Unga Ísland - 01.11.1911, Blaðsíða 2

Unga Ísland - 01.11.1911, Blaðsíða 2
82 UNQA ÍSLAND Heyr sólroðans barnanna söng, liinn samstilta ljósengla kliö! í geisladýrö árbjannans svífur sú sveit og syngur á jörðina frið. Og við himneskra hljómgeisla yl finnur hjartaö Guðs hálægðar til. Guðin. Guðm.ss. Friður á jörðu: Paradís. Hljóðar stara stjörnunætur, stirnir bjart á freðna ósa, þögul kvikna þúsund Ijósa, þytsnögg norðurljósin brenna. — Hitna mörgum hjartarætur, heilög nótt að foldu svífur, vekur hugann, hjartað hrífur. — Helgan fjálgleik margir kenna eins og óm frá æskuárum. Inst úr hjartans dular-geimi endurminning berst í bárum bernskunnar úr sælu-heimi. Jól er hið bjartasta’, er barnshjartað veit, broshýr og langþráð öllu öðru fremur, sælasta hátíð í hverri sveit. Hátíð barnanna, hún kemur! Ljósblik í skammdegis skuggatjöld skín yfir jörðu hátt úr stjörnugeimi, svo sólbjart verður hið svarta kvöld og sýnir leiðina dauðaþreyttum heimi: — — Einmana börnin ráfa raunamædd á rökkurslóðum, bernsku sinni gleyma, og skammdegisins skuggar Íífið dylja* Á dimri nóttu hrökkva þau upp hrædd og hjálparvana, skortir þrek og vilja, og þrá þann frið, er æskan átti heima. Friðvana þjóð, sem veit ei, hvað hún vill, og velkist sofandi að feigðarósum í drauma-órum drunganóttu svarta. Hún grætur þó, er gangan reynist ill á gönuskeiði eftir villuljósum. — Hún þráir fríð í fylgsnum insta hjarta! Hann fæddist með friðareld í hjarta sem fátækt barn. Skjótt glæddist dýrðarbálið bjarta, og bjarma sló á heimsins kalda hjarn. Pað bál tók heim í heita arma og hjaðnar ei. Mörg sál þar finnur huggun harma og hvíld, er brotnar lífsins veika fley. Senn börn klappa leikandi lófum, þá loga öll kerti svo bjart, og jólglaðar glymja raddir °g gleyma, að myrkrið er svart: — — »Friður á jörðu, um fold og sæ faðmar hvern bæ. Jesús, Þú ert vort jólaljós! Drottni sé dýrð og hrós!» — Hvertfátækt hreysi er höll það kvöld, — með háum turnum og gyltum svölum og hvítum veggjum, með heiðblá tjöld er hver ein sveit í íslands dölum.

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.