Unga Ísland - 01.06.1938, Page 13
UNGA ISLAND
85
Mynd þessi er
frá fimleika-
sýningu Gagn-
fræðaskólans í
Reykjavík.
Þrír vinir.
Eftir Fr. Kittelsen.
Henning var verst á sig kominn.
Hann hafði rétt opnað augun, gefið frá
sér nokkur óskiljanleg hljóð og síðan
fallið í hálfgert dá aftur. Þau urðu því
að bera hann eins og smábarn.
Þegar Niels og Henning komu, svaf
Ulrik svefni hinna réttlátu og vissi
hvorki í þennan heim né annan. Bræð-
urnir voru lagðir við hliðina á honum
í hjónarúmið. Þeir fengu einnig heita
mjólk að drekka, og síðan sofnuðu þeir.
Síðari hluta dags vaknar Ulrik. Hann
reis upp í rúminu og leit í kringum sig.
Stofan var mjög fátækleg og léleg, og
íbúðin var einungis þessi eina stofa. —
Hvorugt hjónanna var inni. — Þeir voru
aleinir. Hugurinn reikaði heim til pabba
og mömmu — og hann fór að gráta.
Hvenær skyldi hann aftur komast heim
til foreldra sinna? Óvíst. — En hann
varð að taka þessu karlmannlega. Og
nú hafði hann þó þak yfir höfði sínu.
Hann var kominn til manna, þótt þeir
væru meðal þeirra allra fátækustu.
Ef hann bara missti ekki kjarkinn, þá
myndi allt enda vel, — en það var svo
erfitt að vera rólegur undir þessum
kringumstæðum------Tárin brutust aftur
fram og runnu niður kinnarnar.
Síðan ýtti hann við Níels og Henning,
og eftir ítrekaðar tilraunir tókst honum
loks að vekja þá, — en það leið góð
stund, áður en þeir höfðu áttað sig til
fulls. Sérstaklega átti Henning litli erf-
itt með það. Hann botnaði ekkert í, hvar
hann var staddur.
En smám saman rifjaðist allt upp
fyrir þeim, og þeir fóru að tala um
framtíðina. Þeir voru allir kvíðandi.
Ulrik líka, þótt hann reyndi að tala
kjark í hina.
Um hádegisbilið kom konan. Þegar
hún sá að drengirnir voru vaknaðir,
spurði hún strax, hvort þeir væru ekki
svangir. Og þegar þeir játuðu því ein-
um rómi, gekk hún að skáp í veggnum
og tók fram brauð og smjör, sem hinir
þrír vinir okkar fengu brátt að gæða
sér á. Þeir blátt áfram gleyptu það í
sig með græðgi — enda var langt liðið
frá næstu máltíð á undan.
Nú kom húsmóðirin líka og fór að