Unga Ísland - 01.11.1911, Qupperneq 9

Unga Ísland - 01.11.1911, Qupperneq 9
UNGA ÍSLAND mist hefir«,segir gamalt máltæki. — Þann- ig er og með fósturjörðina. Margur hugsar oft og einatt svo lítið um það, fyr en hann er kominn langt Iangt burt — út í víða veröld. En þá leitar hugur manns heim aftur með sárum söknuði og trega. Maður þráir bernskuheimilið og fósturjörðina, því þar eru allar lífsrætur manns runnar úr jörðu. /AvVttajörðinni. Þar litum við fyrst lífsins Ijósa dag og hlóum og grétum í örmum móður okkar. Þar hefir pabbi unnið og erfiðað fyrir mig og þig, uns bakið bognaði, oghönd- in varð hörð og lúin. Þar hefir mamma vakað yfir vöggunni, er barnið hennar var veikt og sent hjartnæmar tára-bænir á vonarvængjuni upp til Guð-Föðurs — beðið hann að taka ekki barnið frá henni, en lofa því að lifa — og verða að góðri manneskju. — — — Á einverustundum og andvökunóttum hefir þetta orðið mér alvarlegt umhugs- unarefni, er hrifið hefir allan hug minn og hjarta. Og eg hef orðið þess var, að öll þau bönd, er tengja mig við fóst- urjörð mína, hafa orðið æ sterkari og sterkari. Og það er gamall sannleikur, að römm cr sú taug, cr rckka dregur, feðra túna tiU ! Þetta umhugsunarefni hefir varpað birtu og fegurð yfir sálarlíf mitt — gert mig betri mann og sterkari og auðugri í anda þrátt fyrir margskonar andstreymi. Eg var eigi nema óþroskaður ungling- ur, nýfermdur, er eg fór að heiman, og löng og mörg vóru árin átta, er eg dvaldi erlendis, því æskuheit var þráin er heim aftur dró, sterkar og sterkar, því lengra er leið frá. — Aldrei hafa þessar 100 rnílur yfir haf- ið verið eins langar og þá, er eg Ioks- ins var á heimleið. Hringinn í kringum okkur himinn og haf — stálgljáandi og blátt, er rann saman langt úti við sjón- deildarhring. Spegilfögur eyðimörk, enda- laus á alla vegu. Eimskipið risti hvíta,hvik- 89 ula rák í sæflötinn, og reykurinn lá eins og svartur risaormur f skjálfandi bugð- um. Máfar sigldu á hvítum vængjum og vældu sárt hásum rómi, spegluðu sig í haffletinum, urðu hrifnir af sjálfum sér, steyptu sér niður úr háa lofti, svo væng- broddarnir snertu sjávarflötinn og gerðu hringi, er smá stækkuðu, — svo hurfu þeir með hæguin vængjaburði útyfir haf. — Þrír — fjórir dagar, og hver klukku- stund endalaus. Á alla vegu gekk hafið í þungum, reglubundnum bylgjum eins og alheimsins breiðfaðma brjóst með djúpum, hægum andtökum. — En svo var það loksins sólbjarian morgun! — Eg gleynú því aldrei! Laugaður sólar- eldi og heiðbláma himinsins reis Vatna- jökull yfir sjóndeildarhring. Eins og fann- hvítt ský blikaði hann í fjarska, og þús- undföld litbrigði, gull, eldur og blóð, kiftruðu á honum í sólrisu-ljómanum. Þetta var fyrsta kveðja ættjarðárinnar. Og kaldur jökullinn hitaði mér um hjarta Eg hefði getað kyst og faðmað kaldan ísinn, því hann var þó partur af ættjörðu minni. Er eg kóm í Iand um kvöidið, var eg tæplega með sjálfum mér af gleði. Hér átti jeg hverja þúfu og hvern stein. — Hver maður talaði íslensku! »Ástkæra. ilhýra málið« hjómaði sem fegursta söng- list í eyrum mínum. — Eg varð að hlaupa upp í fjall, á meðan eimskipið stóð við og þar kannaðist eg við mig — frá smalaárunum — í ástsælum faðmi ís- lenskrar náttúru. Eg hló og grét og hljóp og stökk af kæti, eg kysti visin stráin og kalda steinana. Alt sem eg sá var mitt, mitt alt saman. Eg var kominn heim aftur í ríki mitt! Fáeinum dögum síðar varegá leiðinní heim í sveitina mína. Það var skörnmu fyrir jól, og eg gekk á skíðum yfir fjall- ið. Nú stóð eg á háheiðinni. Kvöld, mánableikt og kyrt. Hátt í norðri ók »vagninn« águllhjólum sínum. Skamt fyrir neðan sjöstjörnuna glóði »nauts- augað« »Alderbaran* rautt og flóttalegt,

x

Unga Ísland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.