Foreldrablaðið - 01.01.1971, Side 23

Foreldrablaðið - 01.01.1971, Side 23
RAGNA ÓLAFSDÓTTIR EINS OG KOMIÐ HEFUR FRAM f BLAÐA- GREINUM, HEFUR VERIÐ GERÐ KÖNNUN Á BYRJENDABÓKUM í LESTRI, MED TILITI TIL KYNSKIPTINGAR. VEGNA EÐLIS MÁLSINS ÞÓTTI HLÝÐA AÐ FORVITNAST NÁNAR UM ÞETTA. VAR LEITAÐ TIL RÖGNU ÓLAFS- DÓTTUR KENNARA, SEM ER EiN ÚR ÞEIM HÓPI, ER AÐ KÖNNUNINNI STÓD. Þar sem þið athuguðuð m. a. byrejndabækur í lestri, er ekki úr vegi að spyrja, hvort þær séu ekki fyrst og fremst samdar með það markmið fyrir augum að þjálfa lestur? Að sjálfsögðu hlýtur það að vera aðaltilgang- urinn, og þegar þækur eru athugaðar, má segja að lestrarfræðileg þygging, a. m. k. hinna nýrri, svari nokkuð vel kröfum tímans. — En þessar bækur hafa einnig öðru þýðingarmiklu hlutverki að gegna, þ. e. uppeldislegu. Það er þessi þátt- ur, sem vakið hefur áhuga minn og orðið þess valdandi, að ég hef átt þátt í könnun, þar sem athugaðar voru þær fyrirmyndir, sem börn kynnast í bókunum, með tilliti til skiptingarinnar stelpu- legt — strákalegt, kvenlegt — karlmannlegt. Hvaða áhrif lestrarefni barna hefur aftur á móti á hugmyndaheim þeirra, er ekki auðsvarað. Þó má fullyrða, að slík áhrif aukast í hlutfalli við möguleikana á að bera sig saman við þær per- sónur, sem lýst er. Þá skiptir kynið einmitt máli, þar sem drengir munu nánast eingöngu bera sig saman við karlkynspersónur, en stúlkur að lík- indum langoftast við kvenkynspersónur. Geturðu lýst að einhverju leyti þeirra mynd, sem börn fá af umheiminum í umræddum bókum með tillit til þeirrar hlutverkaskiptingar, sem þú get- ur um? Sú mynd, sem fram kemur, er skýrt ákveðin. Stúlkur eiga skilyrðislaust að vera hlýðnar og iðn- ar, en aftur á móti koma fyrir drengir, sem eru óhlýðnir og latir. í skólanum eru stúlkur samvizku- samar, þó er spekingurinn í bekknum auðvitað drengur. Athafnasvið stúlkna er fábreytt. Ef þær eru ekki að hjálpa mömmu við húsverkin, eru brúður og mömmuleikir aðaláhugamál þeirra. — Dóra á aldrei of margar brúður. Mikil áherzla er lögð á það, að stúlkur séu fallegar, enda ekki lítils virði að verða „fríð og góð frú“. — Eftir- tektavert er, hve stúlkur eru miklu oftar áhorfend- ur en drengir, þar sem bæði kynin eru nefnd sam- an við störf eða leiki (sem er þó ekki algengt).

x

Foreldrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.