Foreldrablaðið - 01.01.1971, Qupperneq 12
10
)
Nýtt skólahúsnæði
Margir hafa veitt eftirtekt húsi, sem risið er
suður í Fossvogi, rétt fyrir ofan Fossvogskapellu,
og velt fyrir sér, hvaða hús þar sé verið að
byggja.
Þetta er skóli fyrir börn á aldrinum 4 til 16
ára. Börn, sem eru heyrnarlaus eða með svo
skerta heyrn, að þau geta ekki tekið þátt í námi
í almennum barnaskóla.
Áður var Heyrnarleysingjaskólinn til húsa í
Stakkholti 3. Þar er húsnæði þegar orðið of lítið
og óhentugt, bæði vegna fjölda 6 ára barna, en
ekki síður vegna stórkostlegrar truflunar frá um-
ferðinni. Skóli, sem hefur kennslutæki, er magna
eiga öll hljóð, þarf að draga sig út úr mesta
ónæðinu vegna umferðarinnar og þeim hávaða,
sem skapast frá henni.
[ Heyrnleysingjaskólanum eru nú rúmlega 50
börn. Af þeim eru 24 börn í heimavist. Það eru
börn, sem eiga lögheimili utan Reykjavíkur. —
Heimavistin er enn til húsa í Stakkholti, en börn-
in fara á milli gamla og nýja skólans í skólabíl.
Nýtt húsnæði fyrir heimavistina er áætlað að reisa
í Fossvoginum á næsta ári. Nú er í smíðum álma,
m. a. fyrir heilsugæzlu.
Inni í nýja húsnæðinu, sem flutt var í 12. febr.
s. I., eru gangar og stofur bjartar og snyrtilegar.
Stofurnar eru ekki stórar en búnar út með þarfir
skólans í huga. Inn af þeim er lítill klefi með tækj-
um til þjálfunar hvers eins nemanda fyrir sig.
í kjallara hússins er stórt og rúmgott herbergi.
Þar eru börnin í frímínútunum og þar neyta þau
nestis, sem skólinn leggur þeim til.
Aðstaða til leikja úti við er enn ekki góð, eins
og oft vill verða, meðan á byggingu húsa stendur.
Það vekur athygli gesta, þegar inn er komið,
hversu andrúmsloftið er sérstaklega hlýlegt og
þægilegt.
Við skólann starfa 9 kennarar og þrjár fóstrur,
auk skólastjórans, Brands Jónssonar.
Þess má að lokum geta, að starfandi er for-
eldrafélag, sem hugsar um vöxt og viðgang skól-
ans. Það hefur veitt skólanum ýmiss konar stuðn-
ing og m. a. átt fulltrúa í bygginganefnd skólans.
Er það eina foreldrafélag hér í Reykjavík, sem haft
hefur slíka aðstöðu við byggingu skólahúss í borg-
inni. G. Þ.