Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2010, Síða 24
FRÉTTABRÉF
^^TTFRÆÐIFÉLAGSINS
Ármúla 19, 108 Reykjavík, Heimasíða: http://www.ætt.is, Netfang:aett@aett.is
Nýr opnunartími
Þjóðskjalasafns
Á vetrartíma 1. okt. til 20. maí er lestrarsalur-
inn opinn frá mánudegi til fimmtudags
kl. 10:00 til 17:00 og á föstudögum
kl. 10:00 til 16:00.
Á sumartíma frá 20. maí til 1. okt. er lestrarsal-
urinn opinn frá mánudegi til fimmtudags
kl. 10:00 til 17:00 og á föstudögum
kl. 10:00 til 14:00.
Opið hús
Munið OPIÐ HÚS alla miðvikudaga frá
kl. 17:00-19:00 að Ármúla 19, 2. hæð.
Allir eru velkomnir með spurningar og svör,
áhuga og gott skap. Þar er margt spjallað og
alltaf heitt á könnunni. Munið að þar eru sér-
fræðingar á hverju strái sem elska að tala um
ættfræði og veita fúslega aðstoð.
Nýtið ykkur bókasafnið, tölvurnar og forritin
sem hafa að geyma ótal ættartengsl. Komið og
kíkið í nýjar ættfræðibækur.
Bóksalan er opin á sama tíma og Opið hús. Það
gengur óðum á hin ómissandi manntöl og þau
eru á góðu verði.
STORLÆKKAÐ
VERÐ Á MANNTÖLUM
Nú er lag að kaupa manntölin. Þau eru aðeins til í
takmörkuðu upplagi og verða ekki endurútgefin.
Mörg hefti og bindi eru nú þegar uppseld. Ákveðið
hefur verið að stórlækka verðin á manntölunum svo
allir geti eignast þessi bráðnauðsynlegu hjálpartæki
við ættfræðirannsóknir.
Tilvalið er að gefa jafnt ungum sem öldnum
manntöl í afmælisgjafir.
Verðskráin lítur svona út:
Manntal 1910
1. bindi: Vestur-Skaftafellssýsla, 1.000 kr
2. bindi: Árnessýsla, 2.000 kr
3. bindi: Rangárvallasýsla, 2.000 kr
4. bindi: Gullbringu- og Kjósarsýsla, 2.000 kr
5. bindi Reykjavík 1 og 2, 8.000 kr
Manntal 1845
1 .-3. bindi 1.000 kr hvert bindi
Manntal 1816
6. hefti 500 kr (allt sem til er)
Manntal 1801
3. bindi Norður- og Austuramt 1.000 kr (allt sem til
er)
Hægt er að fá þessi manntöl á skrifstofu félagsins
Ármúla 19 á Opnu húsi sem er alla miðvikudaga
kl. 17:00 - 19:00. Einnig má panta þau í síma
867-4347 eða í tölvupósti á netföngunum aett@aett.
is og gudfragn@mr.is.
Aprílfundur
Næsti félagsfundur Ættfræðifélagsins verður haldinn fimmtudaginn 29. apríl, kl. 20:30 í húsi Þjóðskjalasafnsins að Laugavegi
162, 2. hæð, Reykjavík. Þar mun Bjarni Harðarson bóksali á Selfossi, halda erindi sem hann kallar Ættfræði og skáldskapur.
Þar fjallar hann um tilurð bókar sinnar, Svo skal dansa, sem er ættarsaga formæðra hans.
Kaffi og spjall
í í í &
Maífundur
MaífundurÆttfræðifélagsins verður haldinn fimmtudaginn 27. maí, kl. 20:30 í húsi Þjóðskjalasafnsins að Laugavegi 162,
2. hæð, Reykjavík. Þar mun Valgarður Egilsson læknir, halda erindi sem hann kallar Hugleiðingar um ættfræði og lækn-
isfræði.