Unga Ísland - 01.01.1933, Page 16
12
UNGA ÍSLAND
ánum úr hjásetunni, ef Bjarni litli hefði
ekki vakið hann upp frá listaverkinu
í moldarflaginu, og sagt honum til synd-
anna, að þetta dygði ekki, þeir mættu
til að hafa allan huga við hjásetuna.
Eftirleit.
Eitt sinn kom Einar heim snemma
morguns úr smalamennsku. Hann hafði
smalað einn að þessu sinni, og nú vant-
aði hann sex kvíær. — Hann fékk ákúr-
ur hjá föður sínum og varð að fara að
leita ánna. Einari féll mjög illa, þegar
pabbi hans setti ofan í við hann, en æf-
inlega tók hann ákúrum vel frá föður
síns hendi. Hann lagði nú af stað að
leita ánna.
Nokkru seinna var Bjarni litli send-
ur með ærnar, sem heim höfðu komið,
og búið var að mjólka. Hann átti að
reka þær í hagana. Allt í einu sér
Bjarni, hvar maður stendur hálfboginn,
efst uppi í felli, alveg upp við Galta,
það er gnipa í fellinu. Og hann þekkti
þegar í stað, að þetta er Einar bróðir
hans. Bjarni vissi, að hann átti að vera
að leita að ánum. Hann vildi nú vita,
hvernig því væri varið með Einar,
hvort hann væri nú búinn að gleyma sér
enn einu sinni. — Jú, viti menn, Einar
hafði fundið þarna frægustu leirnámu,
og nú var hann í óða önn að móta ým-
iskonar myndir af dýrum og fuglum,
tröllum og útilegumönnum, þarna í leir-
inn. Hann mundi alls ekki eftir því, að
hann hafði verið se'ndur að heiman, til
'að leita að sex kvía ám, sem vöntuðu til
mjaltanna um morguninn..
Sigurvegarinn.
Þegar Einar Jónsson hafði slitið
barnaskóm, var hann settur til mennta,'
fyrir áeggjan víðsýnna menntamanna,
er sáu hvað í drengnum bjó.
Hann lagði nú út á hina erfiðu braut
listamannsins, vann og nam látlaust.
Og svo var það einn dag, að hann
stóð með sigurpálmann í hendi sér.
Hann hafði sigrað; og fyr en varði
hafði hann eignast fjölda aðdáenda um
allan hinn vestræna heim.
Einar Jónsson er eins oft nefndur
myndskáld ,eins og myndhöggvari.
Ljóðskáldið mótar hugsanir sínar i
málið. Tónskáldið felur hugsanir í tón-
um, en myndskáldið meitlar þær í stein-
inn. Hann felur skáldlegar hugsanir í
fast áþreifanlegt efni, leirinn, gifsið,
bronsið eða marmarann.
Einar Jónsson hefir góðfúslega leyft
Unga íslandi að birta myndir af verk-
um sínum. Myndir af tveim þeirra birt-
ast að þessn sinni, og mun blaðið flytja
fleiri myndir úr listasafni Einars við og
við.
Listasafn Einars Jónssonar.
Um daginn fór ég upp í listasafn Ein-
ars Jónssonar, húsið heitir Hnitbjörg.
Það stendur uppi í Skólavörðuholti. í
safninu eru bæði margar og fállegar
myndastyttur, sérstaklega fundust mér
tvær myndastyttur fallegar. Önnur heit-
ir Útilegumaðurinn. Hún er af manni,
sem.heldur á barni á handleggnum og
ber konu á bakinu. Kona þessi hafði
verið konan hans, en var nú dáin, og
var hann að reyna að finna kirkjugarð,
til að jarða hana í, því hann vildi ekki