Unga Ísland - 01.12.1949, Blaðsíða 9
Kátt er á jólunum, koma þau senn,
— þá munu upp líta Gilsbakkamenn,
upp munu þeir líta og undra það mest,
úti sjá þeir stúlku og blesóttan hest,.
úti sjá þeir stúlku, sem um talað varð:
„Það sé ég hér ríður Guðrún mín um garð,
það sé ég hér ríður hún Guðrún mín heim.“
Út kemur hann góði Þórður einn með þeim,
út kemur hann góði Þórður allra fyrst,
hann hefur fyrri Guðrúnu kysst,
hann hefur fyrri gefið henni brauð,
— tekur hana af baki, svo tapar hún nauð,
tekur hana af baki og ber hana inn í bæ.
„Kom sú sæl og blessuð," segir hann æ,
„kom þú sæl og blessuð, keifaðu inn,
kannski þú sjáir hann afa þinn,
kannski þú sjáir hann afa og ömmu þína hjá,
þínar fjórar systur og bræðuma þrjá;
þínar fjórar systur fagna þér bezt,
af skal ég spretta og fóðra þinn hest,
af skal. ég spretta reiðtygjum þín;
leiðið þér inn stúlkuna, Sigríður mín,
leiðið þér inn stúlkuna og setjið hana 1 sess.“
„Já,“ segir Sigríður, „fús er ég til þess;
„Já,“ segir Sigríður —1 kyssir- hún fljóð —