessi manntöl á skrifstofu félagsins Ármúla 19 á Opnu húsi sem er alla miðvikudaga kl. 17:00 - 19:00. Einnig má panta þau í síma 867-4347 eða í tölvupósti á netföngunum aett@aett. is og gudfragn@mr.is. Aprílfundur Næsti félagsfundur Ættfræðifélagsins verður haldinn fimmtudaginn 29. apríl, kl. 20:30 í húsi Þjóðskjalasafnsins að Laugavegi 162, 2. hæð, Reykjavík. Þar mun Bjarni Harðarson bóksali á Selfossi, halda erindi sem hann kallar Ættfræði og skáldskapur. Þar fjallar hann um tilurð bókar sinnar, Svo skal dansa, sem er ættarsaga formæðra hans. Kaffi og spjall í í í & Maífundur MaífundurÆttfræðifélagsins verður haldinn fimmtudaginn 27. maí, kl. 20:30 í húsi Þjóðskjalasafnsins að Laugavegi 162, 2. hæð, Reykjavík. Þar mun Valgarður Egilsson læknir, halda erindi sem hann kallar Hugleiðingar um ættfræði og lækn- isfræði.

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.