Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.10.2004, Blaðsíða 12

Neytendablaðið - 01.10.2004, Blaðsíða 12
Áfengisgjald á íslandi er með því hæsta sem gerist í Evrópu eins og sjá má á fylgjandi súluritum. Áfengisgjaldið er skattur sem rennur í ríkissjóð og ákvarðast af alkóhólmagni vökvans - því sterkara sem áfengið er, því hærri er skatturinn. Áfengisgjaldið sem lagt er á vodkaflösku nemur um 80% af verðinu og af bjór og léttvíni rennur um 65% af verðinu lil ríkisins. Samtök ferðaþjónustunnar hafa gagnrýnt áfengisgjaldið enda er samkeppni um erlenda ferðamenn mikil og er hátt áfengisverð oft það sem vekur mesta athygli ferðamanna á Islandi. Við Islendingar erum vön þessu háa verði þótt við séum ekki öll sátt við það, enda áfengisgjald á Islandi berum við okkur saman við önnur lönd í þessum málum eins og öðrum. Áfeng- isgjöld á léttvín og bjór geta verið mörg hundruð prósentum hærri hér en í öðr- um Evrópulöndum. Rökin gegn því að lækka áfengisgjöldin eru m.a. þau að ríkissjóður missir spón úr aski sínum og skv. fjárlögum 2004 var gert ráð fyrir 7 milljörðum króna í ríkis- kassann af áfengisgjaldi. Önnur rök eru að drykkja landsmanna myndi aukast, það þýðir að áfengisgjaldið er notað sem forvörn gegn drykkjusýki. Margar rann- sóknir sýna þó að hófleg léttvínsdrykkja er góð fyrir heilsuna. Hins vegar vitum við ekki hvað gerist ef gjöldin lækka og hvort það myndi leiða til meiri léttvíns- drykkju með góðum mat eða aukinnar drykkju meðtilheyrandi samfélagsvanda- málum. Þó er ekkert sem bendir til þess að hærra áfengisgjald dragi úr drykkju þeirra sem eiga við áfengisvandamál að stríða, enda vandamálið flóknara en það þó meira álag á budduna sé sjálfsagt ekki til bóta. Ekki er heldur vitað hvað land- inn drekkur mikið af heimabruggi eða smygli og hvort sú neysla myndi minnka með lægra áfengisgjaldi. Það er ekki ein- falt mál að ná niðurstöðu um hátt eða lágt áfengisgjald því það er ekki einungis mál neytenda eða ferðafrömuða, heldur einnig félagslegs eðlis og ekki síst heil- brigðismál. \ 12 NEYTENDABLAÐIÐ 3.TBL. 2004

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.