Unga Ísland - 01.11.1911, Side 20

Unga Ísland - 01.11.1911, Side 20
UNGA ÍSLAND 100 inn og friður-\efarinn. Þeir stóðu allir upp og kystu mig. »Við skulum vera með þér fram að Ieikslokum, Art litli«, sögðu þeir. Og eg tók í hönd einum þeirra og sagði í bænarróm: »Verið þið líka með henni mömmu?« Þá svaraði hann, er óf grátinn: »Það skal eg gera alla hennar æfi«. Og eg sá, að hann tók skytturnar sínar> er alt af vóru þær sömu, en þó aldrei eins, og óf ódauðlega veru. Oggrát-vera þessi gekk út úr kofanum og söng sorg- blíð og grátnijúk ljóð, og mér heyrðist það vera alveg, eins og móðir mín væri að syngja, og eg kallaði á eftir verunni. Hún sneri sér við og veifaði til mfn. »Eg skal aldrei vera langt fjarri þér, Art litli,« sagði hún og var eins mjúkmál og sumarregn í grænu laufi, »en nú verð eg að fara og finna mér bústað í öllum konuhjörtum.« Nú vóru að eins eftir tveir þessara tólf, er eigi höfðu enn ofið ódauðlegar draum- verur. Aldrei gleymi eg gleði minni, er eg leit á hann, sem röðin var nú komin að, og horfði stjörnuaugum sínum á Jósa, sem er lífið sjálft. Hann tókskyttur sín- ar þrjár, er heita viska, fegurð og máttur» og hann óf regnboga-ský þar inni í kof- anum. Og þvílíkur ljómi af ljósi og Iit- um fylti nú kofann, að jafnvel sá tólfti, skuggalegi, leit upp og brosti. »0, nei, o, nei, hvað heitir þú?« spurði eg og teygði armana til þessa skínandi vefara. En hann heyrði ekki til mín, svo mjög var hann sokkinn niður í starf sitt. Hann óf hvern regnbogann á fætur öðr- um og sendi þá alla út í fagurgrænan heiminn, svo að börn mannanna gætu ætíð haft þá fyrir augum. »Það er hann, sem vefur vonina,* hvísl- aði Jósa niac Dé að mér, »hann er sál allra hinna, sein hér eru.« Þá sneri eg mér að hinum tólfta og sagði: »Hver ert þú, sem situr þarna með skugga utan um þig?« Hann svaraði eigi, og það varð dauða- þögn í kofanum. Allir þeir, er inni sátu, litu niður og þögðu, — allir saman nema hann, er óf vonina; nú óf hann fagran regnboga, og hann sveif beint inn í hjarta þessa einmana vefara, er var sá tólfti í röðinni. »Hvaða maður er þetta, Jósa mac Dé?« hvíslaði eg. »Svaraðu barninu,« sagði Jósa og var svo sorgbitinn og dapur í málrómnum. Þá sagði vefarinn: »Eg vcf heiður — — —,« tók hann til máls. En Jósa Ieit á hann, og þá þagnaði hann. »Art, drengurinn minn litli,« segði frið- arhöfðinginn, »það er hann, sem sífelt svíkur mig. Það er Júdas, sem vefur hugleysið.« Þá tók skuggamaðurinn upp skytturnar þrjár, er lágu fyrir framan hann. »Hvaða skyttur eru þetta,Júdas?« hróp- aði eg forviða, því eg sá, að þær vóru svartar. Hann svaraði mér engu, en einn hinna tólf hallaði sér áfram og liorfði á hann. Það var hann, sem óf dauðann. »Skytturnar hans Júdasar, sem vefur bugleysið, Art, drengurinn minn litli,« sagði dauðavefarinn, »heita spott, örvænt- ing og gröf.« Þá stóð Júdas upp og gekk út. En vera sú, er hann hafði ofið, fylgdi hon- um eftir sem skuggi hans. Og þau gengu bæði út í dimman heiminn og inn í hjörtu mannanna og sviku Jósa, friðar- höfðingjann. Nú stóð Jósa upp, tók mig við hönd sér og leiddi mig út úr kofanum. Eg leit við og sá þá engan hinna tólf, nema hann sem óf vonina. Hann sat kyr og söng Ijóð, er hann hafði lært af honum, er óf gleði. Hann sat í miðju skýi úr skínandi regnbogum og óf litskraut, eins fagurt og sjálfa morgunsólina. — — Loks vaknaði eg aftur í fan;i móður minnar, Hún var að gráta, og tár henn-

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.