Foreldrablaðið - 01.01.1971, Síða 11

Foreldrablaðið - 01.01.1971, Síða 11
g STEFÁN INGV! FINNBOGASON tannlæknir. Tannvernd er að verða fastur þáttur í almennri heilsugæzlu barna. Börn á barnaskólaaldri fá hér á höfuðborgarsvæðinu reglulega skoðun og með- ferð hjá skólatannlæknum og áhugi er vakinn á því, að koma slíku skipulagi á út um land. Enda er heilbrigði tanna svo nátengd almennu heilsu- fari, að þar verður varla skilið á milli. Tennurnar eru hluti af því lifandi vefjakerfi, sem nefnist líkami, taka til sín næringu, vaxa, starfa og hrörna og gefa svörun við ertingu. Allir hlutir líkamans eru meira og minna háðir hver öðrum. Sjúkdómur í einum veldur truflun á starfsemi annars. Hlutverk tannanna er að bíta fæðuna sundur, mylja hana og merja og búa hana undir meltingu magans. Skemmdar tennur eru oft viðkvæmar og aumar og valda því óþægindum, þegar tuggið er. Hjá börnunum verða þær því stundum orsök lystar- leysis og vannæringar. Barnatennur gegna því hlutverki, auk þess, sem ofan greinir, að leiða fullorðinstennurnar á sinn rétta stað í tannröðinni. Ótímabær missir barnatannanna getur því valdið tannskekkju. Helztu vefir tannar eru glerungar, tannbein og kvika. Tveir fyrrnefndu eru harðir og blóðlausir, en kvikan er mjúkur, æðaríkur vefur, sem er inni- luktur að mestu leyti í tannbeini. Verði tannkvikan fyrir ertingu af völdum tann- átu, er svörun hennar sú sama og hjá öðrum æða- ríkum vefjum, fyrirferðaraukning eða bólga. En vegna innilokunar veldur bólgan þrýstingi inni ( tönninni, sem aftur hindrar blóðrás kvikunnar og veldur drepi. Síðar rotnar kvikan og leysist upp og eftir er aðeins kvikuholdið með aragrúa af bakteríum, sem líkaminn getur ekki ráðið við. Skemmdar tennur eru því hin ákjósanlegasta gróðrarstía fyrir bakteríur, sem bíða færist að ráðast á líkamann, þegar viðnámsþrótturinn er minnstur. Tannáta er sjúkdómur, sem stafar af óhóflegu sykuráti. Þar er skaðvænlegust sykurneyzla milli hinna föstu máltíða. Sykurinn myndar sýru í munninum, sem vinnur á glerungnum, og þegar glerungslagið er rofið, þá er eftirleikurinn auðveldur og átan grefur sig brátt inn í innri hluta tannarinnar með áðurnefndri afleiðingu. Glerungur barnatanna er þynnri en fullorðins- tanna, kvikuholið stærra og því styttri veg að ryðja fyrir bakteríur inn í kviku. Nýuppkomnar tennur eru líka mjög viðkvæmar fyrir tannátu og fyrstu fullorðinstennurnar verða því oft illa leiknar af hennar völdum. Tannlæknir ræður yfir ýmsum meðulum, sem draga úr hættu tannskemmda. Hann getur líka stöðvað tannátu, ef gripið er í taumana í tæka tíð. Ef fólk kemst yfir barna- og unglingsárin með góðar tennur, eru miklar líkur fyrir því, að hægt sé að halda þeim tönnum alla æfi, þótt löng verði.

x

Foreldrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.