Landneminn - 01.12.1948, Qupperneq 16
Sendið ráðningamar til
LANDNEMANS, Þórsgötu 1,
Reykjavík, og merkið um-
slagið G E T T U N 0.
í FYRSTU VONAÐIST ÉG til þess, að þessi siða Land-
nemans yrði vinsæl og vel þegin af mörgtim lesendum hlaðsins.
Nú hefur þessi von mín rætzt eftir bréfunum ykkar að dæma.
Þeir tugir bréfa, sem mér og siðunni minni berast múnaðarlega,
eru óræk sönnun þess, að efnið sem síðan flytur veitir allfjöl-
mennum hóp lesenda ánægjulega dægrastyttingu. Það er vita-
skuld tilgangur hennar og nú er að halda áfram á sömu
braut. — Sérstaklega vil ég þakka þér bréfið þitt, Ólöf litla
Magnúsdóttir, Rvík, og vissulega mun ég færa mér í nyt þraut-
irnar, sem þú sendir mér. Kærar þakkir fyrir bréfið þitt,
Ólafia Dagnýsdóttir, Vopnafirði. Það, sem þú biður um í
bréfi þínu, verður þér sent innan skamms.
ÞESSIR
TVEIR menn.
sem myndirnai
eru af eru
Björn Sigurðs
son (til vinstri)
og Jón Kristj
ánsson (til
hægri). Báðir
hafa þeir tekið
þátt í öllum
verðlaunaþraut-
um Landnemans til þessa og alltaj sent
réttar lausnir. Þeir eru báðir jafngamlir,
23 ára og eru verkamenn.
VERÐLAUNAGETRAUN 7. TBL. Af 22 þátttakendum sendu
aðeins 15 rétta lausn og eru nöfn þeirra þessi. Hrafnhildur
Tómasdóttir, Rvík, Björn Sigurðsson, Rvík, Einar Guðmunds-
son, Akureyri, Torfi Jónsson, Rvík, Helgi Einarsson, Akureyri,
Haraldur Steinþórsson, Isafirði, Albert Jónsson, Rvík, Jón
Kristjánsson, Rvík, Kristján Hákonarson, Rvik, Haukur Valde
marsson, Rvík, Guðmundur Árnason, ísafirði, Bjarni Jónsson,
Rvík, Hildur Jónsdóttir, Rvík, Sigmundur Hannesson, Rvík,
Guðrún Eggertsdóttir, Rvík. — Rétt lausn á þrautinni er sú,
að tjaldið var i 5 km fjarla:gð frá suðurpólnum. Margir les-
endur létu þá skoðun í Ijós, að þessi þraut hafi verið alltof
létt og skal það bætt upp með þyngri þrautum í þessu tölu-
blaði og jólablaðinu. — Dregið hefur verið milli þeirra, sem
réttar lausnir sendu og verðlaunin að þessu sinni hlaut Jón
V erðlaunagetraun
5,5,5,5,5
Nú er þrautin sú, að tákna á með þessum
fimm 5-tölum (5, 5, 5, 5, 5) sérhverja tölu í
byrjun talnakerfisins frá 0 og upp í 12 að
báðum meðtölum og einnig tölurnar 31, 32,
33, 35, 36 og 37. Nota má til þess allar stœrð-
frœðireglur og stœrðfrœðitákn, kommur og
yfirleitt öll ráð, sem lesandanum sýnist, —
en allt verður þó að standast stcerðfrceðilega.
Nota verur allar 5-tölurnar í hvert sinn.
Lausnir skulu hafa borizt fyrir 10. jan.
Kristjánsson, Camp Knox 11 12, Rvík, og getur hann vitjað
verðlaunanna í skrifstofu Landnemans, Þórsgötu 1. — Verð-
launagetraun þessa tölublaðs er svolítið snúin og skulu Iausnir
liafa borizt blaðinu fyrir 10. janúar.
GAGNFRÆÐINGAÞRAUT- IN. Þrír lesendur Sendu rétta
lausn á gagnfræðingaþrautinni í síðasta blaði: ÁSJÁ. Nokkrir
voru með önnur orð, sem lika gátu staðizt. Nú fá gagnfræð-
ingarnir að búa til málsgrein um Keflavíkursamninginn, sem
lítur þannig út: Fyrri hluti aðalsetningar + 2 samhliða skil-
yrðissetningar + seinni hluti aðalsetningar + fyrri hluti skýr-
ingarsetningar + tilvísunarsetning + seinni hluti skýringarsetn-
ingarinnar + tíðarsetning.
SKÁKÞRAUTIN. 11 lesendur
sendu rétta lausn á skákþraut-
inni: hvítur lék drottningunni
af b7 á h5, en eftir þann leik
er svartur óverjandi mát, hvað
svo sem hann gerir. — í skák-
þraut þessa tölublaðs á hvítur
að máta í öðrum leik.
16 LANDNEMINN