Neytendablaðið - 01.12.2003, Síða 12
Canon MV 600/ hlaut 3,4 í heildargæðaeinkunn og fékkst á
um 70 þús. kr. hjá Hans Petersen og Nýherja.
Með hliðræn og stafræn tengi, hægt að nota sem vefmynda-
vél, hægt að tengja lausan hljóðnema.
Stafrænar myndskeiðavélar
Aukin gæði - lægra verð
Verð á stafrænum upptökuvélum er
núna í mörgum tilvikum aðeins helm-
ingurinn af því sem þær kostuðu fyrir
þremur árum. AIIs reyndust 55 gerðir
til sölu hér í nóvember og voru þær á
verðbilinu 45.000-390.000 kr. í gæða-
könnun International Consumer Rese-
arch and Testing (ICRT) voru alls 40
gerðir og yfirlit um þær 17 sem fengust
hérlendis er í töflu. Þar sem rætt er um
búnað og gæði í þessari grein er miðað
við þessar 17. Jafngóðar eða betri vélar
kunna að vera til sölu.
Kostirnir
Fyrir nokkrum árum voru bara hliðrænar
(analogue) myndskeiðavélar á markaðn-
um, t.d. 8mm, Hi8, VHS og S-VHS.
Gæðakönnun á myndskeiðavélum
Stafrænar myndskeiðavélar (digital
camcorders) fyrir almenning komu fyrst
fram 1995. Þær hafa marga kosti umfram
hliðrænar. Dæmi:
• Verulega meiri mynd- og hljómgæði.
• Mun fleiri möguleikar.
• Afrit eru jafn góð og frumrit en með
hliðrænni tækni er afrit alltaf lakara.
• Klipping og myndvinnsla er
auðveldari, fljótlegri og býður upp á
fleiri kosti.
• Flestar stafrænu vélarnar eru minni
og léttari því að spólurnar eru yfirleitt
smærri.
• Stafrænar vélar hafa flestar minniskort
til Ijósmyndatöku sem ekki er í hinum
hliðrænu.
Nýyrði
í þessari grein er nýyrðið ,myndskeiða-
vél' notað í stað ,myndbandstökuvél'.
Ástæðan er sú að ekki er lengur
myndband í öllum slíkum vélum
heldur vistast myndskeiðin stundum
á DVD-disk eða minniskort. Orðið
myndskeið merkir eitt samfellt upp-
tökubil (,skot').
Munurinn er ekki jafn áberandi varðandi
ýmis önnur atriði, t.d. hljómgæði og
hristivörn (image stabiliser) sem dregur
úr áhrifum óstöðugrar myndatöku en
árangurinn er áþekkur með báðum gerð-
um. Ending rafhlaðna er líka svipuð.
Mismunandi gerÖir
Stafrænar myndavélar nota mismunandi
tækni til upptöku. Talsverður munur er á
möguleikum og eftirvinnslutækni þeirra.
Mini DV
Mini DV bandið er algengast enda var
það fyrsta stafræna gerðin á markaðnum,
spólan er lítil um sig og sumar vélarnar
má geyma í vasa. Þrátt fyrir smæðina
geta rúmast á spólunni um 2 klst. af
myndefni f gæðaupplausn.
/7 gerðir sem fengust hér í nóv. 2003. Vélunum er raðað eftir verði, ódýrastar efst, dýrastar neðst. Gefnar eru einkunnir á kvarðanum 0-5 þar sem
0 er lakast og 5 er best. Heildargæðaeinkunn byggist á fleiri atriðum en hér eru tilgreind.
Vörumerki Gerð Seljandi Staðgreiðslu- verð Tækni Heildar- gæða- einkunn Mynd- gæði Upplausn Upptaka við litla birtu Hristi- vörn
JVC GR-D20E Elko 48.900 (1) Mini DV 2.9 3 3 3 3
JVC GR-D30E Elko 56.900 (2) Mini DV 2.9 3 3 3 3
Canon MV600 Hans Petersen, Nýherji 59,900 Mini DV 3.3 4 3 2 3
Canon MVOOOi Hans Petersen, Nýherji 69,900 Mini DV 3.4 4 3 2 3
Panasonic NV-DS65 BT 79,992 MiniOV 3.8 4 3 4 4
Panasonic NV-GS50 Elko 87,900 Mini DV 3.7 4 3 3 4
Canon MV630Í Hans Petersen, Nýherji 89,900 Mini DV 3.3 3 3 2 3
JVC GR-D70E Sjónvarpsmiðstöðin 89.990 (3) Mini DV 3.1 3 3 3 3
Sharp VL-Z7 S Bræðurnir Drmsson 94,900 Mini DV 3.1 3 4 3 3
Sony DCR-TRV33 Sony-Setrið 109,950 Mini DV 3.7 4 4 4 4
Canon MVX100Í Hans Petersen, Nýherji 114,900 Mini DV 3.6 4 4 3 4
JVC GR-DVP9E Elko 126,900 Mini DV 3.2 4 4 4 3
Sony DCR-PC105 Sony-Setrið 129,950 Mini DV 3.6 4 3 4 4
Panasonic NV-GS70 Elko 129.900 (4) Mini DV 4.1 5 4 4 4
Sony DCR-TRVBO Elko 159.900 (5) Mini DV 3.8 4 4 4 4
Sony DCR-IP220 Sony-Setrið 199,950 Micro MV 4.1 5 4 4 5
© International Consumer Research and Testing - Neytendablaðið 2003.
12 NEYTENDABUBIÐ 4. TBL. 2003