Neytendablaðið - 01.12.2001, Page 6
í stuttu máli
Lífrænar matvörur
á íslandi:
Fjölbreytni eykst
stöðugt
Lífræn brauð framleidd í íslenskum
bakaríum og vottuð samkvæmt al-
þjóðlegum stöðlum komu í fyrsta sinn
á markað á liðnu sumri. Brauðin eru
bökuð hjá Myllunni-Brauð og Brauð-
húsinu, en það er Vottunarstofan Tún
sem annast vottun framleiðslunnar.
Með þessu bætist mikilvægur flokkur
dagvöru á lista þeirra matvæla sem nú
er unnt að kaupa vottaðar lífrænar hér
á landi.
Þeim fjölgar sífellt sem velja líf-
rænt ræktaðar matvörur umfram aðr-
ar. Margir Islendingar þekkja þessar
vörur frá dvöl sinni erlendis þar sem
mun lengri hefð er fyrir neyslu þeirra.
Þessum meðvituðu neytendum hefur
lengi þótt skorta á magn og fjöl-
breytni lífrænna matvæla hér á landi
og það er rétt að íslenskur landbúnað-
ur er ótrúlega seinn að taka við sér í
þessum efnum. En samt miðar í rétta
átt og nú á síðustu misserum hefur
fjölgað verulega þeim tegundum líf-
rænna afurða, ferskra og unninna,
sem unnt er að kaupa árið um kring.
Allmargir bændur rækta flestar al-
gengustu tegundir grænmetis,
kartaflna og kryddjurta og eru þær fá-
anlegar ýmist í verslunum eða í beinni
áskrift. Nokkur vinnslufyrirtæki sjá
nú til þess að hér má fá lífræna ný-
mjólk, AB-mjólk, samlokubrauð og
alls konar heilsubrauð, að ógleymdu
lambakjöti. Mjólkin og kjötið koma
úr búfé sem fær lífrænt fóður og nýtur
þess að gerðar eru strangar kröfur um
aðbúnaðinn. Grænmetið, kartöflurnar,
kryddjurtirnar og komið í brauðin eru
ræktuð í frjósömum og sprelllifandi
jarðvegi, án eiturefna og tilbúins
áburðar. Þá má ekki gleyma því að
nokkur fyrirtæki flytja nú inn mikið
úrval af lífrænum matvömm allt árið
og hefur það stórbætt möguleika ís-
lenskra neytenda til að velja matvæli
sem uppfylla ströngustu umhverfis-
kröfur.
Viðskiptaráðherra heimsækir
Neytendasamtökin
Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra heimsótti Neytendasamtökin
fimmtudaginn 1. nóvember nú í haust. Þar kynntu formaður og framkvæmda-
stjóri samtakanna starfsemi þeirra. A myndinni má sjá ráðherra fyrir miðju
ásamt embættismönnum ráðuneytisins, formanni og starfsmönnum Neytenda-
samtakanna. Avefsíðu ráðherra segir af þessu tilefni: „Neytendasamtökin hafa
fyrir löngu sannað gildi sitt og sinna í dag afar brýnni hagsmunagæslu fyrir
hönd neytenda í landinu. í þjónustusamningi sem Neytendasamtökin og Við-
skiptaráðuneytið hafa gert með sér er gert ráð fyrir að samtökin sinni kvörtun-
arþjónustu fyrir neytendur."
Sælgæti og
smáhiutir geta
valdið köfnun!
Það er fátt sem foreldrar óttast meira en að
standi í bami þeirra. Arlega eru mörg börn
hætt komin hér á landi vegna aðskotahluta í
hálsi. Flest þessara bama em yngri en 8 ára.
Það sem oftast stendur í hálsi barna er matur,
sælgæti og smáhlutir. í kringum jól og áramót
er mikið af sælgæti í boði og þetta er því rétti
árstíminn fyrir foreldra og forráðamenn bama
til að kynna sér eftirfarandi leiðbeiningar.
Vissir þú þetta?
• Sælgæti stærra en 2 cm í þvermál getur
auðveldlega valdið köfnun.
• Seigt sælgæti, svo sem hlaup, gúmntí og
lakkrís, getur lagst yftr öndunarveginn og
lokað honum.
• Sælgæti sent er hart og/eða kúlulaga, svo
sem brjóstsykur, karamellur og tyggjókúlur,
getur hrokkið ofan í háls og lokað öndunar-
veginum.
• Sælgæti og öðmm matvælum fylgja oft lítil
leikföng og smáhlutir sem geta verið vara-
samir yngri bömum. Gætið því varúðar og
íjarlægið þau.
• Leikföng sem ekki em við hæfi bama yngri
en 3 ára eiga að vera sérstaklega merkt.
Hafið í huga
• að sælgæti sem bamið borðar hæfi aldri
þess og þroska,
• að blanda aldrei leikföngum/smáhlutum
saman við sælgæti,
• að mikilvægt er að iylgjast með því að barn-
ið setji ekki of mikið upp í munninn í einu,
• að bam sé ekki á hreyfingu heldur sitji upp-
rétt þegar það drekkur og borðar,
• að skilja lítið bam ekki eftir eitt meðan það
borðar,
• að barn ætti ekki að borða í bíl. Ef það
hrekkur ofan í bamið á meðan á akstri
stendur gætir þú átt erfitt með að aðstoða
það.
Nánari upplýsingar um hættur sem geta fylgt
smádóti og sælgæti er að finna í sérstakri
skýrslu sem nokkrar stofnanir og samtök létu
gera og hafa sett á heimasíður sínar. Einnig
var gerður bæklingur um efnið og má nálgast
sýnishorn al' honum á sömu heimasíðum.
Bæklingum hefur verið dreift til foreldra leik-
skólabama og er hægt að nálgast eintak á
næstu heilsugæslustöð, hjá Neytendasamtök-
unum og hjá útgefendunum. Slóðimar em:
www.hollver.is ^hjá Hollustuvemd ríkisins),
www.hr.is (hjá Arvekni), www.ls.is (hjá Lög-
gildingarstofunni), www.rvk.is (hjá Heil-
brigðiseftirliti Reykjavíkur) og
www.redcross.is (hjá Rauða krossi íslands).
6
NEYTENDABLAÐIÐ - desember 2001