Unga Ísland - 01.11.1911, Page 19

Unga Ísland - 01.11.1911, Page 19
UNGA ÍSLAND 09 augunum sínum dimmu svo skuggalega út undan sér, og það vareinsog myrkur í kringum hann. En hinir ailirvoru svo fagrir, að eg var alls eigi viss um, hver fegurstur væri. Þeir tveir, er sa'tu sinn á hvera hönd Jósa, báru þó af hinum. »Hann verður draumóramaður meðal mannanna,« sagði höfðinginn, »og getið þið því vel sagt honum, hverjir þið eruð.« Þá snéri sér að mér sá, er sat hægra megin, og eg hallaði mér upp að hon- um og hló; því það var svo skemtilegt að horfa á augunhans biáu og glófagurt hárið og bláa kyrtilinn hans, heiöbláan eins og himindjúpið sjálft. »Eg vef gleðina,« sagðihann. Ogsvo tók hann skytturnar þrjá, er hétu viska, fegurð og máttur, og óf ódauðlega veru, er gekk út úr kofanum og inn í fagur- grænan heiminn og söng fegurstn gleði- söngva sína fyrir börn niannanna. Þá kom röðin að honum, er sat á vinstri hönd Jósa, sem er lífið sjálft. Hann hafði einnig fagurbjart hár, en augnalit- inn gat eg ekki séð, því þau ljómuðu svo skært. »Eg vef •ka>r/eikann«, sagði hann> og eg sit næst Jósa hjarta.« Og svo tók hann skytturnar sínar þrjárj er hétu viska, fegurð og máttur, og óf ódauðlega veru sem gekk út úr kofanum og inn í fagurgrænan heiminn og söng sólarljóðin inn í mannshjartað. Þótt eg væri þá eigi nema barn að aldri, kærði eg mig ekki um að horfa á hina. Enginn gat verið feguri en hann, er óf gleðina, og hann er kærleikann óf, að minsta kosti ekki í mínum augum. En nú heyrði eg dásamlega og blíða rödd rétt hjá mér; hún var alveg eins og fuglakvak og lækjaniður, og einn, er sat skamt frá mér, lagði mjúka og sval- andi hendi á höfuðið á mér. Og hann, sem höndina átti, sagði: »eg vef dauðann,« og hann, sem var svo raddfagur og söng við mig, er hinn lagði höndina á höfuð mitt, sagði: »eg vef svefninn,« Og þeir ófu með skyttunum sínum, er hétu viska, fegurð og máttur, og eg var alls eigi viss um, hvor þeirra væri fegurri, þvf dauðinn minti mig um kærleikann, og í augum svefnvefarans sá eg gleðina. Eg sat enn þá og horfði á hinar dá- semdarfögru verur, er þessir vefararnir tveir ófu — svefnvefarinn, hann óf ódauðlega veru, stjarneygða þögula og hljóða. Og dauðavefarinn óf blæmjúkt rökkur með eldsloga falinn í hjartanu. Heyrði eg þá tvo aðra hinna tólf tala. Og rödd þeirra var eins og vindblær í gulum kornakri. Annar þeirrasagði: »eg vef ástina«. Og er hann talaði, þótti mér hann vera bæði kærleikurinn og gleðin og dauðinn og lífið í einu, og eg rétti út hendurnar í áttina til hans. »Eg vef mált,« sagði hann og tók mig og kysti mig. Er Jósa setti mig aftur á fang sér, sá eg að ástar-vefarinn sneri sér að hvítum fagurbjörtum manni, er stóð við hliðina á honum, og Jósa hvíslaði að mér, að hann væfi œskuna. Eg veit ekki, hvernig á því stóð, en það var svo undurfagur hljómleikur þar inni, meðan þessir tveir vefarar tóku skytturnar sínar og ófu sína ódauðlegu veruna hvor og sendu þær út í fagurgrænan heiminn iil þess að syngja inn í mannshjartað hinn hreimmikla söng sinn um hamingju og sælu. »Jósa,« sagði eg, »eru þeir bræður þínir allir saman? Allir eru þeir fagrir eins og þú, og allir hafa þeir i augum sér ljómann af eldinum hvíta, er eg sé loga í hjarta þínu.« En áður en hann gat svarað mér, fylt- ist kofinn á ný af tónuni. Eg titraði af sælu, og þessir tónar hljóma mér enn fyr- ir eyrum þann dag í dag og fylla sál mína sælu og unaði. Þá varð eg þess var, að það var hinn sjöundi og áttundi og hinn níundi og tíundi þessara stjarn- eygðu Jósa-þjóna er drógu andann í feg- ursta samræmi, og nöfn þeirra vóru: hlát- «rs-vefarinn, graV-vefarinn, fjálgleiks-vzfar-

x

Unga Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.