Neytendablaðið - 01.12.2003, Qupperneq 3
Frá kvörtunarþjónustunni
Starfsfólk leiöbeinirtga- og kvörtunarþjónustu Neytendasamtakanna, frá vinstri: Brynhildur
Pétursdóttir starfsmaður Neytendasamtakanna á Akureyri, Ingibjörg Magnúsdóttir fulltrúi, Geir
Marelsson lögfræðingur, Sesselja Ásgeirsdóttir fulltrúi og Ólöf Embla Einarsdóttir lögfræðingur
og stjórnandi leiðbeininga- og kvörtunarþjónustunnar.
Rakaskemmdir í farsímum
Fjölmargar kvartanir vegna gallaðra eða
bilaðra farsíma berast Neytendasamtök-
unum á hverju ári. Oftar en ekki snúast
málin um farsíma sem orðið hafa fyrir
raka- eða höggskemmdum og falla þar
af leiðandi ekki undir ábyrgðarskilmála.
Neytendasamtökin hafa orðið vör við
mikla aukningu á þessum kvörtunum
að undanförnu, sérstaklega hvað varðar
rakaskemmdir og oft er jafnvel um að
ræða tiltölulega nýja síma. Hægt er að
kaupa farsíma sem seldir eru sérstaklega
sem raka- og höggvarðir og eiga að þola
meira heldur en aðrir símar en reynsla
Neytendasamtakanna er sú að það sé
ekki alltaf raunin.
Vandamálið með rakaskemmda síma er
langt frá því að vera einskorðað við ís-
land. Árið 2001 var fimmta hver kvörtun
hjá sænsku kvörtunarþjónustunni varð-
andi farsíma vegna rakaskemmda. í Ijósi
þess lét sænska neytendablaðið Rád och
Rön gera könnun á farsímum og hversu
vel þeir þyldu raka og bleytu. Nánar var
sagt frá þeirri könnun í marshefti Neyt-
endablaðsins 2002.
Neytendur verða oft afar ósáttir þegar
bleytuskemmdir greinast í símum þeirra
og telja ómögulegt að bleyta hafi komist
þar nærri.
Að gefnu tilefni héldu Neytendasamtök-
in fund með Hátækni sem þjónustar
Nokia-síma. Nokia er mest seldi farsím-
inn á íslandi og því ekki óeðlilegt að
flestar kvartanir berist vegna þeirra. Á
fundinum var ákveðið að koma til móts
við neytendur sem eru ósáttir við grein-
ingu síma sinna og hér fyrir neðan eru
verklagsreglur sem hægt er að beita ef
upp kemur ágreiningur.
1. Neytendasamtökin taka að sér að
finna aðila sem tekur að sér að endur-
skoða rakaskemmda síma.
2. Hátækni vísar neytendum sem eru
ósáttir við greiningu þeirra til Neyt-
endasamtakanna þannig að hægt
verði að fá hlutlaust mat. Eins geta
neytendur sem eru ósáttir sjálfir leitað
til Neytendasamtakanna.
3. Hátækni leggur til húsnæði og það
sem til þarf til skoðunar á símunum.
4. Ef skoðun hins óháða aðila leiðir í Ijós
bleytuskemmd er málinu lokið.
Neytendasamtökin beina enn fremur
þeim tilmælum til seljenda farsíma að
láta upplýsingablað á íslensku fylgja með
hverjum seldum síma. Þar komi fram
hvernig á að meðhöndla símana, m.a.
með tilliti til þess hvernig forðast má
rakaskemmdir.
Farsímar líkt og önnur raftæki eru
best geymd við stofuhita og í þurru
lofti. Farsímanotendur skyldu því
forðast að tala í símann eða senda
sms-skilaboð í rigningu, snjókomu
eða í miklum raka. Ekki er heldur
gott að gleyma gemsanum úti í
bíl yfir nótt, sérstaklega ef kalt er
í veðri.
Gölluð innrétting
Neytandi gerði á vordögum 2002 samn-
ing við HIT innréttingar ehf, Askalind 7
í Kópavogi um kaup á eldhúsinnréttingu
úr kirsuberjavið. HIT innréttingar ehf
tóku að sér smíði á innréttingunni en
ekki uppsetningu. Smíði innréttingar
dróst langt fram yfir það sem um var
samið, auk þess sem granítplötur sem
áttu að fylgja innréttingunni bárust ekki.
Neytandinn tók þá ákvörðun á endanum
að leita sjálfur til framleiðanda til að fá
granítplöturnar afhentar. Fékk hann þær
afhentargegn greiðslu án nokkurra vand-
kvæða.
Þegar uppsetning innréttingar var lokið
kom í Ijós að viðurinn var mislitur, þ.e.
ekki samvalinn viður. Innréttingin var
þar að auki illa lökkuð og illa unnin í alla
staði. í marsmánuði sl. leitaði neytand-
inn til kvörtunarþjónustu Neytendasam-
takanna eftir aðstoð og fengu samtökin
matsaðila til að gera úttekt á verkinu.
Niðurstaða matsaðilans var sú að inn-
réttingin væri ekki í samræmi við þann
samning sem gerður var í upphafi.
Neytendasamtökin gerðu ítrekaðar til-
raunir til að ná sáttum í málinu og fá
HIT innréttingar ehf til þess að gera úr-
bætur. Þær tilraunir voru árangurslausar
og er málið nú í meðferð hjá lögmanni
sem hyggst fara með það fyrir dómstóla.
Neytendasamtökin mæla ekki með að
neytendur eigi viðskipti við HIT innrétt-
ingar ehf.
Viðkvæmir útiarnar
Kvörtunar|ajónustan hefur fengið kvart-
anir Vegna útiarna sem hafðir eru á
pallinum eða í garðinum. Þessir útiarnar
eru úr keramiki og virðast vera mjög við-
kvæmir. Dæmi eru um að útiarinn hafi
brotnað og glóð dreifst um trépall. Það
er því ástæða til að benda eigendum úti-
arna á að fara varlega með þessa gripi,
sérstaklega ef að sprungur eru farnar að
myndast. Eins skyldi geyma þá inni yfir
vetrartímann.
NEYTENDABLAÐIÐ 4. TBL. 2003 3