Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.2003, Blaðsíða 15

Neytendablaðið - 01.12.2003, Blaðsíða 15
Erfðabreytt bygg - örugg framleiðsla verðmætra lífefna. I síðasta tölublaði Neytendablaðsins birtist neikvæð grein um fyrirhugaða starfsemi fyrirtækisins ORF Líftækni en fyrirtækið er að þróa aðferð sem mun gera framleiðslu á verðmætum lífefnum í erfðabreyttu byggi mögulega. Ef áætl- anir ganga eftir mun starfsemin leiða til verulegrar atvinnuuppbyggingar á íslandi og jafnframt stuðla að lækkun lyfjaverðs íheiminum, íslenskum ogerlendum neyt- endum til hagsbóta. í kjölfar birtingarinn- ar var fulltrúum Neytendasamtakanna boðið að kynna sér starfsemi ORF Líf- tækni frá fyrstu hendi. Neytendasamtök- in þekktust boðið og á löngum fundi áttu sér stað gagnlegar umræður, þar sem leiðréttur var misskilningur sem fram kom í téðum greinaskrifum Neytenda- blaðsins um ORF Líftækni. í kjölfar þessa fundar var ritnefnd Neytendablaðsins ásátt um að gefa ORF færi á að útskýra sína hlið fyrir lesendum blaðsins. Það er mikilvægt að átta sig á því að ORF áformar ekki að framleiða bygg til almennrar dreifingar sem erfðabreytt matvæli eða fóður. Þess í stað hyggst fyrirtækið rækta erfðabreytt bygg á afmörkuðum svæðum til próteinfram- leiðslu. Sum próteinanna hafa lyfjavirkni en önnur henta til iðnaðar, rannsókna eða annara nota. í greininni var mikið gert úr þeirri áhættu sem ræktun lyfjaplantna myndi hafa í för með sér þar sem þær myndu sleppa út í umhverfið, dreifa sér og frjóvga skyldar tegundir illgresis, spilla annarri uppskeru og menga fæðukeðju mannsins. - Hér finnst okkur hjá ORF Líftækni sérlega ómaklega að okkur vegið, þar sem kjarninn f allri starfsemi ORF frá upphafi hefur verið áherslan á að hindra dreifingu út í umhverfið og í aðra upp- skeru, að koma í veg fyrir frjóvgun við skyldar tegundir í umhverfi og náttúru landsins og þar með útiloka að lyfja- plöntur rötuðu í fæðukeðju mannsins. Þess vegna var byggplantan valin. Hún er sjálffrjóvga og frjóvgun byggsins hef- ur átt sér stað áður en blómin opna sig. Sama á við um allt annað bygg sem er í ræktun í öðrum tilgangi. Þess má geta að öryggismörk fyrir fjarlægð „lyfjabyggs" frá öðru byggi í nýútgefnum reglum í Bandaríkjunum eru 15 metrar. Það er hreinlega ekki í eðli byggs að víxlfrjóvg- ast. Byggið lifir auk þess ekki af utan ræktunarreita, hvað þá að það dreifi sér út í íslenska náttúru þó það hafi haft tæki- færi til þess frá landnámsöld s.b.r. bleiku akrana hans Gunnars á Hlíðarenda. Enn fremur má nefna að engar plöntur í flóru íslands eru nægilega skyldar bygginu til þess að víxlfrjóvgun við þær geti átt sér stað. Einmitt út frá umhverfis- og öryggis- sjónarmiðum er byggið alveg kjörið til líf- efnaframleiðslu. Ræktun á vegum ORF er því ekki slepping í þeirri merkingu að hún sé óafturkræf; hún er bundin ræktun- arreit og ræktunartíma og hægt að Ijúka henni hvenær sem er. Það fer vel við ímynd landsins um tæknivædda þjóð í hreinu og óspilltu landi, að hafa svo einstakt öryggi innbyggt í sjálfbæra lífefnaframleiðslu. Reyndar hefur ábyrg afstaða ORF til starfsemi sinn- ar vakið athygli utan landsteinanna og viljum við fullyrða að sú athygli hafi ekki spillt ímynd landsins, þvert á móti. íslenskur land- búnaður er blessunarlega laus við notkun eiturefna í þeim mæli sem þekkist allt í kring um okkur og byggið því einstak- lega hreint og ómengað hráefni til lyfjaframleiðslu. Það er beinlínis hagur fyrirtæk- isins að sjá til þess að blöndun við aðra upp- skeru geti ekki átt sér stað. Liður í því er að aðgreina ræktun og tækjakost á vegum ORF frá annarri rækt- un og tækjakosti sem notaður er til uppskeru á fóðurkorni. Þessar aðgerðir eru hluti af gæðastjórnun sem er forsenda fyrir lyfjaframleiðslu á vegum fyrirtækisins. í fyrrnefndri grein er rætt er um eitur- virkni próteina og avidín tekið sem dæmi. Það getur varla talist gott dæmi þar sem avidín er náttúrulegt prótein í eggjum. Svo „eitrað" var það prótein. Hvað varðar meinta „uppsöfnun" erfða- breyttra efna er rétt að benda á að ólíkt þrávirkum efnum hlaðast prótein ekki upp í náttúrunni. Þau eru brotin niður í frumeindir sínar af lífverunum sjálfum, í meltingarvegi afætna og við rotnun. í raun er niðurbrot próteina eitt af vand- kvæðunum við framleiðslu próteina. í tilviki ORF brotna framleiðslupróteinin niður við spírun fræsins. Allir 11 starfsmenn ORF Líftækni hafna því alfarið að ORF sé byggt á skammsýni og að starfsemi þess eigi að banna. Þvert á móti vænta starfsmenn og aðstand- endur ORF þess nú að eftir að hafa kynnt sér málið, hljóti Neytendasamtökin að fagna þeirri ábyrgu um- hverfis- og öryggisvitund sem fyrirtækið hefur haft að leiðarljósi. Hvort erfðabreytt bygg er lausnarorðið fyrir íslensk- an landbúnað verður tíminn að leiða í Ijós en af ofantöldu má Ijóst vera að ræktun þess getur farið fram í sátt og samlyndi við hvaðeina annað sem gert er í íslenskum land- búnaði. Það er mikilvægt að um- ræða í samfélaginu fari fram með ábyrgum og upplýstum hætti. Samræðuformið er lykil- þáttur í ábyrgri starfsemi óháðra félagasamtaka eins og Neytendasam- takanna. Um leið og að- standendur ORF Líftækni harma þær órökstuddu fullyrðingar um fyrirtækið sem fram komu í umræddri grein fögnum við heimsókn Neytendasamtakanna til ORF og þeim samræðum sem þá áttu sér stað. Ennfremur virðum við vilja samtakanna til að hlusta og leiðrétta ef menn hafa farið of geist í málflutningi sínum og eru þau meiri af fyrir bragðið. Starísmenn ORF Líftækni NEYTENDABLAÐIO 4.TBL 2003 15

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.