Neytendablaðið - 01.12.2003, Qupperneq 7
Hljómur og hljóðrásir
DVD-spilara er hentugt að tengja hljóm-
tækjasamstæðu til að hlusta á tónlist.
Spilarar fyrir tvo eða fleiri diska henta helst
þeim sem ætla að nota tækið mikið til að
spila tónlist.
Einn af kostum DVD-diska er að þeir bjóða
upp á fjölrása hljóm. Til að nýta hann þarf
spilarinn að vera með Dolby Digital búnað
og tengdur magnara fyrir sex hátalara. Sá
búnaður skilar líka rétt eldri gerðinni,
Dolby Pro Logic hljómi. Margir spilarar
eru með DTS-hljómbúnað (Digital Theat-
er System) sem enn eykur gæðin. Sjálfvirk
hljóðstjórn (dynamic audio-range control)
heldur hljóðstyrk jöfnum svo að sprenging-
ar eða annar hávaði í bíómyndum keyri
ekki úr hófi.
Gott er að geta tengt heyrnartól við DVD-
spilarann, þá er hægt að horfa og hlusta án
þess að trufla aðra.
Vankantar
Eitt af því sem er lélegt og fyrst hefur bilað
í ódýrum geislaspilurum (bæði fyrir CD og
DVD) er diskslíðrið og dyrnar að því. Þetta
smellur, ískrar, stendur á sér eða festist. Vél-
arhávaðinn er hins vegar yfirleitt ekki mikill
lengur og tækin titra varla á borði.
Sumir DVD-spilarar geta ekki lesið CD-R
og CD-RW geisladiska sem fólk hefur út-
búið sjálft með afritum af tónlist. Góður
spilari ræður við allar gerðir diska og efnis.
Helstu flokkarnir eru DVD, DVD-R, DVD-
RW, DVD-Audio, SACD, CD-R, CD-RW,
MP3, Super-VCD, VCD og Audio-CD.
Slakur spilari spilar aðeins nokkrar gerðir
þessara diska.
Gæðakönnun á DVD-spilurum
Cefin eru stig á kvarðanum 0-5,5 þar sem 0 er lakast og 5,5 er best. Heildargæðaeinkunn er byggð á fleiri þáttum en hér eru tilteknir.
Vörumerki og gerð JVC XV-N 33SL Philips DVD 625 /001 Pioneer DV- 360-K Sony DVP-NS 330 Thomson DTH 211E Aiwa XD-AX10
Seljandi Sjónvarpsmiðstöðin, Hagkaup Elko Dræðurnir Ormsson Sony-setrið Expert Radíóbær
Staðgreiðsluverð 19.990 15.900 22.900 22.950 15.900 19.995
HEILDARGÆDAEINKUNN 4.2 4.1 4.1 4.1 4.0 4.2
MVNDGÆÐI (30%) 4.4 4.8 4.4 4.4 4.6 4.6
Birta. skerpa og litur 3.6 4.9 4.8 4.8 5.0 5.0
Hægagangur 3.9 4.3 3.5 3.9 4.1 3.9
Leit 3.8 3.8 2.1 4.1 3.6 4.1
Upplausn, lárétt 5.2 5.5 5.4 5.5 5.5 5.5
HLJQMGÆÐI (20%) 5.0 4.2 3.9 4.7 4.7 4.8
Tónsvið 5.0 5.2 4.6 4.5 4.7 5.0
Vörn gegn bjögun 5.1 5.5 5.3 5.1 5.0 5.2
LEIÐRÉTTINGAHÆFNI (15%) 4.6 4.6 4.4 3.5 4.0 3.4
Á DVD-diskum 4.2 3.5 3.9 2.8 4.2 2.7
Á CD-diskum 4.7 4.8 4.8 3.9 4.5 3.8
Þol gegn hristingi 4.8 5.5 4.5 3.9 3.0 3.8
ÞÆGINDI í NOTKUN (25%) 3.1 2.7 3.6 3.7 2.7 3.7
Diskur settur í og tekinn úr 4.1 2.3 3.3 3.6 2.8 3.5
Uppsetning og gangsetning í fyrsta sinn 3.6 3.1 4.0 3.8 3.0 3.8
Fjarstýring 3.3 2.4 4.1 3.5 2.1 3.5
Spilun tónlistar af CD-diskum 2.4 2.4 2.8 3.3 2.2 3.3
FJÖLHÆFNI (5%) 3.5 3.8 3.8 3.7 3.8 3.3
Til myndasýninga 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 3.3
Til tónlistarflutnings 2.8 3.5 3.5 3.3 3.5 3.3
UMHVERFISÞÆTTIR (5%) 4.8 4.8 5.0 4.9 4.2 4.9
Orkunotkun 5.1 5.0 5.2 5.1 4.4 5.1
Smídi og frágangur 4.0 3.7 3.7 4.3 3.3 4.0
Einfaldleiki viðgerða 3.0 4.5 4.5 3.5 4.5 3.5
© International Consumer Research and Testing - Neytendablaðið 2003.
NEYTENDABLAÐIÐ 4. TBL. 2003 7