Landneminn - 01.02.1949, Síða 6
BJARNI
BENEDIKTSSON
FRA HOFTEIGI:
I gististail sðgunnar
Bærinn Uppsala á bökkum Fýrisár í Svíbjóð hinni
köldu er sögubær. Enginn, gæddur því skilningarviti
sem beitir söguskyn, fer um þennan bæ án þess að
kenna ilm og angan liðins tíma. Það er ekki vindugt
í Uppsala, en andardráttur sögunnar leikur þar um
gömul hús og forna stígu. í Gamla Uppsala skammt
norðvestur af sjálfum Uppsalabæ er vagga sænskrar
sögu, hefur mér verið tjáð. Eftir að barnið komst á
legg, og tók að leggja þjóðvegi aldanna undir fót,
hefur það oft dvalizt na:tursakir í þessum bæ við
blástraum Fýrisár. —
Við hér heima tölum um Uppsali og segium í Upp-
sölum. Sumir telia, að „sala“ í nafninu Up])sala sé
sama orðið og heiti hins forna bæjar Sala, en eftir
honum heitir nú Salabacka austur af Uppsala. Þar
cð ég veit ekki hvað „sala“ þýðir veit ég heldur ekki
hvort vor íslenzka þýðing þessa nafns á nokkurn rétt
á sér, en um það efast ég a. m. k. stórlega. Uppsala
þýðir þá sú eða það Sala, sem fjær liggur, þ. e.
lengra uppi í landinu. Þetta nafn var í öndverðu notað
um þann stað sem nú heitir Gamla Uppsala, en sá
staður þar sem nú stendur Uppsala hét þá Östra Aros,
Eystriárós. Sænskir kunningjar mínir sem ég hef spurt
um merkingu nafnsins Uppsala hafa sagt mér að
skipta heri orðinu: Upps-ala. En ala þýður blótstaður,
og kemur þá sú merking vel heim við þekkta sögu
Gamla U])]>sala. Hins vegar gátu þeir ekki skýrt s-ið
í orðinu. Hefur mér komið til hugar, hvort það gæti
ekki verið leif af orðinu „lands“, þannig að stað-
urinn hafi í árdaga heitið Upplands ala, þ. e. hlót-
staður Upplands eða Upplendinga. En þelta er sem
sagt ekki annað en tilgáta, kannski óþörf, og stang-
ast ef til vill við al-
þekktar staðreyndir,
þótt þær séu mér ó-
kunnar.
Gamla Uppsala, sein
nú heitir svo, var áður
á öldum aðsetursstaður
konunga. Komið hefur í
Ijós við uppgröft að
hólar þeir hinir miklu,
er þar standa nú, eru
konungahaugar frá því
um 500 e. Kr. Þar var
þingstaður, markaður —
og blótstaður. Níunda
livert ár var á þessum
stað haldin fórnarhátíð,
sameiginleg fyrir alla
kónga og þegna Svía-
veldis. Lifandi fólki var
fyrirkomið i heilagri
Spurvagn ú lslandsbrúnni. Sér á kusíuLunn cjst lii vinstri.
6 LANDNEMINN