Foreldrablaðið - 01.01.1971, Side 26

Foreldrablaðið - 01.01.1971, Side 26
24 æskufólks Margir sjóðir hafa verið stofnaðir hér á landi á liðnum áratugum. Tilgangurinn hefur verið marg- víslegur — sennilega alltaf góður — en oft hefur árangur orðið lítill. Er þar einkum því um að kenna, að verðgildi peninga hefur farið hrað- minnkandi um langt árabil. Hafa því margir sjóðir, sem eitt sinn voru allmyndarlegir, dregizt svo sam- an, að ekki var unnt að ná því markmiði, sem stefnt var að. Aðra sögu er að segja af Hjálparsjóði æsku- fólks. Hann vex með ári hverju og það allhratt, en er þó jafnframt fær um að gegna miklu hlut- verki og vaxandi í samræmi við skipulagsskrá sína. Einn maður hefur unnið mest að stofnun og eflingu þessa sjóðs. Er það Magnús Sigurðsson, fyrrverandi skólastjóri við Hlíðaskólann. í þessu blaði árið 1964 er viðtal við Magnús. Um það leyti var hann að sýna kvikmyndina ,,Úr dagbók lífsins“. Þá mynd lét hann gera í þeim tilgangi tvennum, að gera fólki Ijósa nauðsyn margs konar hjálpar til handa mörgu æskufólki og að afla fjár til þess að gera það mögulegt. Þessi kvikmynd var fyrst sýnd hér í Reykja- vík, en síðan ferðaðist Magnús með hana víðs vegar um landið. Býst ég við, að fáar eða engar kvikmyndir aðrar hafi verið sýndar á jafnmörg- um stöðum. Mikill ágóði varð af sýningunni og er hann aðalstofnfé og þar með grundvöllur sjóðs- ins. Foreldrablaðið gerði nokkra grein fyrir þessu 1968. Síðan hefur starfinu verið haldið fram með góðum árangri. Sjóðurinn óx, og menn fóru að veita honum aíhygli. Kom það meðal annars fram þannig, að það fóru að berast gjafir — stund- um allveru'egar frá fólki víðs vegar um landið. Segir Magnús, að þær hafi venjulega komið alveg óvænt. Þar kom, að ríkissjóður fór að leggja Hjálpar- sjóði fé og sömuleiðis borgarsjóður Reykjavíkur. Ekki er þó þar um að ræða háar upphæðir á mælikvarða nútímans. Sjóðurinn er nú orðinn 3'h millj. króna og árs- vextir um 300 þús. Alls hafa um 80 börn og unglingar þegið fjár-

x

Foreldrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.