Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.2001, Side 9

Neytendablaðið - 01.12.2001, Side 9
Tryggingar Vatnstjón í sumarhúsum Ríkharð B. Björnsson tjóna- skoðunarmaður Sjóvár-Al- mennra hefur undanfama vet- ur þurft að meta fjölmörg tjón á sumarhúsum vegna vatns- skaða. Segir hann slfk vatns- tjón alltof algeng og nefnir þar sem dæmi að vatnsleiðsl- ur fara í sundur þegar frýs í þeim. Afleiðingarnar eru þær að vatn flæðir um öll gólf með tilheyrandi raka þannig að nær allur húsbúnaður og tæki skemmast. Nær allt ónýtt Hann segir þó að verri að- koma sé í sumarhúsunum þegar heitavatnslögn hefur farið í sundur. „Það má segja að í þeim tilfellum sé oftast Tengi undir vaskinum farið í sundur. allt ónýtt, það er stundum hægt að hreinsa sængurfötin en það er líka allt og sumt.“ Sökum hitans leki eldhúsinn- réttingar hreinlega niður og allt tréverk skemmist en auk þess megi henda einangrun hússins. Ríkharð tekur fram að oftar en ekki þurfa eigend- ur sjálflr að bera ýmsan kostnað sem ekki fellur undir almenna skilmála sumarhúsa- tryggingar. Nauðsynlegt að þrýstiprófa ■ lll ■'Ji Bústaður með altjón vegna raka. Ríkharð vill einnig minna sumarhúsaeigendur á að ganga þannig frá vatnslögn- um að tryggt sé að frost valdi ekki skemmdum. Það má gera með því að loka fyrir kalda- vatnsinntakið og tæma kerfið með því að opna krana. Þá ætti að þrýstiprófa leiðslur á 3-4 ára fresti. Slrkt sé nauð- synlegt því að með árunum geti festingar farið að losna og lítill þrýstingsmunur getur sprengt öll samskeyti. Raki nœr að smjúga inn um minnstu rifur. Námskeið í heimilisbókhaldi og hagsýni í heimilishaldi Neytendasamtökin bjóða félagsmönnum sínum á námskeið í heimilisbókhaldi og hagsýni í heimilishaldi. Reynslan hefur sýnt að fólk græðir á því að taka þátt í þessu námskeiði. Námskeiðið verður haldið um miðbik janúarmánaðar, tekur þrjár klukku- stundir og kostar 3.000 krónur (aðeins 4.500 fyrir hjón) og eru námsgögn innifalin. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þessum námskeiðum eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Neytendasamtökin í síma 5451200 eða með tölvupósti, ns@ns.is. V NEYTENDABLAÐIÐ - desember 2001 J 9

x

Neytendablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.