Neytendablaðið - 01.12.1997, Blaðsíða 16
Bankaviðskipti
Lítill verðmunur milli
banka og sparisjóða
Neytendablaðið hefur gert
samanburð á því verði sem
bankar og sparisjóðir hér á landi
krefjast fyrir þjónustu sína.
Bankaþjónusta er margþætt og til
að fá raunhæfan samanburð þarf
að stilla upp einskonar „meðal-
neytendum" og bera saman ársút-
gjöld þeirra af viðskiptum við
bankana.
Samkeppnisstofnun hefur búið til dæmi
um slíkan „meðalneytanda“. Síðast þegar
þetta líkan var notað mældist munur á
milli hæsta og lægsta bankakostnaðar
7,1%. Nú hefur hinsvegar dregið saman
með bönkunum og er munurinn ekki
nema 1,5%. Eftir sem áður er mikill
munur innan einstakra þátta bankavið-
skipta, þannig að það veltur á samsetn-
ingu bankaviðskipta hvers og eins hvaða
banki kemur hagstæðast út.
Miðað er við að „meðalneytandinn“ sé
NEYTENDASTARF Efí ÍALLRA ÞÁGU
með tékkareikning og 50.000 króna yfir-
dráttarheimild, og nýti að jafnaði 25.000
krónur af heimildinni. Arlega kaupir
hann tvö tékkhefti, gefur út 50 ávísanir
og notar debetkort 200 sinum. Á miðju
ári selur hann víxil að upphæð 100.000
krónur en eftir þrjá mánuði greiðir hann
50.000 krónur og eftirstöðvar eru fram-
lengdar um þrjá mánuði. Hann tekur í
upphafi árs skuldabréfalán að upphæð
600.000 krónur með eigin ábyrgð til 24
mánaða og greiðir af því mánaðarlega.
Hann kaupir einnig erlendan gjaldeyri
fyrir 80.000 krónur, 20.000 í reiðufé og
60.000 í ferðatékkum, hvort tveggja í
þýskum mörkum.
Við gerð könnunarinnar var miðað við
gjaldskrár sem voru í gildi 20. ágúst
1997. Þess má geta að sparisjóðirnir eru
með sameiginlega gjaldskrá, en tveir
sparisjóðir, Sparisjóður Vestmannaeyja
og Sparisjóður Önundarfjarðar, nýta
þessa gjaldskrá ekki að fullu. Vaxtaút-
reikningar eru í samræmi við gildandi
vexti 20. nóvember. I öllum tilfellum er
miðað við hæstu vexti. Inni í þessum
kostnaðartölum er stimpilgjald, sem er
1,2% fyrir almenn skuldabréfalán og
0,25% fyrir víxla. Tekið skal fram að
ekki er innheimt bein þóknun fyrir gjald-
eyriskaup í reiðufé heldur er haft sérstakt
sölugengi á seðlum, hærra en almenna
gengið. Þar sem verðlagning gjaldeyris-
viðskipta er frjáls er munur á sölugengi
milli bankanna en þessi munur er sí-
breytilegur enda breyta bankarnir geng-
inu nær daglega. Þegar keyptir eru ferða-
tékkar er notað almennt gengi sem er
lægra en seðlagengið, en eftir sem áður
er munur á milli banka á sölugenginu
sem breytist daglega.
Hvað kosta viðskipti „meðalneyt-
andans“ við banka og sparisjóði?
Landsbanki íslands
Sparisjóðimir
Islandsbanki hf.
Búnaðarbanki Islands
104.942,50 kr.
105.428.75 kr.
106.085,00 kr.
106.678.75 kr.
66° N - Sextiu og sex noröur
Sjóklæöageröin
Skúlagötu 51, Reykjavík
AB-bílar ehf.
Stapahrauni 8, Hafnarfiröi
Aöalskoöun hf.
Hafnarfiröi, Seltjarnar-
nesi, Kópavogi
Akron ehf. - plastsmíöi
Síöumúla 31, Reykjavík
AKTU TAKTU
Allianz - söluumboö ehf.
Síðumúla 32, Reykjavík
Alþýöuflokkurinn -
Jafnaöarmannaflokkur
íslands
Hverfisgötu 8, Reykjavík
Alþýðusamband íslands
Grensásvegi 16a, Reykjavík
Apple umboðið
Skipholti 21, Reykjavík
Bón- og þvottastööin ehf.
Sóltúni 3, Reykjavik
DHL - Hraöflutningar hf.
Faxafeni 9, Reykjavík
Dominos Pizza ehf.
Grensásvegi 11, Reykjavík
Egill Árnason hf.
Ármúla 8-10, Reykjavík
Flugfélagiö Atlanta hf.
Álafossvegi 40a,
Mosfellsbæ
Eldhaka hf.
Hafnarhvoli v/ Tryggvagötu,
Reykjavík
Fjarhitun hf.
Borgartúni 17, Reykjavík
Glóbus hf.
Skútuvogi 1f, Reykjavík
Hárgreiöslustofan Salon
VEH
Álfheimum 74, Reykjavík
Hitaveita Reykjavíkur
IKEA
Miklatorgi, Holtagörðum,
Reykjavík
Japis hf.
Brautarholti 2, Reykjavík
Johan Rönning hf.
Sundaborg 15, Reykjavík
Jöfur hf.
Nýbýlavegi 2, Kópavogi
Olís - Olíuverslun íslands
Remendia
Borgartúni 20, Reykjavík
Siglufjarðar Apótek
Aðalgötu 34
Sjónvarpsmiöstööin hf.
Síðumúla 2, Reykjavík
Skífan hf.
Skeifunni 17, Reykjavík
Skráningastofan hf.
Hesthálsi 6-8, Reykjavík
Sælgætisgeröin Freyja
Kársnesbraut 104,
Kópavogi
Sölufélag garöyrkjumanna
Súöarvogi 2f, Reykjavik
Útivistarbúöin
Vatnsmýrarvegi 9,
Reykjavik
Verslunin 2001 hf.
Hverfisgötu 61, Reykjavík
Visa ísland -
Greiöslumiölun hf.
Völusteinn hf.
Mörkinni 1, Reykjavík
World Class - Þrek hf.
Fellsmúla 24, Reykjavík
16
NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1997