Neytendablaðið - 01.12.1997, Page 23
Neytendur um allan heim
Neytendur mótmæla ákvörðun WTO um hormóna
Evrópusamtök neytenda
(BEUC) hafa mótmælt
þeirri ákvörðun Alþjóða-við-
skiptastofnunarinnar (WTO)
að leyfa hormónanotkun til
framleiðniaukningar við kjöt-
framleiðslu og telja forsendur
rangar og vísindagrundvöll
hæpinn. Samtökin telja neyt-
endavernd í ríkjum WTO
ógnað verði farið eftir þeim
viðmiðunum sem stuðst var
við þegar reglurnar voru
samdar og að erfíðara verði
en áður að halda uppi góðri
neytendavernd eða berjast
fyrir henni. Framkvæmda-
nefnd Evrópusambandsins,
æðsta stjórn ESB, er að undir-
búa málskot gegn hormóna-
reglum WTO.
Ástæður mótmælanna frá
Evrópusamtökum neytenda
eru margvíslegar. Viðkom-
andi nefnd innan WTO virti
að vettugi ýmis vísindaleg
gögn sem sérfræðingar á veg-
um ESB lögðu fyrir hana,
meðal annars um að aukin
áhætta fylgi hormónanotkun,
og tók heldur ekki mið af áliti
sumra þeina sérfræðinga sem
voru henni til ráðgjafar.
Nefndin áleit engar nýjar
sannanir hafa komið fram um
að þessir hormónar væru
skaðlegir mönnum ef magn
þeirra er innan ákveðinna
marka.
Samtök neytenda styðja
hinsvegar þau vísindasjónar-
mið sem birt voru nefndinni
um að hverskonar aukning á
þessum efnum í kjöti geti
aukið áhættuna á skaðlegum
áhrifum. Aðildarlönd WTO
áttu engan þátt í að móta þær
viðmiðunarreglur sem nefnd-
in fór eftir, en það er andstætt
lögum WTO. Nefndin túlkaði
þau svo að ef eitthvert ríki
væri á móti reglunum en tæki
hinsvegar sambærilega áhættu
í öðrum efnum gæti það ekki
krafist takmarkana eða inn-
flutningsbanns á sama sviði.
Nefndin taldi að bann ESB
við sölu á kjöti sem framleitt
er með vaxtarhormónum fæli
í sér mismunun, því að innan
ESB væru notaðir hormónar í
tengslum við dýralækningar
og rannsóknir, og vegna þess
Kinder-eggin eru bönnuð í Bandaríkjunum
Iflestum matvöruverslunum
og sjoppum hér á landi eru
til sölu Kinder-egg. Það sama
er uppi á teningnum í öðrum
löndum á Evrópska efnahags-
svæðinu. Bandaríkjamenn
banna hinsvegar þessa vöru
vegna þeirrar hættu sem smá-
börnum stafar af því að í eggj-
unum eru lítil leikföng sem
auðveldlega geta komist niður
í bamsháls með alvarlegum
afleiðingum. En það eru fleiri
matvörur, ekki síst ætlaðar
börnum, þar sem vafasamir
smáhlutir fylgja með í pakka.
Miðað við allar reglugerðirnar
frá Brussel er undarlegt að
ekki séu gerðar jafnríkar ör-
yggiskröfur í Evrópu og
Bandaríkjunum. íslensk yfir-
völd hafa ekki haft frumkvæði
Inni í Kinder-eggjunum eru litlir hlutir sem getcifarið illa t litla
hálsa.
\ neytendamálum fram til varðar á Evrópska efnahags-
þessa, en nú er lag að ganga á svæðinu.
undan hvað öryggiskröfur
Eftirmáli gæðakönnunar
á barnabílstólum
síðasta tölublaði Neyt-
endablaðsins birtum við
evrópska gæðakönnun á
barnabílstólum sem Inter-
national Testing hafði gert.
Norskur framleiðandi „HTS
be save“-stóla sætti sig ekki
við niðurstöðuna og hóf
undirbúning að málaferlum
og ákvað að fórnarlömbin
yrðu belgísku og þýsku
neytendasamtökin. Nú er
fallinn dómur í Belgíu og
tapaði norski framleiðand-
inn málinu. Hann hefur nú
ákveðið að láta málið niður
falla í Þýskalandi.
að sömu vaxtarhormónarnir
væru eðlislægir í kjöti og öðr-
um matvælum.
Samtök neytenda halda því
aftur á móti fram að eðlislæg-
um hormónum sé ekki unnt
að stjórna og að notkun þeirra
til sérhæfðrar meðferðar sé af-
mörkuð og skilgreind. Tækni-
leg beiting þeirra til vaxtar-
aukningar sé ónauðsynleg, ó-
réttlætanleg, auki magn á Ieif-
um þeirra í matvælum og leiði
til áhættuaukningar fyrir neyt-
endur.
LA6ASAFN
NEYTENDA
NEYTENDUR!
Gerið ykkur
grein fyrir
rétti ykkar
með
Lagasafni
neytenda
Verð
kr. 1000
Verð til
félagsmanna
kr. 900
NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1997
23