Landneminn - 01.12.1948, Blaðsíða 33

Landneminn - 01.12.1948, Blaðsíða 33
að Osen, og á eftir 10 km. til Rena, heyri ég, hvar bifreið kemur akandi á „wild-west“-hraða á eftir mér. Og skiptir það engum togum, að þarna er kominn skógskólaje|)])inn frá Osen og er sýnilega á leið til Rena, Ég hrópa alll hvað’ af tekur á þá, svo að þeir slanza spölhorn fyrir framan mig. Kemur þá í ljós, að þetta eru 6 skólastrákar, og verða þeir heldur en ekki undr- andi, er þeir sjá, hvaða mannpersóna l)arna er á ferð- inni hljólandi. — Einn strákanna var sá, er við höf- um þegar kynnzt á veitingahúsinu í Steinkerum. Er nú ekki að sökum að spyrja: hjól undirritað's er hundið rammlega aftaná jeppann, og hann sjálfur halaður innhyrðis, þótt þröngt væri þar fyrir. Síðan er ferðinni haldið áfram á sama „wild-west“-hraða! En rétt fyrir ofan Rena vill svo óheppilega til, að annað afturdekkið springur. Og þar eð ég var þarna með reiðhjól, nennti ég ekki að bíða eflir fé- lögum mínum, en hjólaði af stað á undan. Nú hafa lesendurnir fengið að vita nokkuð af því, sem gerðist rétt á eftir. Á veitingahúsinu í Steinkerum höfum við J)egar heyrt um atburðinn á járnbrautar- stöðinni. En þess má geta, að ef stöðvarstjórinn hefði klætt liinn griiiisamlega „gestapista“ úr treyjunni, mundi hann kannski hafa fundið á kraganum innan- verðum vörumerki með áletruninu, ..Belgjagerðin. Reykjavík.“ Hins vegar myiidi hann líklega varla hafa fundið nein merki þess, að „gestapistahúfan“ var ekki framleidd í vefstofum Slésíu, heldur í ónefndri húfugerð í Reykjavík, og keypt í Kaupfélagi Héraðs- búa á Reyðarfirði! En það er af undirrituðum að segja, að rétl í þann mund, er kröfuganga verkalýðsins var að hefjast, kom liann inná járnbrautarstöðina og ætlaði að fá keypt blöð og tímarit í blaðsöluturninum. En því miður revndist hann lokaður! Og er hann hitti af tilviljun stöð’varstjórann og tjáði honum vandræði sín, var sá síðarnefndi bara afundinn og kvað’st ekkert geta hjálpað! Við þessi málalok flýtti ég mér að komast á ein- hvern stað, þaðan sem ég gæti séð kröfugönguna fara framhjá. I svona litlum bæ var kröfugangan ótrúlega fjölmenn. Tvær lúðrasveitir léku með og fánar verk- lýðsfélaganna, Verkamannaflokksins og Kommúnista- flokksins voru bornir fyrir, ásaml fjölda kröfu- spjalda. Ennfremur gengu Félag ungra kommúnista og Æskulýðsfylking verkamanna (sósíaldemókralískt) undir eigin fánum, og voru þessi tvö síðastnefndu ótrúlega fjölmenn. Er ég hafði hlýt á hina ágælu ræðu Jörgens Vogts, steig ég á hjól mit og byrjaöi að trafa hina löngu leið uppað Slórasjó — blaðalaus, en hafandi fengið glæsilega staðfestingu á styrkleika verklýðssamtakanna í þessum litla, norska bæ, og reyndar skemmtilegu ævintýri ríkari, þótt ég fengi ekki að vita um það fyrr en eftir næstum því 1 ár. Sig. Blöndal. í Náttúrugripasafninu. Framliuld af l>ls. 29. steinhissa framaní gesti safnsins. Ég hygg það hafi ver- ið simpansinn sem hlaut þess móðgun. Á meðan systkinin voru önnum kafin við að gjalda augnaráð aj>anna í sörnu mynt kom maður frá ljós- myndastofu Sigurðar Guðmundssonar og tók mynd af þeim. Það varð skær blossi af leifturperu ljósmynd- arins, og samstundis þusti að okkur allur leiðangur barnaskólans. „Manni minn, viltu taka mynd af mér!" hrópuðu leiðangursmennirnir hver í kapp við a))nar. „Viltu taka mynd af mér og tígrisdýrinu, elsku manni minn,“ sagði lítil, ljóshærð telpa. Tígrisdýrið gretti sig í næsta skáp, og „manni minn" tók mynd af því í félagsskap nokkurra leiðangursmanna. — „Kemur Jietta í Morgunblaðinu?“ s])urði einn snáðinn. Ég taldi öll tormerki á því; Morgunblaðið væri eigin- lega ekki okkar blað. „Viltu láta myndina koma í Æskunni,“ sagði litla, ljóshærða telpan. Það leizt mér betur á; barnablaðið Æskan væri einmitt blaðið okkar allra. Þessi yfirlýsing mæltist vel l’yrir. Rannsóknarleið- angur barnaskólans laust upp fagnaðarópi, — og leyslist þvínæst allur upp í feluleik. — Systkinin höfðu nú skoðað allt, — og við yfirgáfum safnið. ★ Það eru nokkrir dagar siðan þetta var. En í gær hitti ég á götu mömmu systkinanna og spurði, hvernig þeim liði. Hún sagði að þau væru aftur farin að ganga í leiðslu. Það var nefnilega stelpa, sem sagði þeim, að uppá lofli í húsinu hjá Arnarhóli væri annar undra- lieimur með „allavega skrýtið dót, — meira að segja afganginn af sumum köllunum, sem voru alltaf að hasast með sverð og spjót í gamla daga.“ /. Á. LANDNEMINN 33

x

Landneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Landneminn
https://timarit.is/publication/893

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.